Fréttablaðið - 23.10.2019, Page 18

Fréttablaðið - 23.10.2019, Page 18
Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is 2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN Framtakssjóðurinn Inn-viðir fjárfestingar, sem er að stærstum hluta fjármagnaður af lífeyr-issjóðum, hefur eignast 67 prósenta hlut í Verð- bréfamiðstöð Íslands samhliða um 300 milljóna króna hlutafjáraukn- ingu í félaginu. Fyrir í hluthafa- hópnum eru lífeyrissjóðir, Arion banki og Íslandsbanki auk einka- fjárfesta sem fara með um átta pró- senta hlut. „Fyrirtækið er fullfjármagnað eftir hlutafjáraukninguna og mun hefja starfsemi á næstu mánuðum. Segja má að við séum á f lugbraut- inni og munum brátt taka á loft,“ segir Sigþrúður Ármann, stjórnar- formaður Verðbréfamiðstöðvar- innar. Hún er jafnframt stofnandi og framkvæmdastjóri Exedra sem er umræðuvettvangur fyrir konur í pólitík, opinbera geiranum og atvinnulífinu. „Það er einkar ánægjulegt að fá Innviði, sem samanstanda af um 20 lífeyrissjóðum, í hluthafahópinn,“ segir Sigþrúður. Þetta er önnur fjárfesting sjóðsins en í haust keypti hann 13 prósenta hlut í HS Veitum. Innviðum er stýrt af Summu rekstrarfélagi í samstarfi við Ursus, fjárfestingafélag Heiðars Guðjónssonar, forstjóra Sýnar. Erla Hrönn Aðalgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, bendir á að verðbréfamiðstöð sé kerfislega mikilvægur fjármálainnviður því hún tengi saman fjármálamarkaði og fjármálafyrirtæki með uppgjöri verðbréfaviðskipta. Verðin hækkuðu verulega Hvers vegna var farið af stað með að stofna Verðbréfamiðstöð? Fyrir á markaðnum er fyrirtæki sem er í eigu Nasdaq OMX-sam- stæðunnar. Sigþrúður: „Tilgangur félagsins er að koma á samkeppni á markaði sem í dag ríkir algjör einokun á og lækka þann háa kostnað sem inn- heimtur hefur verið af þjónustu við rafræn verðbréf. Verðin höfðu hækkað verulega frá árinu 2006. Viðskiptavinir höfðu falast eftir verðlækkunum en ekki haft erindi sem erfiði. Því var látinn slagur standa og komið á fót verðbréfa- miðstöð til að tryggja samkeppni og val viðskiptavina á markaðnum. Við sjáum fram á að markaðurinn hafi möguleika á því að spara tugi milljóna með tilkomu Verðbréfa- miðstöðvar Íslands.“ Erla Hrönn: „ Markaðurinn hefur nú þegar notið góðs af til- komu Verðbréfamiðstöðvarinnar því keppinauturinn hefur lækkað verðið þrisvar sinnum frá stofnun fyrirtækisins. Og reksturinn er ekki enn hafinn.“ Sigþrúður: „Það sýnir enn og aftur hvað samkeppni er samfélag- inu mikilvæg.“ Erla Hrönn: „Okkar markmið er að veita viðskiptavinum skilvirka og örugga þjónustu á samkeppnis- hæfum verðum. Eignarhaldið er íslenskt, líkt og það var þegar Verð- bréfaskráning Íslands var upphaf- lega stofnuð árið 1997 og starfsemi félagsins lýtur eftirliti innlendra eftirlitsaðila.“ OMX, sem rak verðbréfamarkaði á Norðurlöndum og Eystrasalts- ríkjunum, keypti Kauphöllina og Verðbréfaskráningu Íslands árið 2006. Síðar fóru alþjóðlegu fyrir- tækin Nasdaq og OMX saman í eina sæng snemma ársins 2008 og var nafninu þá breytt í Nasdaq verðbréfamiðstöð. Samstæðan rekur átta kauphallir og verðbréfa- miðstöðvar. Fjögur ár í undirbúningi Hvað er langt síðan undirbúningur hófst við að koma fyrirtækinu á fót? Erla Hrönn: „Starfsemi Verð- bréfamiðstöðvar Íslands hefur verið í undirbúningi í fjögur ár. Fyrir- tækið var stofnað síðla árs 2015. Að Eru á flugbrautinni eftir fjögurra ára vinnu Verðbréfamiðstöð Íslands er fullfjármögnuð eftir hlutafjáraukningu. Innviðir er með meirihluta í félaginu að henni lokinni. Ekki tókst að knýja fram gjald- skrárlækkanir og því var ákveðið að stofna aðra verðbréfamiðstöð. Erla Hrönn Aðalgeirsdóttir er framkvæmdastjóri Verðbréfamiðstöðvar Íslands og Sigþrúður Ármann er stjórnarformaður. Erla segir að umsókn um starsfleyfi keppinautarins hafi verið nokkrar blaðsíður. „Okkar umsókn var yfir þúsund blaðsíður.