Fréttablaðið - 28.10.2019, Page 16
um heldur en hefðbundnum tann-
burstum.“ Kristín segist hafa heyrt
að sumir bregði á það ráð að taka
nælonhárin úr með töng eftir að
hafa hætt að nota tannburstann.
„Þá er hægt að setja bambusskaftið
bara út í garð þar sem það eyðist
svo upp í náttúrunni.“ Silkitann-
þræðirnir eru sömuleiðis f ljótir að
brotna niður í umhverfinu.
„Það eru rosalega margir að
reyna að minnka plastnotkun og
það eru margar leiðir til þess.
Það er lítið mál að byrja að gera
baðherbergið plastlaust,“ segir
Kristín. Það er hægt að kaupa
sjampóstykki í staðinn
fyrir sjampó í plastbrúsa,
eyrnapinna úr bambus,
100% arganolíu sem er seld
eftir vigt og svo eru komnir
svitalyktareyðar í korki. Þá
er hægt að fara með korkinn
út í garð eftir að maður er
búinn að nota hann.
Borgar sig á endanum
Þar að auki er í boði að kaupa
rakvélar úr stáli í staðinn fyrir
plastrakvélar og viðarklósett-
bursta. „Við erum komnar með
áfyllingarbar þannig fólk getur
fyllt á sjampó, hárnæringu og alls-
konar andlitskrem í sín eigin ílát.“
Kristín nefnir líka túrnærbuxur
og fjölnota dömubindi úr lífrænni
bómull, sem eru nýlega farin að
hasla sér völl á íslenskum markaði.
„Það borgar sig á endanum að
kaupa slíkt, á endanum ertu að
spara peninga með því. Við erum
líka með fjölnota bómullarklúta
og heklaða klúta til að þvo and-
litið.“
Kristín segir að vistvænar bað-
vörur séu með fáum innihalds-
efnum sem geta verið ertandi fyrir
viðkvæma húð og hár. „Við höfum
alveg heyrt að fólk með svakalega
viðkvæman hársvörð eða kannski
psoriasis-exem komi og kaupi
sjampóstykki hjá okkur af því að
það er lítið af aukaefnum í þeim.“
Á Íslandi fór verslunin Vist-vera að selja tannkrem-stöflurnar Denttabs í júní
2018. Síðan þá hafa fleiri verslanir
farið að flytja inn tannkremstöflur
sem eru upprunalega frá Þýska-
landi. Kristín Inga Arnardóttir,
einn aðstandenda Vistveru, segir
að hún hafi byrjað að nota tann-
krems töflurnar fyrir einu og hálfu
ári. „Ég fór til tannlæknis um
daginn og hann hefur aldrei áður
hrósað mér fyrir að vera með mjög
lítinn tannstein. Ég sagði honum
að ég væri að nota annað tann-
krem en vanalega, þessar töflur.
Þannig að mér finnst þær virka
vel.“
Skrýtið fyrst
Það getur verið erfitt að venjast
tannkremstöflunum fyrst en í dag
segir Kristín að sér finnist óþægi-
legra að nota túputannkrem.
„Maður setur eina töflu í munninn
og bryður hana. Svo tannburstar
maður og skyrpir í vaskinn.
Sumum finnst þetta pínu skrýtið
og eiga erfitt með að venjast þessu.
En eftir einhvern tíma fer manni
að finnast þetta þægilegra en hitt.“
Denttabs framleiða bæði tann-
kremstöflur með og án flúors sem
uppfylla skilyrði þýskra tann-
læknasamtaka um gæðatann-
krem. Tannkremstöflurnar voru
fyrst hannaðar á árunum eftir
aldamót. Vinsældir þeirra urðu
hins vegar ekki verulegar fyrr en
vitundarvakning um minnkandi
plastnotkun hófst. Hjá Vistveru
eru töflurnar seldar eftir vigt,
þannig að fólk getur komið með
eigin ílát og fyllt á. „Það þarf bara
að passa að geyma töflurnar í
lokuðu íláti, annars geta bragð-
efnin gufað upp,“ en þær eru allar
með hefðbundnu mentólbragði.
Silkitannþræðir gera gott
gagn fyrir tennurnar
Fyrir þá sem vilja gera tannhirð-
una nánast alveg plastlausa, er líka
hægt að kaupa bambustannbursta
og silkitannþráð. „Þá er skaftið
á tannburstanum úr bambus en
hárin eru oftast úr nælonefni. Það
er eiginlega vonlaust að hanna
tannbursta sem er alveg 100%
plastlaus. En það er auðvitað mun
minna plast í bambustannburst-
Gerðu baðherbergið plastlaust
Kristín segir að vistvænar baðvörur séu með fáum innihaldsefnum sem geta verið ertandi fyrir viðkvæma húð og hár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Alls kyns hlutir
fyrir rakstur úr
stáli.
Ekkert plast hér heldur bambus.
Sólrún
Freyja Sen
solrunfsen@gmail.com
Úrval af plast-
lausum baðher-
bergisvörum
hefur eflaust ekki
verið meira en
í dag, frá því að
plastið komst í
almenna notkun.
Það getur
verið erfitt að
venjast tannkrems-
töflunum en Kristín
segir að sér finnist
óþægilegra að nota
túputannkrem.
Glæsilegar danskar
innréttingar í öll
herbergi heimilisins
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán.–Fim. 09–18
Föstudaga 09–17
Laugardaga 11–15
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 M Á N U DAG U R
2
8
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
7
-C
8
A
C
2
4
1
7
-C
7
7
0
2
4
1
7
-C
6
3
4
2
4
1
7
-C
4
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K