Fréttablaðið - 23.10.2019, Síða 17
TM, Síðumúla 24, 108 Reykjavík · 515 2000 · tm.is
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. boðar til hluthafafundar í félaginu sem haldinn verður miðvikudaginn
13. nóvember 2019 kl. 16:00 í fundarsal félagsins að Síðumúla 24, Reykjavík, 4. hæð.
Dagskrá
Um tillögu samkvæmt dagskrárlið 1
Félagið hefur samið við Klakka ehf. um kaup á öllu hlutafé Lykils fjármögnunar hf. og
kaupsamningur þess efnis var undirritaður þann 10. október 2019. Viðskiptin eru háð
samþykki Fjármálaeftirlitsins, Samkeppniseftirlitsins, svo og samþykki hluthafafundar í
Tryggingamiðstöðinni hf. Stjórn félagsins leggur til að hluthafar samþykki kaup félags-
ins á öllu hlutafé Lykils fjármögnunar hf. enda er það álit stjórnar að viðskiptin séu
félaginu hagfelld.
Um tillögu samkvæmt dagskrárlið 2
Lögð er fyrir fundinn svohljóðandi tillaga um breytingar á samþykktum félagsins:
a. 1. gr. samþykktanna hljóði svo: „Félagið er hlutafélag. Nafn þess er TM hf.“
b. 3. gr. samþykktanna hljóði svo: „Tilgangur félagsins er eignarhald á hlutum í félögum
á sviði fjármála-, lána- og fjárfestingastarfsemi, vátryggingastarfsemi og annars
skylds reksturs. Enn fremur eignarhald og rekstur fasteigna, eigin fjárfestingarstarf-
semi og þjónusta við dótturfélög.“
Um tillögu samkvæmt dagskrárlið 3
Til að fjármagna kaup á Lykli fjármögnun hf. leggur stjórn til að henni verði veitt heimild
til að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 125.000.000 að nafnvirði með útgáfu nýrra
hluta. Tillaga stjórnar felur í sér að hluthafar hafi forgangsrétt til nýrra hluta sem verða
gefnir út á grundvelli heimildarinnar í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og
samþykktir félagsins. Efnt verður til almenns hlutafjárútboðs til að safna áskriftum að
hinum nýju hlutum þar sem núverandi hluthafar njóta forgangsréttar í samræmi við
hlutafjáreign sína en almennum fjárfestum verður gefinn kostur á að skrá sig fyrir þeim
hlutum sem forgangsréttarhafar nýta sér ekki. Í útboðsferlinu er stjórninni veitt heimild
til að ákvarða útboðsgengi hluta, áskriftar- og greiðslufresti og sölureglur að öðru leyti.
Arion banka hf. verður falið að hafa umsjón með útboðinu sem mun fara fram jafnskjótt
og útboðslýsing hefur verið gerð og skylt er gefa út í tengslum við útboðið.
Í tillögu stjórnar felst jafnframt breyting á samþykktum félagsins á þann veg að við þær
bætist eftirfarandi ákvæði til bráðabirgða:
„Stjórn félagsins er heimilt að auka hlutafé félagsins um allt að kr. 125.000.000 að
nafnvirði með útgáfu nýrra hluta. Hluthafar njóta forgangs til áskriftar að hinum
1. Tillaga um samþykki fyrir ákvörðun stjórnar félagsins um kaup
á öllu hlutafé í lánafyrirtækinu Lykill fjármögnun hf.
2. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins.
nýju hlutum i samræmi við hlutafjáreign sína en almennum fjárfestum verður gefinn
kostur á að skrá sig fyrir þeim hlutum sem forgangsréttarhafar nýta sér ekki. Andvirði
hlutafjáraukningarinnar skal notað til fjármögnunar á kaupum félagsins á öllu hlutafé
Lykils fjármögnunar hf. Stjórn félagsins ákveður útboðsgengi þessara hluta, sölu-
reglur, fresti til áskriftar og fresti til greiðslu þeirra. Stjórn félagsins skal heimilt að gera
nauðsynlegar breytingar á samþykktum félagsins í tengslum við útgáfuna. Heimild
þessi fellur úr gildi eigi síðar en 31. mars 2021.“
Um dagskrárlið 4
Hluthafar hafa heimild til að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á fundinum og skal kröfu
þar um fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins skrif-
lega eða rafrænt á netfangið stjorn@tm.is í síðasta lagi 3. nóvember næstkomandi.
Nánar um fundinn og framkvæmd hans
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður
skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð á eyðublaði eða í samræmi við eyðublað
sem aðgengilegt er á vef félagsins, tm.is/fjarfestar. Rafrænt umboð skal sent félaginu
á netfangið stjorn@tm.is áður en fundur hefst.
Ekki verður unnt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Óski hluthafi að
taka fyrir fram þátt í atkvæðagreiðslu skriflega og fá sendan atkvæðaseðil skal hann
gera skriflega kröfu þar um til félagsins eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn. Að auki
er unnt að greiða atkvæði á skrifstofu félagsins á venjulegum opnunartíma (kl. 09:00
til 16:00) til og með þriðjudeginum 12. nóvember 2019, en fyrir lokun þann dag skal
einnig skila þangað útsendum atkvæðaseðlum. Nánar fer um atkvæðagreiðsluna og
gildi atkvæða samkvæmt henni eftir reglum félagsins um atkvæðagreiðslu utan hlut-
hafafundar, settum af stjórn félagsins 18. desember 2013.
