Fréttablaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 28
Í gildi eru reglur sem kveða á um mynsturdýpt hjólbarða. Þannig er lágmarks mynsturdýpt 3 mm yfir vetrartímann, frá 1. nóvember til 14. apríl, en utan þess tíma þarf mynsturdýptin að vera að lág- marki 1,6 mm. Þessar kröfur ná til fólksbíla, vörubíla og rúta og eru reglurnar settar til að tryggja sem best veggrip hjólbarða og þar með öryggi allra vegfarenda. Auknar kröfur eru gerðar til þeirra bíla sem ætlaðir eru til neyðaraksturs, en mynsturdýpt hjólbarða skal í þeim tilvikum vera að lágmarki 4 mm að vetrar- lagi en 2 mm yfir sumartímann. Gæðamerkingar hjólbarða Einnig eru í gildi reglur sem kveða á um að seljendum hjólbarða sé skylt að hafa hjólbarða merkta með upplýsingum um samræmdar gæðaprófanir. Þannig getur kaupandi gert áreiðanlegan samanburð á gæðum og öryggi hjólbarðanna. Merkingar, mynstur og loftþrýstingur Í nóvember 2012 tóku gildi reglur sem kveða á um að seljendum hjól- barða sé skylt að hafa upplýsingar um samræmdar gæðaprófanir hjólbarða á merkingum sem límdar eru á hjólbarðana. Með þessu getur kaup- andi gert áreiðanlegan samanburð á gæðum, kostum og öryggi hjól- barðanna. Af vef Samgöngustofu. Mynsturdýpt hjólbarða Tími vetrarhjólbarða er að ganga í garð og mikilvægt að huga vel að vali á þeim, við- haldi og eiginleikum. Afar brýnt er að ökumenn noti ávallt dekk sem hæfa aðstæðum sem þeir aka í hverju sinni. Samkvæmt umferðarlögum ber ökumönnum ekki skylda til að nota vetrarhjólbarða þegar vetrar- færð ríkir þótt mælt sé eindregið með því. Keðjur og neglda hjólbarða má einungis nota frá 1. nóvember til 15. apríl, nema þess sé þörf vegna akstursaðstæðna. Hjólbarðar mynda einu snertingu bílsins við veginn og því afar mikilvægt að þeir séu alltaf í góðu lagi. Heimild: umferdastofa.is Verum örugg í vetrarfærðinni Samgöngustofa mælir eindregið með því að setja vönduð vetrar- dekk undir bíla. NORDICPHOTOS/GETTY Metið var innan við ein mínúta. Þann 12. september árið 2015 var slegið hraðamet í að skipta um öll fjögur dekkin á fólksbíl. Það tók fjóra starfsmenn dekkjaverkstæðisins Reifen Umert í Þýskalandi 58,43 sekúndur að skipta um dekk á bíl af gerðinni Ford Focus. Inni í þeim tíma var tíminn sem tók að tjakka bílinn upp með handafli og nota hefðbundinn felgulyki, ekki raf- stýrðan, til að losa rærnar. Sama dag slóu starfsmenn sama dekkja- verkstæðis heimsmet í að raða upp hæsta dekkjastaflanum. Hann var 6,14 metrar og alls 30 dekk. Dekkjamet Sjá nánar: www.reykjavik.is/thjonusta/tokum-nagladekkin-ur-umferd ERU NAGLADEKKIN ÖRUGGLEGA NAUÐSYNLEG FYRIR ÞIG? H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 8 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RVETRARDEKK 2 3 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 0 -3 3 0 0 2 4 1 0 -3 1 C 4 2 4 1 0 -3 0 8 8 2 4 1 0 -2 F 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.