Fréttablaðið - 31.10.2019, Page 16
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Kaldidalur liggur milli Langjökuls og Oks og nær 727 m hæð sem gerir hann að einum hæsta fjallvegi landsins. Þetta var áður fjölfarinn reiðvegur milli Þingvalla og Húsafells en í dag er þarna ágætur hálendisvegur sem er opinn yfir
sumarmánuðina. Upp af Kaldadal er fjöldi spenn-
andi gönguleiða, til dæmis á Ok, Hádegisfell syðra og
nyrðra, Þórisjökul og inn í Þjófakrók þar sem talið er
að Fjalla-Eyvindur hafi haldið til. Þarna er líka Þóris-
dalur, dalþröng vestur af Kaldadal milli Þórisjökuls
og þess hluta Langjökuls sem kallast Geitlandsjökull.
Í Grettis sögu segir frá því þegar Grettir sterki kemur
þangað af jökli og sér þar grasi vaxnar hlíðar og jarð-
hita.
Síðar varð Þórisdalur alræmdur sem heimkynni
vætta og útilegumanna. Vildu því fæstir af honum
vita þar til árið 1664 að tveir prestar, Helgi Grímsson
og Björn Stefánsson, lögðu upp frá Húsafelli í mikla
frægðarför. Var tilgangurinn að kanna Þórisdal og
leita þar útilegumanna. Sáu þeir enga slíka og heldur
engan gróður, en við rætur litríks fjalls, sem síðar átti
eftir að verða kennt við þá, reyndust vera volgrur.
Þetta er Prestahnúkur, 1.220 m hátt fjall úr líparíti
en í því er einnig að finna vatnskennt af brigði þess,
svokallaðan perlustein. Hann finnst óvíða í heim-
inum en á Íslandi aðallega þarna og í Loðmundar-
firði. Við upphitun þenst perlusteinn út eins og popp
og hentar því vel til einangrunar í byggingariðnaði.
Voru stofnuð nokkur félög til að vinna perlustein úr
Prestahnúki á áttunda áratugnum en sem betur fer
varð ekkert framhald á þeim áformum, enda fjallið og
umhverfið allt mikil gersemi. Enn má þó sjá ummerki
um námuvegi norðan megin í fjallinu sem roföflin
keppast við að útmá.
Það er engin merkt leið upp á Prestahnúk og nokkr-
ar leiðir í boði. Flestir halda upp hlíðarnar í vestri en
forðast ber brekkurnar upp af gamla námasvæðinu
því þar eru brött og ófær gil. Undirlagið er laust í sér
og því gott að hafa göngustafi. Á leiðinni upp sjást
fallegar og litríkar jarðmyndanir og efst er frábært
útsýni yfir Þórisjökul og Þórisdal en líka Langjökul
og Ok. Auðvelt er að halda áfram eftir hrygg af
Prestahnúki yfir á Geitlandsjökul (1.400 m),
sem reyndar er frekar tilbreytingarsnauð
ganga á jökli. En í hlíðum Geitlands-
jökuls eru spennandi skriðjöklar sem
sjálfsagt er að kanna, en til þess þarf
jöklabúnað.
Í fótspor presta
og perlusteins
Prestahnúkur
séður austan af
Geitlandsjökli.
MYNDIR/ÓMB
Gengið upp skriðjökul frá Geitlandsjökli. Prestahnúkur til vinstri og Ok til hægri.
Útsýni af Prestahnúk er frábært, ekki síst til suðurs að Þórisjökli og yfir Þórisdal.
TILVERAN
3 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
0
-6
F
2
4
2
4
2
0
-6
D
E
8
2
4
2
0
-6
C
A
C
2
4
2
0
-6
B
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K