Fréttablaðið - 28.10.2019, Page 9
Anylett sæng
Fyllt með Holofiber trefjum
Þyngd 1000 gr
Verð 4.990.-
Night & Day sæng
Fyllt með sílíkonhúðuðum dúntrefjum
Þyngd 1700 gr
Verð: 5.990.-
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | eddaehf@eddaehf.is | eddaehf.is
Allir velkomnir
Gámasala einungis þessa daga:
Mánud. 28. okt – föstud. 1. nóv
Opið frá kl 9-17
Einstakt tækifæri
Anylett koddi
Þriggjalaga kælikoddi með viscogeli og smáfiðri
Þyngd 800gr
Verð kr. 1.890.-
Fabilous dúnkoddi
Fylltur með 20% andadún og 80%smáfiðri
Þyngd 850gr
Verð: 2.190.-
Tilvalin
jólagjöf
Arctic dúnsæng
Fyllt með 90% andadún og 10% smáfiðri
Þyngd 950gr
Verð: 21.990.-
Thule dúnsæng
Fyllt með 90% andadún og 10% smáfiðri
Þyngd 650gr
Verð: 13.990.-
Margir á mínum aldri hafa átt ömmur og afa — og eiga kannski enn — sem
ólust upp í torfbæ. Það er semsagt
ekki lengra síðan að torfbæir voru
mjög algengur húsakostur fólks.
Þar bjó fólk við lækjarnið og fugla-
söng með kusur í haga. Kynslóð
foreldra okkar er almennt sú fyrsta
sem fæddist í stórum stíl á mölinni,
eftir að foreldrar þeirra höfðu yfir-
gefið heimahagana og flutt úr sveit
í borg. Reykjavík varð til með öllum
sínum verslunum, veitingastöðum,
úthverfum, djammi. Rokktónlist
kom. Diskó. Pönk. Fólk eignaðist
sjónvörp. Fólk fór að hafa það kósí
í krumpugöllum. Blandaði sér asna
fyrir mat. Fór til Costa del Sol. Fór
yfirum. Eða ekki. Lifði kannski bara
hamingjusamlega við aukin lífsgæði,
betri húsakost og meiri þægindi.
Keypti sér þvottavél og þurrkara,
brauðrist og vídeótæki. Horfði á
Dallas.
Ég held að það vilji stundum
gleymast hvað saga veruleikans sem
við búum við er í raun stutt. Amma
í torf bæ. Mamma á mölinni. Svo
maður sjálfur, 47 ára Reykvíkingur
uppá dag. Þessi tímaás spannar um
hundrað ár. Einhvers staðar í miðj-
unni byrja Rolling Stones að gera
allt brjálað, hár ungmenna síkkar og
hömluleysis- og uppreisnarbylgja í
krafti betri aðbúnaðar þorra fólks
fer eins og glimmersprengja um
heimsbyggðina.
Ráðherrar í stuði
Mick Jagger er ennþá hress. Sá stór-
mynnti ærslabelgur syngur enn með
Stones út um allar koppagrundir og
minnir okkur á að stuðið er ekki
búið. Hvílíkir brauðryðjendur.
Hvílíkar breytingar. Það var engin
önnur Rolling Stones til á undan
Rolling Stones. Þeir voru fyrstir. Rétt
áður en maður fæddist varð þessi
sprengja. Stuðið hófst.
Í þessu menningarsögulega sam-
hengi kýs ég að skoða fréttir síðustu
viku um það að ríkisstjórn Íslands
hyggist grípa til ráðstafana til að
einfalda alls konar regluverk. Smá í
anda rokksins — ekki mikið samt —
gáfu þau Þórdís Kolbrún og Kristján
Þór í skyn að þau vildu helst brenna
allar þessar reglugerðir þar og þá.
