Fréttablaðið - 28.10.2019, Blaðsíða 10
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
HETJA HELGARINNAR
Christian Pulisic
Spilar í treyju númer 22 sem við
Íslendingar tengjumst sterkum
böndum en Eiður Smári lék í sex
tímabil í þeirri merku treyju.
Hann er fæddur 18. september
1998 og á króatískan afa. Hann
segir sjálfur að það megi bera
nafnið sitt fram eins og Króatar
gera venjulega en einnig að
bandarískum sið. Hann styður
New York Jets í NFL en Phila
delphia 76ers í NBA deildinni.
Hann er frábær leik
maður en auðvitað á
hann margt eftir ólært, hann er
jú aðeins 21 árs. En hann hefur
æft vel og sýnt öllum að hann sé
góður í fótbolta. Hann sýndi það
líka á vellinum og ég vona að
þetta veiti honum sjálfstraust
fyrir komandi leiki – sem ég er
sannfærður um.
Frank Lampard
knattspyrnustjóri Chelsea
Það eru teikn á lofti um
að Lampard sé ekki sann
færður um Pulisic. Hann hefur
sagt bandaríska leikmanninum að
hann verði að bæta sig á æfingum.
„Hann hefur ekki verið að spilað
eins vel og hann hefði viljað. En
gegn Ajax var hann geggjaður og
alltaf þegar hann kom við boltann
gerðust góðir hlutir. Það er gríðar
lega gott fyrir Frank Lampard og
fjölgar í vopnabúri hans.
Owen Hargreaves
ENSKI BOLTINN Að skora hina full
komnu þrennu er ekki eitthvað
sem gerist á hverjum degi, þ.e.a.s.
að skora með hægri fæti, þeim
vinstri og með hausnum. Alls
hefur 31 leikmaður gert það á 28
tímabilum í ensku úrvalsdeildinni.
Þegar listinn er skoðaður má sjá að
kunnugleg nöfn sem höfðu marka
nef, eins og sá besti, Alan Shearer,
er ekki að finna þarna. Ekki heldur
Wayne Rooney eða Harry Kane.
Robbie Fowler gerði það þó þrisvar,
takk fyrir.
Christian Pulisic, leikmaður
Chelsea, bættist í þennan glæsilega
hóp á laugardaginn þegar hann
skoraði eftirminnilega þrennu
þó það sé hægt að deila um hvort
hann hafi skorað síðasta markið
með öxlinni eða hausnum. En hann
var frábær líkt og aðrir miðjumenn
Chelsea í leiknum.
Pulisic kom til Chelsea í janúar
frá Dortmund fyrir gríðarlega
mikinn pening og var lánaður strax
aftur þar sem hann kláraði tíma
bilið. Margir hafa beðið eftir að sjá
hvað guttinn gæti en hann hefur
verið nánast í frystikistunni hjá
Frank Lampard frá því hann kom
til liðsins. En nú leystist eitthvað úr
læðingi og stjarna hans skein skært
á Turf Moor, heimavelli Burnley.
Pulisic er fæddur 1998 í Hershey
í Pennsylvaníu þar sem eitt allra
besta súkkulaði heims rennur af
færibandinu á hverjum degi. For
eldrar hans eru Kelly og Mark sem
bæði spiluðu fótbolta í George
Mason háskólanum. Faðir hans
var stjarna í innanhússbolta, eins
magnað og það er, með Harris
burg Heat. Snemma varð ljóst að
Pulisic væri efnilegur og hann
smitaðist af fótboltaáhuganum
þegar fjölskyldan bjó í eitt ár í
Englandi. Þá var hann sjö ára.
Fjölskyldan fór á nokkra leiki í
enska boltanum, meðal annars hjá
Manchester United og Tottenham.
Hann hélt þessum áhuga og vakti
athygli út f yrir landsteinana.
Honum var boðið að æfa á Spáni,
Englandi og í Þýskalandi. Hjá Dort
mund leist fjölskyldunni best á
aðstæður og áætlanir og samdi við
félagið. Þá var Pulisic 15 ára. Faðir
hans fór með og þjálfaði yngstu
iðkendur félagsins.
