Fréttablaðið - 23.10.2019, Síða 42

Fréttablaðið - 23.10.2019, Síða 42
TÓNLIST Djasstónleikar Gwilym Simcock lék að mestu eigin tónlist á tónleikaröðinni Djass í Salnum. Salurinn í Kópavogi þriðjudaginn 15. október Hver er munurinn á djasstónlistar- manni og extrastórri pitsu? Pitsan mettar fjögurra manna fjölskyldu, en það gerir djasstónlistarmaðurinn ekki. Þessi brandari kom upp í hug- ann á tónleikum í Salnum í Kópa- vogi. Gwilym Simcock píanóleikari hélt þar einleikstónleika, og hann er einn af fremstu djasstónlistarmönn- um heims. Hafði einhver áhuga? Nei, varla. Ég taldi áheyrendur ekki sér- staklega, en þeir hafa ekki verið fleiri en fimmtíu. Það var eins og að vera á einhverri sýningu fyrir frík, og vera sjálfur eitt af fríkunum. Þeir sem heima sátu misstu af miklu. Einu sinni skrifaði ég um ónefndan djasspíanóleikara að leikur hans hafi verið stirður, tón- mótunina skort karakter; hún hafi verið of f löt, ekkert kom á óvart, ekkert djúsí, þetta hafi bara verið daufur undirleikur. Einhver mót- mælti þessu á Netinu og sagði að ég væri allt of klassískur í viðmiðum; djasspíanóleikur lyti einfaldlega öðrum lögmálum sem ég virtist ekki vera meðvitaður um. Þetta er auðvitað tóm vitleysa. Samanburðurinn við þennan ónefnda og Simcock var eins og dagur og nótt. Simcock er ekki bara einhver djassgeggjari sem spilar standarda með smá stirðu imprói af og til. Nei, hann er hámenntaður píanóleikari sem greinilega hefur hlotið gríðarlega skólun, bæði í heimi klassískrar tónlistar og djassi. Leikur hans á tónleikunum var algerlega áreynslulaus. Tónmynd- unin var lýtalaus, hún var lýrísk og fáguð; tæknin að öllu leyti fullkom- in. Hröðustu tónahlaup voru tær og nákvæm, mörkin á milli undir- og aðalraddar ávallt auðheyrileg; mis- munandi raddir í prýðilegu jafn- vægi. Samanburður við Keith Jarrett Meginuppistaðan í efnisskránni var nýútkomin plata Simcocks, Near and Now. Þar er tónlistin öll helguð ýmsum átrúnaðargoðum píanistans, mönnum á borð við Brad Mehldau, Billy Childs og Egberto Gismonti. Simcock sagði á tónleik- unum að auk þess að spila reglulega opinberlega (hann er í kvartett Pats Metheny) sinnti hann líka kennslu. Hann tæki eftir því aftur og aftur að allir væru að reyna að vera frumlegir, enginn vildi hljóma eins og einhver annar. Því væri öfugt farið á Near and Now, Simcock væri þar einmitt að semja tónlist í anda mismunandi meistara. Simcock nefndi það að hann hefði upphaflega ætlað sér að verða klass- ískur konsertpíanóleikari, og eitt af því sem hann spilaði á tónleikunum var eigin djassútgáfa á hæga kaflan- um í píanókonsertinum eftir Grieg. Það var einstaklega skemmtilegt, flæðið úr upphaflegu hljómunum í verkinu yfir í djassinn var eðlilegt, án tilgerðar. Heildarútkoman var afar falleg. Almennt talað var tónlistin á tónleikunum ekki bara „lög“ þar sem lítið gerist annað en einhver ein stemning, heldur var farið með mann í ferðalag aftur og aftur. Upp- lifunin var ekki ósvipuð því sem gerist á mörgum plötum Keiths Jarret. Framvindan, atburðarásin í tónlistinni var litrík og spennu- þrungin, hún tók óvæntar stefnur aftur og aftur. Stemningin var ætíð þrungin einhverju ósegjanlegu sem ekki verður komið orðum að; tón- listin sagði einfaldlega allt. Þetta var magnað. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Algerlega frábærir tón- leikar með dásamlegri tónlist. Fyrirmynd allra djasspíanóleikara Tækni hans var að öllu leyti fullkomin, segir gagnrýnandi um Simcock. Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur hvar@frettabladid.is 23. OKTÓBER 2019 Orðsins list Hvað? Hátíðarfyrirlestur Jónasar Hallgrímssonar Hvenær? 16.00 Hvar? Veröld, hús Vigdísar Steinunn Sigurðardóttir skáld flytur hátíðarfyrirlestur sem hún nefnir Klárlega gríðarlegur birki- þrastasveimur. Þar veltir hún fyrir sér nýyrðum í ljóðmáli nokkurra íslenskra skálda. Hvað? Að gefa náttúrunni rödd Hvenær? 17.30 Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2 Chantal Ringuet frá Quebéc City er gestarithöfundur bókmennta- borgarinnar Reykjavíkur og segir frá sér og verki sínu sem hún er að vinna hér og snertir m.a. umhverf- ismál. Viðburðurinn er ókeypis og öllum opinn. Hann er á ensku. Hvað? Bókakaffi Hvenær? 20.00-21.30 Hvar? Borgarbókasafn, Gerðubergi  Soffía Auður Birgisdóttir bók- menntafræðingur fjallar um skáldið Arnfríði Jónatansdóttur (1923–2006). Ljóðabók Arnfríðar, Þröskuldur hússins er þjöl, hefur verið endurútgefin af Unu útgáfu- húsi. Tónlist Hvað? Hádegisveisla – verk fyrir tvo flygla Hvenær? 12.15 Hvar? Salurinn, Kópavogi Píanóleikararnir Laufey Sigrún Haraldsdóttir og Sólborg Valdi- marsdóttir leika ólík verk frá mis- munandi tímabilum, meðal annars eftir Mozart og Ravel. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Hvað? Stína Ágústsdóttir á Jazz- kvöldi Múlans Hvenær? 21.00 Hvar? Björtuloft, Hörpu Stína Ágústsdóttir söngur, Carl Mörner Ringstrom gítar, Henrik Linder bassi og Jonathan Lundberg trommur. Aðgangur 2.500 krónur. Soffía Auður segir frá skáldkonu í Borgarbókasafninu í Gerðubergi í kvöld. Ykkar skemmtun - Okkar fókus! Laugavegi 69 - Sími 551-7955 www.hokuspokus.is Hræðileg skemmtun fyrir alla! Búningar, farðar, litalinsur & fylgihlutir 2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 0 -3 C E 0 2 4 1 0 -3 B A 4 2 4 1 0 -3 A 6 8 2 4 1 0 -3 9 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.