Fréttablaðið - 31.10.2019, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 31.10.2019, Qupperneq 14
90 80 70 60 50 40 30 20 10 ✿ Hlutfall skóla sem svara staðhæfingum um kennslu í félags- og tilfinningafærni játandi stig og að allir skólar hafi aðgengi að slíku efni.“ Henni þykir hjálplegt að bera þessa kennslu saman við íþróttir. „Nemendur fá þrjár heilar kennslu- stundir á viku fyrir íþróttakennslu og sund. Það er sérhæfing í kennara- námi og sjálfstæð námsgrein í nám- skrá. Ekkert af þessu á við kennslu í félags- og tilfinningafærni. Við erum ekki með sérhæfingu í kenn- aranámi, við erum ekki með fastar stundir í viðmiðunarstundaskrá aðalnámskrár. Ef við viljum taka þetta fastari tökum, þá verðum við að tryggja að það sé pláss inni í menntakerfinu fyrir þetta.“ Það er ýmislegt að gerast í mál- efnum barna um þessar mundir, bendir Sigrún á, eins og viljayfir- lýsing fimm ráðherra um aukið samstarf í málefnum barna frá því á síðasta ári. Skýrslan er unnin í tengslum við vinnu starfshóps um geðrækt í skólum sem settur var á fót af heilbrigðisráðherra til að fara yfir stöðu geðræktar á öllum skólastigum og setja fram tillögur um innleiðingu geðræktarstarfs í íslensku skólakerfi. Þessi vinna er liður í geðheilbrigðisstefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda til 2020. Tilfinningar út undan „Það sem kemur fram í þessari könnun höfum við séð víða á und- anförnum árum, í ýmsum skýrslum og úttektum og þetta ætti því ekki að koma neinum á óvart. Þetta er hins vegar í fyrsta skipti sem við tökum þetta svona heildrænt saman og gerum þessa stóru úttekt á öllum skólastigum þannig að við getum fengið nokkuð góða yfirsýn yfir hvernig málum er háttað í dag,“ segir hún. Könnunin leiðir í ljós varðandi kennslu að algengast er að lögð sé áhersla á að efla bjargráð eða sjálfs- hjálp barna og ungmenna, hjálpa þeim að finna og nýta styrkleika sína og þjálfa færni þeirra til að tjá skoðanir sínar. Mun sjaldgæfara, að leikskólum undanskildum, er að börnum og ungmennum sé kennt að þekkja og skilja eigin til- finningar og annarra, finna farsælar lausnir við vanda og erfiðleikum, efla félags- og vináttufærni, styrkja líkamsmynd og þjálfa aðferðir sem draga úr streitu og auka vellíðan, svo sem slökun eða núvitund. Jákvæð skólatengsl „Það var mjög gaman að sjá að það eru ekki bara einhver atriði sem við þurfum að gera betur í þessari könnun heldur er líka margt sem er mjög vel gert. Við spyrjum um atriði sem tengjast skólatengslum og umhyggju fyrir börnum í skóla- starfi en það kemur mjög vel út. Samkvæmt mati starfsfólksins er mikil áhersla á þennan þátt í skóla- starfi á Íslandi sem er mjög jákvætt,“ segir hún. Í skýrslunni kemur fram að á öllum skólastigum er mikil áhersla lögð á vinalegt viðmót starfsfólks, að mynda jákvætt samband við sérhvert barn eða ungmenni, sýna tilfinningum þeirra samkennd og skilning, hlusta á þau og taka mark á sjónarmiðum þeirra. Svarendur í nánast öllum skólum á öllum skólastigum segja kennara leggja sig fram um að skapa jákvæðan anda í bekk eða hópi þar sem öll börn og ungmenni upplifi sig vel- komin og yfirleitt var lítill munur á skólastigum hvað þessi atriði varðar. Sigrún ítrekar að það sé mjög margt gott í íslensku skólakerfi. „En það eru ákveðin atriði sem við gætum gefið sterkari fókus. Við sem samfélag höfum alla burði til að gera það.“ Teitur Guðmundsson læknir H ei ld st æ ð áæ tlu n Sk ól an ám sk rá Ti lfi nn in ga fæ rn i Va nd am ál al au sn ir Bj ar gr áð Vi ná tt uf æ rn i Fi nn a st yr kl ei ka Lí ka m sm yn d Sl ök un /n úv itu nd Tj á sk oð an ir n Í grunnskólum er staðan yfir- leitt góð hvað varðar jafnrétti og virka þátttöku nemenda en þó er hlutfall skóla, þar sem nemendur fá val um við- fangsefni, námsaðferðir og námsaðstæður eins og kostur er, lægst á því skólastigi. Þetta er talið mikilvægt þegar kemur að sjálfræði nemenda og snertir velferð þeirra í námi. n Eins er sjaldgæfara í grunn- skólum en leikskólum að allir fái verkefni og kennslu sem hæfir getu þeirra og að fjölbreyttar aðferðir séu nýttar við kennslu. Nemendalýðræði er þó meira í grunnskólum en leikskólum og sömuleiðis stóðu grunnskólar vel þegar kom að jafnréttis- kennslu og tilliti til