Ráðherrarnir sátu þó á sér. Líklega
hefði þurft að einfalda reglugerðir
áður um brunavarnir. En ég lagði
við hlustir. Mér finnst þetta svolítið
áhugavert. Ég er enginn frjálshyggju-
maður en mér finnst ég þó geta tengt
nokkuð sterkt við þetta markmið
ráðherranna. Má ekki aðeins slaka?
Spyrna varð við
Sjáiði til. Ég held að þegar fólkið
semsagt f lutti á mölina og fór að
láta meira og minna eins og brjál-
æðingar, skiljanlega — frelsinu og
nýfengnum upphituðum húsum
fegið — hafi það tekið grandvara
embættismenn og riddara réttra
verkferla nokkur ár að fatta að
þetta auðvitað gengi ekki. Það yrði
að setja öllum þessum sjálfskipuðu
byggingarmeisturum skorður.
Smiðum, pípurum og rafvirkjum.
Öllum þessum stórhuga athafna-
skáldum. Öllum þessum stóryrtu
fjölmiðlamönnum. Ungmennum.
Foreldrum. Bílstjórum. Hjólreiða-
mönnum. Partíhöldurum. Kokkum.
Gæludýraeigendum. Hótelstjórum.
Ekki gekk að undirleggja sam-
félagið fúski. Ákveða varð breidd
stiga í nýbyggingum upp á senti-
metra, dýpt svala og millibil rimla í
handriði. Kveða varð á um staðsetn-
Má slaka?
ingu motta við anddyri á vinnustöð-
um og skilgreina upp á hár muninn á
einföldum og tvöföldum romm í kók.
Annars færi hér allt í klessu.
Úrelt veröld
Ég aðhyllist svolítið Hegelískar
kenningar um að gangur sögunnar
sé eins og pendúll sem sveif last
hægt og ákveðið fram og til baka.
Undanfarin hundrað ár hefur hann
sveiflast frá tíðindalitlu torfbæjar-
líferni við lækjarnið yfir í rokk og
frjálsræði. Viðbrögðin við rokki og
frjálsræði urðu síðan viss forræðis-
hyggja. Reglugerðir voru settar. Ég
held að það sé engin ástæða til að
býsnast yfir því. Líklega þurfti að
kippa í taumana. Á einhverjum ára-
tugum hefur pendúllinn sveiflast til
baka yfir í meiri almenna yfirvegun.
Menntun hefur aukist. Upplýsingar
liggja út um allt. Við sem ólumst
upp við partíhöld fyrstu kynslóðar
á mölinni og urðum vitni að sjón-
vörpunum fara úr svarthvítu í lit, og
sáum Cliff Barnes úr Dallas koma til
landsins og tala um að það gæti verið
sniðugt fyrir fólk að fara kannski í
svokallaða áfengismeðferð til að ná
tökum á lífinu, við höfum lært eitt-
hvað á þessu öllu saman. Það þarf að
taka ábyrgð á sjálfum sér. Ekki vera
fáviti.
Ég held að gott samfélag sé frjálst
samfélag. Þar sem fólki er treyst, þar
er gott að vera. En ég held að það geti
líka meira en vel verið að samfélag sé
misvel í stakk búið að höndla frelsi.
Þá er spyrnt við. Nú er runninn upp
sá tími, líklega, að reglugerðirnar
eru margar orðnar furðulegar. Þær
eru úreltar. Þær storka skynsem-
inni. Þær aftra vel meinandi fólki.
Núna má fara að treysta meira aftur.
Fólkinu fyrir húsunum sínum, fyrir
fyrirtækjum sínum, staðsetningu
mottanna, breidd stiganna og magni
vodka í asna.
Sem enginn reyndar fær sér lengur.
Talandi um breytta tíma. Hann heit-
ir núna Moscow Mule.
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 2 8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
2
8
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
7
-B
E
C
C
2
4
1
7
-B
D
9
0
2
4
1
7
-B
C
5
4
2
4
1
7
-B
B
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K