Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.10.2019, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 28.10.2019, Qupperneq 16
um heldur en hefðbundnum tann- burstum.“ Kristín segist hafa heyrt að sumir bregði á það ráð að taka nælonhárin úr með töng eftir að hafa hætt að nota tannburstann. „Þá er hægt að setja bambusskaftið bara út í garð þar sem það eyðist svo upp í náttúrunni.“ Silkitann- þræðirnir eru sömuleiðis f ljótir að brotna niður í umhverfinu. „Það eru rosalega margir að reyna að minnka plastnotkun og það eru margar leiðir til þess. Það er lítið mál að byrja að gera baðherbergið plastlaust,“ segir Kristín. Það er hægt að kaupa sjampóstykki í staðinn fyrir sjampó í plastbrúsa, eyrnapinna úr bambus, 100% arganolíu sem er seld eftir vigt og svo eru komnir svitalyktareyðar í korki. Þá er hægt að fara með korkinn út í garð eftir að maður er búinn að nota hann. Borgar sig á endanum Þar að auki er í boði að kaupa rakvélar úr stáli í staðinn fyrir plastrakvélar og viðarklósett- bursta. „Við erum komnar með áfyllingarbar þannig fólk getur fyllt á sjampó, hárnæringu og alls- konar andlitskrem í sín eigin ílát.“ Kristín nefnir líka túrnærbuxur og fjölnota dömubindi úr lífrænni bómull, sem eru nýlega farin að hasla sér völl á íslenskum markaði. „Það borgar sig á endanum að kaupa slíkt, á endanum ertu að spara peninga með því. Við erum líka með fjölnota bómullarklúta og heklaða klúta til að þvo and- litið.“ Kristín segir að vistvænar bað- vörur séu með fáum innihalds- efnum sem geta verið ertandi fyrir viðkvæma húð og hár. „Við höfum alveg heyrt að fólk með svakalega viðkvæman hársvörð eða kannski psoriasis-exem komi og kaupi sjampóstykki hjá okkur af því að það er lítið af aukaefnum í þeim.“ Á Íslandi fór verslunin Vist-vera að selja tannkrem-stöflurnar Denttabs í júní 2018. Síðan þá hafa fleiri verslanir farið að flytja inn tannkremstöflur sem eru upprunalega frá Þýska- landi. Kristín Inga Arnardóttir, einn aðstandenda Vistveru, segir að hún hafi byrjað að nota tann- krems töflurnar fyrir einu og hálfu ári. „Ég fór til tannlæknis um daginn og hann hefur aldrei áður hrósað mér fyrir að vera með mjög lítinn tannstein. Ég sagði honum að ég væri að nota annað tann- krem en vanalega, þessar töflur. Þannig að mér finnst þær virka vel.“ Skrýtið fyrst Það getur verið erfitt að venjast tannkremstöflunum fyrst en í dag segir Kristín að sér finnist óþægi- legra að nota túputannkrem. „Maður setur eina töflu í munninn og bryður hana. Svo tannburstar maður og skyrpir í vaskinn. Sumum finnst þetta pínu skrýtið og eiga erfitt með að venjast þessu. En eftir einhvern tíma fer manni að finnast þetta þægilegra en hitt.“ Denttabs framleiða bæði tann- kremstöflur með og án flúors sem uppfylla skilyrði þýskra tann- læknasamtaka um gæðatann- krem. Tannkremstöflurnar voru fyrst hannaðar á árunum eftir aldamót. Vinsældir þeirra urðu hins vegar ekki verulegar fyrr en vitundarvakning um minnkandi plastnotkun hófst. Hjá Vistveru eru töflurnar seldar eftir vigt, þannig að fólk getur komið með eigin ílát og fyllt á. „Það þarf bara að passa að geyma töflurnar í lokuðu íláti, annars geta bragð- efnin gufað upp,“ en þær eru allar með hefðbundnu mentólbragði. Silkitannþræðir gera gott gagn fyrir tennurnar Fyrir þá sem vilja gera tannhirð- una nánast alveg plastlausa, er líka hægt að kaupa bambustannbursta og silkitannþráð. „Þá er skaftið á tannburstanum úr bambus en hárin eru oftast úr nælonefni. Það er eiginlega vonlaust að hanna tannbursta sem er alveg 100% plastlaus. En það er auðvitað mun minna plast í bambustannburst- Gerðu baðherbergið plastlaust Kristín segir að vistvænar baðvörur séu með fáum innihaldsefnum sem geta verið ertandi fyrir viðkvæma húð og hár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Alls kyns hlutir fyrir rakstur úr stáli. Ekkert plast hér heldur bambus. Sólrún Freyja Sen solrunfsen@gmail.com Úrval af plast- lausum baðher- bergisvörum hefur eflaust ekki verið meira en í dag, frá því að plastið komst í almenna notkun. Það getur verið erfitt að venjast tannkrems- töflunum en Kristín segir að sér finnist óþægilegra að nota túputannkrem. Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán.–Fim. 09–18 Föstudaga 09–17 Laugardaga 11–15 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 M Á N U DAG U R 2 8 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 7 -C 8 A C 2 4 1 7 -C 7 7 0 2 4 1 7 -C 6 3 4 2 4 1 7 -C 4 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.