Dagskrá hluthafafundarins og tillögur sem fyrir hann verða lagðar, svo og aðrar
nauðsynlegar upplýsingar um fundinn má finna á vef félagsins (www.tm.is/fjarfestar).
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á fundinn á fundarstað hálfri klukkustund
áður en hann hefst og fengið fundargögn afhent.
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
HLUTHAFAFUNDUR Í TRYGGINGAMIÐSTÖÐINNI HF.
13. NÓVEMBER 2019
3. Tillaga um heimild stjórnar til að hækka hlutafé í félaginu.
4. Önnur mál löglega fram borin.
5M I Ð V I K U D A G U R 2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 MARKAÐURINN
Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið SidekickHealth er komið í samstarf við lyfjarisann Pfizer sem mun meðal annars fela í sér þróun á svokallaðri stafrænni heil
brigðis meðferð við reykingum.
„Þetta hefur gríðarlega mikla
þýðingu fyrir okkur og býður upp
á enn fleiri tækifæri með Pfizer og
öðrum lyfjafyrirtækjum. Það að
vera með Pfizer sem samstarfsaðila
gefur okkur gæðastimpil í öðrum
samningaviðræðum,“ segir Tryggvi
Þorgeirsson, framkvæmdastjóri
og annar af stofnendum Sidekick
Health.
Fyrirtækið hefur þróað staf
ræna heilbrigðismeðferð, þar sem
tækninni er beitt til að bæta með
ferð fólks með langvinna sjúkdóma
svo sem sykursýki, bólgusjúkdóma
og hjarta og æðasjúkdóma. Frétta
blaðið greindi frá því í sumar að
Novator, fjárfestingafélag Björgólfs
Thors Björgólfssonar, og tengdir
fjárfestar hefðu lokið við hundrað
milljóna króna innspýtingu í Side
kickHealth en fjárfestahópurinn
hefur lagt fyrirtækinu til hundruð
milljóna frá stofnun þess. Stefnt er
að því að sækja nýtt hlutafé á næsta
ári til að fjármagna áframhaldandi
vöxt.
Tryggvi segir að stafræn heil
brigðismeðferð feli í sér mikinn
ávinning fyrir sjúklinga í lyfjameð
ferð. Hann vísar til þess að í vor hafi
SidekickHealth verið notað sam
hliða lyfjameðferð í fyrsta sinn.
Niðurstaðan var sú að sjúklingar
fundu fyrir meiri orku, leið betur
og þeir voru virkir alla meðferðina.
Þá voru þeir betur í stakk búnir til
að takast á við þær áskoranir sem
fylgja sjúkdómnum.
„Lyfjafyrirtækin sjá einnig hag
sinn í að veita stafræna heilbrigðis
meðferð. Við erum að sjá heilbrigðis
tryggingakerfið færast meira og
meira í átt að því sem kallast „value
based reimbursements“ sem þýðir
að lyfjafyrirtækin þurfa á hverju ein
asta ári að rökstyðja lyfjaverð gagn
vart kaupendum sínum með því að
sýna fram á að lyfin bæti heilsu og
líðan sjúklinga,“ segir Tryggvi.
„Með því að tengja lyfjameðferð
ina við tól eins og SidekickHealth,
sem tekur á öllum þeim lífsstíls
þáttum sem lyfin sjálf ná ekki að
taka á, eykst árangurinn af lyfja
meðferðinni.“
Ætla má að stórfyrirtæki á borð
við Pfizer fái fjölda fyrirspurna og
tilboða um samstarf. Aðspurður
segir Tryggvi að forsenda fyrir því
að landa samningi við Pfizer hafi
verið öll sú rannsóknar og þróun
arvinna sem liggur að baki Side
kickHealth. Í kjölfar betaútgáfu
forritsins árið 2015 var ráðist í
klínískar rannsóknir sem sýndu
góðar niðurstöður og voru fyrstu
niðurstöður kynntar á vísindaþingi
í Bandaríkjunum árið 2017.
„Það að þróa stafræna heil
brigðismeðferð er dálítið eins og
að þróa lyf vegna þess að ferlið
er bæði kostnaðarsamt og tíma
frekt. Það eru meira en 300 þús
und heilsuöpp á markaðnum en
aðeins örfá bjóða upp á stafræna
heilbrigðismeðferð sem byggist
á rannsóknum. Við hefðum aldr
ei komist í samstarf við Pfizer án
þess að vera með góða vöru sem er
sannreynd með klínískum rann
sóknum. Það var algjör lykilfor
senda,“ segir Tryggvi. Þá vísar hann
til þess að í nýlegri úttekt alþjóð
lega matsfyrirtækisins Orcha, sem
metur smáforrit í heilbrigðisgeir
anum, var SidekickHealth í efsta
0,1 prósentinu hvað gæði varðar.
thorsteinn@frettabladid.is
Hefja samstarf við lyfjarisann Pfizer
Íslenska tæknifyrirtækið SidekickHealth er komið í samstarf við þriðja stærsta lyfjafyrirtæki heims. Þróa stafræna heilbrigðismeð-
ferð við reykingum. Mikill ávinningur af slíku samstarfi fyrir lyfjafyrirtæki sem og sjúklingana. Ný hlutafjáraukning á næsta ári.
Tryggvi Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Sidekick. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
2
3
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
0
-4
1
D
0
2
4
1
0
-4
0
9
4
2
4
1
0
-3
F
5
8
2
4
1
0
-3
E
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K