einstaklings- bundinna þarfa nemenda. n Framhaldsskólar standa bæði leik- og grunnskólum að baki þegar kom að gagnasöfnun um líðan og hagi nemenda, en 70% framhaldsskóla leggja fyrir árlegar nemendakannanir til að meta líðan og skólabrag á móti yfir 90% grunnskóla. n Samkvæmt skýrslunni þarf að tryggja mun betur en gert er í dag að nemendur á öllum skólastigum fái þann stuðning sem þeir þurfa vegna erfiðleika á sviði hegðunar, líðanar og félagsfærni, og að starfsfólk í skólum fái þann stuðning sem þarf til að sinna hegðun, líðan og samskiptum barna og ung- menna með farsælum hætti. n Þegar kemur að því að safna gögnum um skólabrag, líðan og félagstengsl nemenda er staðan langbest í grunnskólum en nánast allir grunnskólar í könnuninni leggja fyrir árlegar nemendakannanir, rúmlega tveir af hverjum þremur leggja einnig fyrir foreldrakannanir og nærri þrír af fjórum fram- kvæmdu tengslakannanir til að bregðast við merkjum um fé- lagslega einangrun eða útilokun meðal nemenda. n Leikskóli n Grunnskóli n Framhaldsskóli Framhald af síðu 12 Það er fátt mikilvægara fyrir einstaklinga en að geta áttað sig á umhverfi sínu, samhengi þess, hættum og áskorunum. Þeir sem finna fyrir öryggi í hugsun og gjörðum og fá staðfestingu utan frá styrkjast og finna fyrir vellíðan, sjálfstraust þeirra vex. Fullorðnir þekkja þetta vel og hafa almennt gengið í gegnum lærdómsferli þar sem þeir hafa rekið sig á og bætt þekkingu sína á því hvaða hegðun og færni getur skilað þeim ásættan- legum samskiptum og framgangi í lífinu. Börn eru einnig fljót að læra slíkt og þó mótun á hegðun og hugsun sé endalaus, getum við haldið því fram að á þeim tíma sem einstakling- ar eru hvað móttækilegastir fyrir leiðbeiningu sé skynsamlegt að reyna að hafa áhrif. Við vitum í dag að kvíði og spenna er hluti af því að vaxa úr grasi, það er eðlilegt að hafa slíkar tilfinningar. Lífið er ekki dans á rósum og það er stöðugur lærdómur. Reynsla er eitthvað sem kemur eingöngu með því að prófa sig áfram og reka sig á. Þegar einkenni líkt og kvíði eða vanlíðan taka yfir og verða í forgrunni varðandi hegðun og samskiptaform einstaklinga erum við komin í vanda sem getur reynst þrautin þyngri að leysa úr. Það er enn erfiðara þegar slíkt gerist hjá börnum eða unglingum sem hafa jafnvel ekki nægan skilning eða þroska til að átta sig á þeim. Þau þurfa því leiðbeiningu og kennslu í margvíslegu formi auk með- ferðar í sumum tilvikum. Það að skapa sterka einstaklinga sem geta tekið virkan þátt í samskiptum og mótað umhverfi sitt er f lókið viðfangs- efni og oft dynja á áföll og ófyrirséðir hlutir. Það hvernig við tökumst á við slíkar áskoranir, hvaða leiðir við veljum og hvernig við nálgumst náungann og samfélagið í kringum okkur á sama tíma mótar okkur. Það er býsna aug- ljóst að við erum ekki eins, höfum ekki sömu forsendur, sömu tækifæri né sama umhverfi eða möguleika. Það hvernig við spilum úr þeim skiptir hins vegar höfuðmáli. Það að skilgreina sig og vita fyrir hvað þú stendur er lykil- atriði í því að týna sér ekki við að fylgja bara straumnum og því sem aðrir gera. Einstaklingurinn verður að geta tekið á gagnrýninn hátt afstöðu til þess sem mætir honum og tekið ákvarðanir, staðið og fallið með þeim, sýnt auð- mýkt og haldið áfram, því lífið fer ekki í neina pásu. Margir skilgreina sig eftir þeim gildum sem þeir alast upp við, heiðar- leika, réttsýni, ábyrgð, svo dæmi séu tekin, en einnig ef slíku er ekki fyrir að fara. Menntun, peningar, staða foreldra eða fjölskyldu í samfélaginu getur líka skipt máli. Það er hins vegar alls ekki svona augljóst og eru mörg dæmi um það þegar einstaklingar fara þvert á sitt samfélagslega umhverfi og annaðhvort gera betur eða verr. Hver er sinnar gæfu smiður eins langt og það nær, sumir þurfa að hafa verulega mikið fyrir henni, aðrir ekki. Á endanum snýst þetta samt allt um það að einstakling- urinn standi á eigin fótum og geti tekist á við lífið og tilveruna. Til þess að geta það þarf hann að vita hver hann er og fyrir hvað hann stendur. Veistu hver þú ert? TILVERAN 3 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 0 -8 2 E 4 2 4 2 0 -8 1 A 8 2 4 2 0 -8 0 6 C 2 4 2 0 -7 F 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.