Fréttablaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 16
Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Kaldidalur liggur milli Langjökuls og Oks og nær 727 m hæð sem gerir hann að einum hæsta fjallvegi landsins. Þetta var áður fjölfarinn reiðvegur milli Þingvalla og Húsafells en í dag er þarna ágætur hálendisvegur sem er opinn yfir sumarmánuðina. Upp af Kaldadal er fjöldi spenn- andi gönguleiða, til dæmis á Ok, Hádegisfell syðra og nyrðra, Þórisjökul og inn í Þjófakrók þar sem talið er að Fjalla-Eyvindur hafi haldið til. Þarna er líka Þóris- dalur, dalþröng vestur af Kaldadal milli Þórisjökuls og þess hluta Langjökuls sem kallast Geitlandsjökull. Í Grettis sögu segir frá því þegar Grettir sterki kemur þangað af jökli og sér þar grasi vaxnar hlíðar og jarð- hita. Síðar varð Þórisdalur alræmdur sem heimkynni vætta og útilegumanna. Vildu því fæstir af honum vita þar til árið 1664 að tveir prestar, Helgi Grímsson og Björn Stefánsson, lögðu upp frá Húsafelli í mikla frægðarför. Var tilgangurinn að kanna Þórisdal og leita þar útilegumanna. Sáu þeir enga slíka og heldur engan gróður, en við rætur litríks fjalls, sem síðar átti eftir að verða kennt við þá, reyndust vera volgrur. Þetta er Prestahnúkur, 1.220 m hátt fjall úr líparíti en í því er einnig að finna vatnskennt af brigði þess, svokallaðan perlustein. Hann finnst óvíða í heim- inum en á Íslandi aðallega þarna og í Loðmundar- firði. Við upphitun þenst perlusteinn út eins og popp og hentar því vel til einangrunar í byggingariðnaði. Voru stofnuð nokkur félög til að vinna perlustein úr Prestahnúki á áttunda áratugnum en sem betur fer varð ekkert framhald á þeim áformum, enda fjallið og umhverfið allt mikil gersemi. Enn má þó sjá ummerki um námuvegi norðan megin í fjallinu sem roföflin keppast við að útmá. Það er engin merkt leið upp á Prestahnúk og nokkr- ar leiðir í boði. Flestir halda upp hlíðarnar í vestri en forðast ber brekkurnar upp af gamla námasvæðinu því þar eru brött og ófær gil. Undirlagið er laust í sér og því gott að hafa göngustafi. Á leiðinni upp sjást fallegar og litríkar jarðmyndanir og efst er frábært útsýni yfir Þórisjökul og Þórisdal en líka Langjökul og Ok. Auðvelt er að halda áfram eftir hrygg af Prestahnúki yfir á Geitlandsjökul (1.400 m), sem reyndar er frekar tilbreytingarsnauð ganga á jökli. En í hlíðum Geitlands- jökuls eru spennandi skriðjöklar sem sjálfsagt er að kanna, en til þess þarf jöklabúnað. Í fótspor presta og perlusteins Prestahnúkur séður austan af Geitlandsjökli.  MYNDIR/ÓMB Gengið upp skriðjökul frá Geitlandsjökli. Prestahnúkur til vinstri og Ok til hægri. Útsýni af Prestahnúk er frábært, ekki síst til suðurs að Þórisjökli og yfir Þórisdal. TILVERAN 3 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 0 -6 F 2 4 2 4 2 0 -6 D E 8 2 4 2 0 -6 C A C 2 4 2 0 -6 B 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.