Fréttablaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 42
TÓNLIST
Djasstónleikar
Gwilym Simcock
lék að mestu eigin tónlist á
tónleikaröðinni Djass í Salnum.
Salurinn í Kópavogi
þriðjudaginn 15. október
Hver er munurinn á djasstónlistar-
manni og extrastórri pitsu? Pitsan
mettar fjögurra manna fjölskyldu,
en það gerir djasstónlistarmaðurinn
ekki. Þessi brandari kom upp í hug-
ann á tónleikum í Salnum í Kópa-
vogi. Gwilym Simcock píanóleikari
hélt þar einleikstónleika, og hann er
einn af fremstu djasstónlistarmönn-
um heims. Hafði einhver áhuga? Nei,
varla. Ég taldi áheyrendur ekki sér-
staklega, en þeir hafa ekki verið fleiri
en fimmtíu. Það var eins og að vera á
einhverri sýningu fyrir frík, og vera
sjálfur eitt af fríkunum.
Þeir sem heima sátu misstu af
miklu. Einu sinni skrifaði ég um
ónefndan djasspíanóleikara að
leikur hans hafi verið stirður, tón-
mótunina skort karakter; hún hafi
verið of f löt, ekkert kom á óvart,
ekkert djúsí, þetta hafi bara verið
daufur undirleikur. Einhver mót-
mælti þessu á Netinu og sagði að ég
væri allt of klassískur í viðmiðum;
djasspíanóleikur lyti einfaldlega
öðrum lögmálum sem ég virtist ekki
vera meðvitaður um.
Þetta er auðvitað tóm vitleysa.
Samanburðurinn við þennan
ónefnda og Simcock var eins og
dagur og nótt. Simcock er ekki bara
einhver djassgeggjari sem spilar
standarda með smá stirðu imprói
af og til. Nei, hann er hámenntaður
píanóleikari sem greinilega hefur
hlotið gríðarlega skólun, bæði í
heimi klassískrar tónlistar og djassi.
Leikur hans á tónleikunum var
algerlega áreynslulaus. Tónmynd-
unin var lýtalaus, hún var lýrísk og
fáguð; tæknin að öllu leyti fullkom-
in. Hröðustu tónahlaup voru tær og
nákvæm, mörkin á milli undir- og
aðalraddar ávallt auðheyrileg; mis-
munandi raddir í prýðilegu jafn-
vægi.
Samanburður við Keith Jarrett
Meginuppistaðan í efnisskránni
var nýútkomin plata Simcocks,
Near and Now. Þar er tónlistin öll
helguð ýmsum átrúnaðargoðum
píanistans, mönnum á borð við Brad
Mehldau, Billy Childs og Egberto
Gismonti. Simcock sagði á tónleik-
unum að auk þess að spila reglulega
opinberlega (hann er í kvartett Pats
Metheny) sinnti hann líka kennslu.
Hann tæki eftir því aftur og aftur að
allir væru að reyna að vera frumlegir,
enginn vildi hljóma eins og einhver
annar. Því væri öfugt farið á Near
and Now, Simcock væri þar einmitt
að semja tónlist í anda mismunandi
meistara.
Simcock nefndi það að hann hefði
upphaflega ætlað sér að verða klass-
ískur konsertpíanóleikari, og eitt af
því sem hann spilaði á tónleikunum
var eigin djassútgáfa á hæga kaflan-
um í píanókonsertinum eftir Grieg.
Það var einstaklega skemmtilegt,
flæðið úr upphaflegu hljómunum í
verkinu yfir í djassinn var eðlilegt,
án tilgerðar. Heildarútkoman var
afar falleg.
Almennt talað var tónlistin á
tónleikunum ekki bara „lög“ þar
sem lítið gerist annað en einhver
ein stemning, heldur var farið með
mann í ferðalag aftur og aftur. Upp-
lifunin var ekki ósvipuð því sem
gerist á mörgum plötum Keiths
Jarret. Framvindan, atburðarásin
í tónlistinni var litrík og spennu-
þrungin, hún tók óvæntar stefnur
aftur og aftur. Stemningin var ætíð
þrungin einhverju ósegjanlegu sem
ekki verður komið orðum að; tón-
listin sagði einfaldlega allt. Þetta var
magnað. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Algerlega frábærir tón-
leikar með dásamlegri tónlist.
Fyrirmynd allra djasspíanóleikara
Tækni hans var að öllu leyti fullkomin, segir gagnrýnandi um Simcock.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
23. OKTÓBER 2019
Orðsins list
Hvað? Hátíðarfyrirlestur Jónasar
Hallgrímssonar
Hvenær? 16.00
Hvar? Veröld, hús Vigdísar
Steinunn Sigurðardóttir skáld
flytur hátíðarfyrirlestur sem hún
nefnir Klárlega gríðarlegur birki-
þrastasveimur. Þar veltir hún fyrir
sér nýyrðum í ljóðmáli nokkurra
íslenskra skálda.
Hvað? Að gefa náttúrunni rödd
Hvenær? 17.30
Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2
Chantal Ringuet frá Quebéc City
er gestarithöfundur bókmennta-
borgarinnar Reykjavíkur og segir
frá sér og verki sínu sem hún er að
vinna hér og snertir m.a. umhverf-
ismál. Viðburðurinn er ókeypis og
öllum opinn. Hann er á ensku.
Hvað? Bókakaffi
Hvenær? 20.00-21.30
Hvar? Borgarbókasafn, Gerðubergi
Soffía Auður Birgisdóttir bók-
menntafræðingur fjallar um
skáldið Arnfríði Jónatansdóttur
(1923–2006). Ljóðabók Arnfríðar,
Þröskuldur hússins er þjöl, hefur
verið endurútgefin af Unu útgáfu-
húsi.
Tónlist
Hvað? Hádegisveisla – verk fyrir tvo
flygla
Hvenær? 12.15
Hvar? Salurinn, Kópavogi
Píanóleikararnir Laufey Sigrún
Haraldsdóttir og Sólborg Valdi-
marsdóttir leika ólík verk frá mis-
munandi tímabilum, meðal annars
eftir Mozart og Ravel. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Hvað? Stína Ágústsdóttir á Jazz-
kvöldi Múlans
Hvenær? 21.00
Hvar? Björtuloft, Hörpu
Stína Ágústsdóttir söngur, Carl
Mörner Ringstrom gítar, Henrik
Linder bassi og Jonathan Lundberg
trommur. Aðgangur 2.500 krónur.
Soffía Auður segir frá skáldkonu í Borgarbókasafninu í Gerðubergi í kvöld.
Ykkar skemmtun - Okkar fókus!
Laugavegi 69 - Sími 551-7955
www.hokuspokus.is
Hræðileg skemmtun fyrir alla!
Búningar,
farðar,
litalinsur &
fylgihlutir
2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
0
-3
C
E
0
2
4
1
0
-3
B
A
4
2
4
1
0
-3
A
6
8
2
4
1
0
-3
9
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K