Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.10.2019, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 23.10.2019, Qupperneq 40
Sparaðu allt að 50-70%! info@fedaszdental.huHafðu samband: + 36 70 942 9573 www.tannlaeknathjonusta.is Fyrir Eftir Tannlækningar í Ungverjalandi Ný ljóðabók Fríðu Ísberg er Leður-jakkaveður en fyrri ljóðabók hennar Slitförin og smá-sagnasafnið Kláði vöktu mikla athygli. Fríða segir ljóðin ort á tveggja ára tímabili. „Rétt áður en Slitförin kom út þá höfðum við maðurinn minn f lúið til Seyðisfjarðar til að reyna að lifa á einhverjum hundrað þúsund köllum. Þá var ég að skrifa Kláða. Eiríkur Örn Norðdahl sendi mér skilaboð og spurði hvort ég vildi koma á ljóðahátíð í Bergen en fyrir hana þurfi ég að skrifa tuttugu blað- síður af ljóðum. Ég var nýbúin að skila af mér Slitförinni en átti ein- hverja munaðarleysingja í skúffu. Þá kom jarðvegurinn fyrir þessa bók í bálki. Núna er ég að skrifa skáldsögu og í febrúar fannst mér ég komin í hnút og allt var í hræri- graut í hausnum á mér. Ég fór mikið í göngutúra og sund og til urðu ljóð. Þá lagði ég skáldsöguna aðeins til hliðar og fór að yrkja og fylla upp í þennan bálk.“ Í töffaraham Bókin skiptist í þrjá kafla: 1. p. – 2. p. og Við. Um þessa skiptingu segir Fríða: „Ljóðmælandinn er að átta sig á einhvers konar tvískiptingu, að annar helmingur hans fangi hugsun og kjarna og hinn helming- urinn bregðist við utanaðkomandi áreiti. „Ég“ er þá innra sjálf og „þú“ er hvernig ég sé mig, samanber að þegar þú horfir í spegil þá sérðu þig eins og einhverja aðra mann- eskju. Mér fannst mjög áhugavert að athuga hvort ég gæti gert lítið verk sem snerist bara um þessa tog- streitu á milli ég-sins og þú-sins og hvort hægt væri að ná sáttum þar. Þriðji kaf li heitir Við og þá er komin einhver önnur niðurstaða, kannski að það sé engin niðurstaða, kannski að það sé engin tvískipting heldur margskipting. Við erum lag- skipt, undir einu lagi leynist annað og svo framvegis.“ Viðkvæmni og þörf fyrir að verja sig eru áberandi umfjöllunarefni í bókinni. „Það er hluti af mann- legu eðli að vilja verja sig,“ segir Fríða. „Stundum verður þessi vörn að varnarsókn. Þú-ið í bókinni er þannig, í útrás, í töffaraham. Þetta er leðurjakkinn. Það er líka áhuga- vert að skoða þetta út frá sam- félaginu. Áður en hrunið varð þá var okkur kennt siðferði sem fólst í því að við ættum að vaða áfram og öskra eftir því sem við vildum fá. Í einstaklingshyggjunni er alfa sið- ferðið allsráðandi. „Fake it till you make it“ siðferði. En eins og gerist alltaf þegar samfélag fer út í öfgar þá kom mót- vægiskrafa um eitthvað allt annað. Nú lifum við aðrar öfgar. Við erum að fara frá því að sýna ekki neitt yfir í að sýna allt. Þetta hefur gerst á innan við tíu árum og er mjög áhugavert. Allir biðja um einlægni, sannleika og meiri samkennd og vilja fá að vera gallaðir og að þurfa ekki að skammast sín fyrir það. Auðvitað þurfum við að sýna eitthvert jafnvægi. Það er ótrúlega erfitt fyrir allar manneskjur að berskjalda sig þó svo krafan sé slík. Það er ekki sanngjörn krafa og ekki heldur heilbrigð að maður sé alltaf að gera það.