Ferill Pulisics fór snemma á f lug
og í vetrarfríinu árið 2016 var hann
kallaður í aðalliðið til Thomas Tuc
hel og fór með því til Dúbaí. Þá var
hann búinn að skora 10 mörk og
gefa átta stoðsendingar í 15 leikjum
með U19 ára liðinu. Í Dúbaí þótti
hann strax sýna takta og í apríl
sama ár skoraði hann sitt fyrsta
mark fyrir félagið. Hann var þar
með yngsti erlendi markaskorar
inn í Bundesligunni og sá fjórði
yngsti frá upphafi. Hann var 17
ára og 212 daga gamall. Hann var
þrjú ár hjá Dortmund, lék 81 leik og
skoraði 10 mörk og var orðinn stór
stjarna heima fyrir. Stóru félögin
fóru að banka á dyrnar og fylgjast
með gutta og Chelsea keypti hann
í janúar á 58 milljónir punda. Hann
var dýrasti leikmaður Bandaríkj
anna.
Pulisic var æstur í að byrja feril
inn hjá Chelsea og stytti sumar
fríið sitt um viku til að koma og
hitta nýja liðsfélaga. Hann hringdi
í nýja stjórann Frank Lampard og
tilkynnti honum áætlanir sínar.
Þá var hann nýbúinn að klára
Gullbikarinn með landsliðinu þar
sem liðið tapaði úrslitaleik gegn
Mexíkó.
Lífið í ensku úrvalsdeildinni
hefur þó verið erfitt fyrir guttann
og þótt verðmiðinn sé hár og Pul
isic ein skærasta, ef ekki skærasta,
knattspyrnustjarna heimalands
ins, hefur Lampard verið spar á
að nota hann. Eftir landsleik með
Bandaríkjunum í september komu
þrír leikir í röð þar sem hann sat á
bekknum. Svo kom deildabikar
leikur gegn Grimsby þar sem hann
spilaði 90 mínútur en var síðan
settur á bekkinn gegn Brighton.
Gegn Lille í Meistaradeildinni
komst hann ekki í hópinn og eðli
lega voru menn og konur tengdir
guttanum áhyggjufullir.
En hlutirnir eru f ljótir að breyt
ast í fótbolta. Pulisic var frábær
þegar hann kom inn á gegn Ajax í
Meistaradeildinni í síðustu viku og
þrenna núna um helgina hefur sýnt
fólki hvað þessi rúmlega tvítugi
Bandaríkjamaður getur í fótbolta.
Chelsea hefur ek k i tapað í
undan förnum sjö leikjum og spila
mennska liðsins hefur þótt mjög
góð þó varnarleikurinn sé alltaf
dálítið spurningarmerki. Næst fær
Chelsea heimaleik gegn Manchest
er United í deildabikarnum áður en
liðið fer í ökuferð um London til að
kíkja á granna sína í Watford.
benediktboas@frettabladid.is
Drengurinn
frá höfuðborg
súkkulaðisins
Christian Pulisic, leikmaður Chelsea, skoraði hina
fullkomnu þrennu um helgina þegar liðið vann
Burnley. Pulisic hefur átt erfitt uppdráttar frá því
hann kom til Lundúna en sér nú fram á bjartari
tíma. Í undanförnum leikjum hefur hann sýnt af
hverju Chelsea borgaði svo mikið fyrir kappann.
31 leikmaður hefur
skorað hina fullkomnu
þrennu í ensku Úrvalsdeild-
inni. Robbie Fowler, Sergio
Aguero og Yakubu eru þeir
einu sem hefur tekist að gera
það oftar en einu sinni.
Pulisic er aðeins annar
Bandaríkjamaðurinn til að
skora þrennu í deildinni.
Hinn var Clint Dempsey
sem gerði það árið 2012.
2
8
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
7
-B
9
D
C
2
4
1
7
-B
8
A
0
2
4
1
7
-B
7
6
4
2
4
1
7
-B
6
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K