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI mörgu þarf að huga og það þarf að vanda vel til verka.“ Hvað er verðbréfamiðstöð? Sigþrúður: „Hafa ber í huga að kauphöll og verðbréfamiðstöð eru ekki það sama. Það er tvennt ólíkt. Þar fyrir utan eru þetta tvö aðskilin fyrirtæki með tvö starfsleyfi.“ Erla Hrönn: „Kauphöll er mark- aðstorg þar sem viðskipti með verð- bréf fara fram. Hlutverk verðbréfa- miðstöðva er að annast uppgjör viðskiptanna samkvæmt fyrirmæl- um og tryggja að peningar og verð- bréf skipti um hendur á réttum tíma þannig að réttindi þeirra sem eiga raf bréf séu tryggð á hverjum tíma. Verðbréfamiðstöð rekur uppgjör- skerfi fyrir raf bréf svo sem skulda- bréf og hlutabréf, hlut deildar- skírteini sjóða og víxla. Þannig eru viðskipti sem eiga sér stað í kauphöll gerð upp eftir ákveðnum reglum og ferlum. Hlutverk verðbréfamiðstöðvar er að vera vettvangur fyrir útgáfu raf- bréfa. En útgáfa raf bréfa fer oftast þannig fram að reikningsstofnun eða þátttakandi í verðbréfamiðstöð óskar eftir fyrir hönd útgefanda að gefa út raf bréf. Það er síðan verðbréfamiðstöðv- ar að tryggja að þær útgáfur sem skráðar eru séu eins og kveðið er á um og allar forsendur og réttindi séu réttar, það er tryggja þarf heil- indi útgáfu. Samkvæmt lögum um rafræna skráningu verðbréfa er þannig gert ráð fyrir að skráning verðbréfamið- stöðvar á bréfunum hafi tiltekin réttaráhrif í för með sér þar sem hún veitir hinum skráða eiganda lög- formlega heimild fyrir réttindum samkvæmt bréfinu og hefur þar með áhrif á forgangsröðun ósam- rýmanlegra réttinda. Verðbréf og aðrar útgáfur þurfa ekki að vera skráðar í kauphöll til að það sé akkur í skráningu í verð- bréfamiðstöð. Því fylgir til dæmis hagræði að hlutabréf séu skráð raf- rænt bæði fyrir hluthafana sjálfa og hlutafélagið, meðal annars til að tryggja eignarrétt hluthafa á hverjum tíma og aðgang félagsins að hluthafalista. Að lokum er það eitt af hlutverk- um verðbréfamiðstöðvar að halda verðbréfareikninga. Verðbréf sem skráð eru á verðbréfareikninga hjá fjármálafyrirtæki eru raunverulega hýst hjá verðbréfamiðstöð, en þátt- takendur í verðbréfamiðstöð, sem þá eru fjármálafyrirtæki og aðrir samkvæmt lögum, hafa umsjón með þeim. Það myndast ákveðin keðja.“ Arðsemiskröfu stillt í hóf Hvernig getur Verðbréfamiðstöð Íslands boðið betra verð en stórt alþjóðlegt fyrirtæki sem starfað hefur á markaðnum lengi? Sigþrúður: „Fyrirtækið er rekið með lítilli yfirbyggingu. Við horfum í hverja krónu án þess að það komi niður á öryggi og lipurri þjónustu til að geta boðið upp á góð verð.“ Erla Hrönn: „Öðrum verkefnum en þeim sem sérhæfðir starfsmenn á sviði uppgjöra, útgáfuþjónustu og þekkingar á tölvukerfinu sinna, er útvistað. Má þar nefna tækniþjón- usta, bókhald og lögfræðiráðgjöf.“ Sigþrúður: „Arðsemiskröfunni er jafnframt stillt í hóf. Keppi- nauturinn hefur hagnast veru- lega á umliðnum árum og greitt sér myndarlegan arð. Þegar allt kemur til alls eru það eigendur verðbréfa sem greiða fyrir þessa þjónustu.“ Blaðamaður valdi af handahófi ársreikning Nasdaq verðbréfamið- stöðvar fyrir árið 2015 og nýjasta ársreikninginn sem er fyrir síðasta 2 3 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 0 -4 6 C 0 2 4 1 0 -4 5 8 4 2 4 1 0 -4 4 4 8 2 4 1 0 -4 3 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.