“ Reyni að gefa til baka Þótt Fríða hafi ekki gefið út margar bækur á hún þegar ótal aðdáendur og nokkuð öruggt er að fjölga á eftir í þeim hópi. Spurð um velgengnina segir hún: „Áður en fyrri bækur mínar komu út var ég algjörlega að fara yfir um. Ég var eins og hauslaus hæna í bæði skiptin. Ég vissi að ég gæti ekki unnið meira í bókunum en fannst þetta samt ekki vera nógu gott. Frá mínum bæjardyrum séð hefur þetta allt gerst hægt og rólega. Allt í einu segir fólk: Vá, hvað þetta er að ganga vel. Ég heyri mjög sjald- an hvað fólk er að segja úti í bæ. Ég heyri frá vinum og fjölskyldu en það er ekki endilega réttur mælikvarði hvað fólki sem stendur manni mjög nærri finnst. Ég er afskaplega þakklát fyrir plássið sem er búið að gefa mér. Ég reyni að gefa til baka því það eru f leiri ungar konur sem eiga líka skilið pláss. Ef maður tekur bara plássið og gefur ekki til baka þá held ég að maður lokist inni.“ Togstreita milli ég og þú „Það er hluti af mannlegu eðli að vilja verja sig.“ FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Fríða Ísberg sendir frá sér nýja ljóða- bók þar sem meðal annars er fjallað um tvískiptingu. Segist þakklát fyrir plássið sem hún hefur fengið. Vinnur nú að skáldsögu. Leiklestrafélagið í sam-v innu v ið Þjóð-l e i k h ú s i ð o g Kristbjörgu Kjeld, stendur fyrir viða- mik illi dagsk rá í Þ jó ðl e i k hú s - k ja l l a r a nu m á næstu vikum. Þrjú verk Guðmundar Steinssonar verða leik lesin en verk- efninu er ýtt úr vör með sérstöku kvöldi þar sem lífi og starfi Guðmundar eru gerð skil. Fjöldi listamanna ætlar að heiðra minningu skáldsins með þessum hætti. Guð- mundur Steinsson var fæddur 19. apríl 1925 en lést 15. júlí 1996. Hann var einn helsti leikritahöfundur á Íslandi á ofanverðri 20. öld. Alls verða þrjú verk Guðmu nd a r lesin, Þjóðhátíð í leik- stjórn Sveins Einarssonar, Stundarfriður í leikstjórn Benedikts Erlingssonar og Kattholt í leikstjórn Stefáns Baldurssonar. Leiklestrar á helstu verkum Guðmundar Steinssonar í Þjóðleikhúskjallaranum Stundarfriður Guðmundar er eitt af hans þekktari verkum. Dagskráin 26. okt. kl. 16.00 Mælt fyrir minni skálds Lífshlaup og ferill Guðmundar Steinssonar sem leikskálds kynntur með brotum úr verkum skáldsins og viðtölum við hann og Kristbjörgu Kjeld. Leikarar og lesarar : Arnar Jónsson, Edda Arn- ljótsdóttir, Guðrún S. Gísladóttir, Kristbjörg Kjeld, Sigurður Sigur- jónsson og Sigurður Skúlason. Umsjón er í höndum Maríu Krist- jánsdóttur og Þórunnar Sigríðar Þorgrímsdóttir. Ljósameistari verður Páll Ragnarsson 27. okt. kl. 16.00 og 29. okt. kl. 19:30 Þjóðhátíð Þjóðhátið er einn af eldri leikjum Guðmundar og hefur einu sinni verið fluttur á sviði, fyrir fimmtíu árum. Þar endurspeglast andrúm eftirstríðsáranna og deilurnar um herstöðvar á Íslandi, en ofið inn í spennandi fjölskyldudrama. Leikstjóri er Sveinn Einarsson en leikarar eru Ragnheiður Elva Arnardóttir, Jakob Þór Einarsson, Guðrún Bjarnadóttir, Hlynur Þor- steinsson og Alexander Dantes Erlendsson. 31. okt. kl. 19.30 Stundarfriður 7. nóv. kl. 16.00 Kattholt Guðmundur Steinsson. MÉR FANNST MJÖG ÁHUGAVERT AÐ ATHUGA HVORT ÉG GÆTI GERT LÍTIÐ VERK SEM SNERIST BARA UM ÞESSA TOGSTREITU Á MILLI ÉG-SINS OG ÞÚ-SINS OG HVORT HÆGT VÆRI AÐ NÁ SÁTTUM ÞAR. 2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R16 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 2 3 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 0 -2 9 2 0 2 4 1 0 -2 7 E 4 2 4 1 0 -2 6 A 8 2 4 1 0 -2 5 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.