Fréttablaðið - 28.10.2019, Blaðsíða 2
Veður
Hæg breytileg átt, en vestan 8-13
m/s á annesjum norðaustanlands.
Rignir vestanlands annað kvöld.
Hiti 0 til 4 stig að deginum, vægt
frost í á N- og A-landi. Frost víða 3
til 8 stig í nótt. SJÁ SÍÐU 16
Á MANN M.V. 4 FULLORÐNA
VERÐ FRÁ 179.900 KR.
31. OKTÓBER | 12 DAGAR
NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS/GOLF
ALICANTE
Götudanshátíð í Iðnó
Einar Örn og Hiroumi á stofnfundinum. MYND/AÐSEND
ÍÞRÓT TIR Íslenskur stuðnings-
mannaklúbbur baskneska knatt-
spyrnuliðsins Athletic Bilbao var
nýlega stofnaður. Formaðurinn er
Einar Örn Sigurdórsson, eigandi
RVK Brewing Co., og munu klúbbs-
félagar koma þar saman til þess
að fylgjast með leikjum liðsins í
spænsku deildinni.
Athletic Bilbao er lið með mikla
sögu og var eitt af sigursælustu lið-
unum á Spáni á fyrri hluta síðustu
aldar. Liðið er mjög sérstakt að því
leyti að einungis þeir sem eru af
baskneskum uppruna mega spila
fyrir það.
„Ég hef hrifist af menningu Baska
og Bilbaoborgar. Þeir Baskar sem
ég hef hitt eru ákaflega vinalegt og
gott fólk,“ segir Einar. Einar kynnt-
ist liðinu fyrir ekki svo löngu síðan
í gegnum vini og hyggst fara á sinn
fyrsta leik bráðlega. Helstu and-
stæðingarnir í Baskalandi eru Real
Sociedad en Einar segist ekki leggja
fæð á þá.
Það sem er einna athyglisverðast
við Athletic Bilbao eru tengsl liðs-
ins við menninguna. „Þeir leggja
áherslu á að leikmennirnir lesi bók-
menntir. Í liðinu er leshringur þar
sem lesnar eru baskneskar bækur,
bæði til yndisauka og til þess að
gera leikinn fallegri,“ segir Einar.
Þetta verður endurspeglað hér á
Íslandi því á fundum stuðnings-
mannaliðsins verður lesið upp úr
baskneskum fagurbókmenntum.
Liðið hefur hvorki unnið deild-
ina né bikarinn í 35 ár, en árið 1984
vann það tvennuna svokölluðu.
Síðan þá hafa þeir oftast verið í
miðjumoði en aldrei fallið. Einar
hefur fulla trú á að liðið geti aftur
keppt við risana, Barcelona og Real
Madrid.
Aðspurður um uppáhalds leik-
manninn segir Einar það vera Artiz
Aduriz, hinn 38 ára gamla fram-
herja sem raðað hefur inn mörkum
fyrir liðið á undanförnum árum.
„Þrátt fyrir að hann sé eldgamall
þá stendur hann enn fyrir sínu og
skoraði meðal annars frábært mark
úr hjólhestaspyrnu gegn Barcelona
núna í haust.“ Það mark koma á
lokamínútunum og tryggði liðinu
sigur gegn Spánarmeisturunum.
Um 20 manns hafa boðað sig í
stuðningsmannaklúbbinn. Á stofn-
fundinn mætti Hiroumi Keimatsu,
heiðursfélagi úr japanska stuðn-
ingsklúbbi liðsins, og Einar á von á
því að samstarf verði á milli þeirra,
hugsanlega varðandi ferðir á leiki.
