Fréttablaðið - 23.10.2019, Síða 25

Fréttablaðið - 23.10.2019, Síða 25
Nýtt dekkjahótel Kletts hefur aukið öryggi og þægindi starfsfólks til muna. Á nýju dekkja- hóteli Kletts eru sérsmíðaðir rekkar sem fara einkar vel með dekk og felgur. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Með því að vera á réttum dekkjum á vetrum og sumrum fæst betri ending á dekkjum og bíllinn eyðir minna, sem veldur umhverfis- vænni lífsstíl. Það tekur um hálftíma að skipta um dekk á bílum en það er sá tími sem tekur að drekka góðan kaffi- bolla hjá Kletti. Þegar kemur að akstri í snjó, hálku og vetrarfærð er öryggi efst í huga okkar hjá Kletti. Því mælum við eindregið með því að fólk velji vönduð og traust vetrardekk undir bíla sína enda eru ódýrari dekk gjarnan með meira plast blandað í gúmmíið sem gerir þau bæði harðari og hálli í vetraraðstæðum,“ segir Geir Ómarsson, rekstrarstjóri hjól- barða hjá Kletti. Hann mælir líka hiklaust með að ökumenn séu á góðum vetrar- dekkjum á veturna í stað heils- ársdekkja enda séu heilsársdekk hvorki með jafn gróft munstur né eins mjúkt gúmmí. „Með því að vera á réttum dekkjum fyrir hvern árstíma; góðum, öruggum vetrardekkjum á veturna og góðum sumardekkjum á sumrin, fæst betri ending á dekkjum og bíllinn eyðir minna, sem, þegar upp er staðið, veldur umhverfisvænni lífsstíl,“ segir Geir. Nýtt og stærra dekkjahótel Klettur opnaði á dögunum nýtt og enn stærra dekkjahótel. „Dekkjahótel Kletts er nú búið nýjum rekkum sem eru sérstak- lega hannaðir til að geyma dekk en áður vorum við með dekkin í gámum. Það breytir ásýnd fyrirtækisins og eykur öryggi og þægindi starfsfólks við vinnuna. Í nýju rekkunum fer klárlega betur um dekkin, ekki síst þau sem eru á felgum,“ segir Geir á dekkjahótel- inu, sem verður æ vinsælla. „Það er alltaf að aukast að fólk velji að geyma dekkin sín á dekkjahóteli enda er víða bannað að vera með dekk í sameignum og margir vilja ekki geyma dekk í geymslunni heima,“ upplýsir Geir og kostir þess að geyma dekk á dekkjahóteli Kletts eru ótvíræðir. „Það er mikill kostur fyrir við- skiptavini að þurfa ekki að rogast með dekk á milli bæjarhluta, skíta út bílinn og jafnvel rispa innrétt- ingu bílsins með nagladekkjum,“ segir Geir. Bókunarkerfið sparar tíma Hjá Kletti var nýverið tekið upp bókunarkerfi sem slegið hefur í gegn hjá viðskiptavinum. „Á dekkjatarnatímum var iðulega mikið álag á símkerfinu okkar og erfitt að ná í gegn. Nýja bókunarkerfið léttir á því og hefur hitt í mark enda mikil hagræðing, tímasparnaður og þægindi. Nú geta viðskiptavinir bókað tíma til dekkjaskipta á netinu og þurfa ekki lengur að bíða tímunum saman í röð. Í stað þess eiga þeir pantaða fastan tíma og hinkra yfir góðum molasopa á meðan skipt er um dekk á bílnum sem tekur ekki lengri tíma en hálftíma,“ segir Geir en til að bóka tíma er farið inn á heimasíðu Kletts, klettur.is. Viðurkenndir og vandaðir hjólbarðar Bandaríski dekkjaframleiðandinn Goodyear/Dunlop er f lagg- skip Kletts í dekkjum en fyrir- tækið selur einnig dekk frá Sava og Nexen. „Nexen er einn hraðast vaxandi dekkjaframleiðandi í heiminum og er nýtt merki hjá Kletti. Dekk- in eru framleidd í Suður-Kóreu og þykja einstaklega góð á frábæru verði. Nexen hefur komið vel út úr könnunum og bílafram- leiðendur í heiminum velja þau í auknum mæli undir nýja bíla sína sem er ákveðinn gæða- stimpill. Gúmmí í dekkjunum er vandað og vetrardekk Nexen henta einkar vel fyrir íslenskar aðstæður,“ upplýsir Geir. Sava er undirmerki Goodyear og sömuleiðis framúrskarandi hjólbarðar. „Þegar Goodyear kemur með nýjan dekkjaárgang verður gamla týpan að Sava, sem eru klárlega góð dekk líka,“ segir Geir. Frá Goodyear fást nú einnig hljóðlátari dekk með hljóðein- angrun. „Þau henta einstaklega vel fyrir hljóðláta bíla en það á við um marga nýja bíla og ekki síst hybrid- og rafmagnsbíla. Á dekkjunum kemur fram fjöldi desibela sem gefur til kynna hversu mikið veg- hljóð þau gefa frá sér í akstri. Þeir sem eru á rafmagnsbílum leggja mikið upp úr því að vera á hljóð- látum dekkjum enda takmarka þau áreiti af þungum dekkjanið inni í bílnum,“ útskýrir Geir. Klettur er í Klettagörðum 8-10. Símanúmer 590 5100. Tíma- pantanir og nánari upplýsingar á klettur.is Nýtt bókunarkerfi og enn stærra dekkjahótel hjá Kletti Dekkjahótel Kletts er vinsælt enda þægilegt að losna við umstangið. Vönduð, traust vinnubrögð eru í hávegum höfð á dekkjaverkstæði Kletts. Það er ys og þys hjá Kletti þessa dagana. Risið er nýtt dekkjahótel og nýtt bókunar- kerfi sparar við- skiptavinum tíma og fyrirhöfn. Flaggskip Kletts eru vetrardekk frá Goodyear, Sava og Nexen. KYNNINGARBLAÐ 5 M I ÐV I KU DAG U R 2 3 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 VETRARDEKK 2 3 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 0 -1 A 5 0 2 4 1 0 -1 9 1 4 2 4 1 0 -1 7 D 8 2 4 1 0 -1 6 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.