„Mér skilst að Bilbao-ingar taki
þessum erlendu klúbbum sínum
með kostum og kynjum þegar þeir
koma í heimsókn. Við hlökkum til
þess,“ segir hann.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Tengsl fótboltans og
bókmenntanna sterk
Nýlega var stofnaður íslenskur stuðningsmannaklúbbur Athletic Bilbao. For-
maðurinn segir að menningin muni spila stóra rullu, líkt og hjá liðinu sjálfu. Hann
hefur fulla trú á að liðið geti á ný aftur keppt við risa spænskrar knattspyrnu.
Í liðinu er leshring-
ur þar sem lesnar
eru baskneskar bækur, bæði
til yndisauka og til þess að
gera leikinn fallegri.
Einar Örn Sigurdórsson, formaður
stuðningsmannaklúbbs Athletic
Bilbao á Íslandi
Æxli endir
á þróun
VÍSINDI „Til þessa hafa vísinda-
menn mest rannsakað krabba-
meinið sjálft, en það er enda-
punktur í löngu þróunarferli sem
á sér stað innan líkamans. Til að
skilja uppruna krabbameinsins
erum við að skoða heilbrigðan vef
og hvernig stökkbreytingar safnast
upp í honum áður en krabbameinið
breytir öllu umhverfinu,“ segir
Sigurgeir Ólafsson, doktorsnemi í
erfðafræði við Cambridge-háskóla.
„Allar frumur líkamans safna
stökkbreytingum eftir því sem við
eldumst og þær leiða að lokum til
krabbameins.“
Sigurgeir er einn tuttugu- og
þriggja höfunda greinar um ristil-
krabbamein sem birtist nýverið í
vísindatímaritinu Nature.
Niðurstöðurnar byggja á rað-
greiningu hundraða sýna sem
tekin voru úr ristli 42 einstaklinga.
Vísindamennirnir sýndu að stofn-
frumur í heilbrigðum ristli safna
að meðaltali 44 stökkbreytingum
á ári og að stærsti hluti þeirra er
tilkominn vegna tíðra frumu-
skiptinga í vefnum. Þá sýndu þeir
að um 1 prósent frumnanna hafa að
minnsta kosti eina þekkta krabba-
meinsstökkbreytingu og hafa
þannig stigið fyrsta skrefið í átt að
æxlismyndun. – ab
STJÓRNSÝSLA Forsætisráðherra
hefur vísað meintum leka úr Seðla-
bankanum til RÚV til lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu. Greint
var frá þessu fyrst í kvöldfréttum
Stöðvar 2 í gær.
Í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli
Samherja gegn Seðlabankanum var
óskað eftir skýringum Seðlabank-
ans á hvernig á því stóð að frétta-
menn RÚV vissu af húsleit hjá Sam-
herja árið 2012 áður en hún hófst.
Í svari Seðlabankans frá því í
apríl sagði að búið væri að kanna
tölvupósthólf seðlabankastjóra og
aðstoðarseðlabankastjóra en þar
hefði ekkert fundist sem benti til
leka.
Við frekari athugun hafi komið
í ljós að Ingibjörg Guðbjartsdóttir,
þáverandi framkvæmdastjóri gjald-
eyriseftirlitsins, var í samskiptum
við RÚV í rúman mánuð fyrir hús-
leitina. Engar trúnaðarupplýsingar
sé þó að finna í póstunum. – ab
Meintur leki til
RÚV til lögreglu
Stærsta street danshátíð ársins, Street Dans Einvígið, fór fram í Iðnó um helgina. Ýmsir gestakennarar, þar á meðal frumkvöðull í hipp-
hopp dansi frá New York, voru á staðnum. Á föstudaginn kepptu 10 til 15 ára, í gær kepptu 16 ára og eldri. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Til að skilja upp-
runa krabbameins-
ins erum við að skoða
heilbrigðan vef og hvernig
stökkbreytingar safnast upp
í honum.
Sigurgeir
Ólafsson
+PLÚS
2 8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
7
-A
B
0
C
2
4
1
7
-A
9
D
0
2
4
1
7
-A
8
9
4
2
4
1
7
-A
7
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K