Fréttablaðið - 31.10.2019, Page 18

Fréttablaðið - 31.10.2019, Page 18
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Agnes Sig- urðardóttir hefur allt of oft verið skilin ein eftir á ber- angri. Á þessum skamma tíma hefur okkur tekist að tryggja sömu varnir og við höfum haft um árabil varðandi salmonellu. Vitaskuld hreiðraði mikil hneykslun og gremja um sig í hjörtum ýmissa ein-staklinga þegar biskup Íslands, Agnes Sigurðardóttir, lýsti þeirri skoðun sinni í sjónvarpsviðtali að minnkandi traust til þjóðkirkjunnar megi rekja til siðrofs í samfélaginu. Þetta siðrof tengdi hún því að kristin- fræði er ekki lengur kennd sem sérstakt fag í grunn- skólum. Fólk notar ekki alltaf heppilegustu orðin. Siðrof var kannski ekki besta orð sem Agnes gat notað í þessu samhengi. Flestir hafa þó örugglega gert sér grein fyrir að með orðum sínum um siðrof var biskup ekki að segja að börn landsins væru siðlaus eða að þjóðin væri óalandi og óferjandi. Ekkert í viðtalinu gaf það til kynna og auk þess hefði það verið algjörlega úr karakt- er fyrir Agnesi að lýsa slíkri skoðun, en hún hefur ætíð talað máli kærleika og umburðarlyndis. Ýmsir kusu samt að túlka orð hennar á versta veg. Það þykir henta. Reyndar hefur það sýnt sig hvað eftir annað að Agnes má ekki tjá sig um trú og kristni án þess að ákveðnir hópar súpi hveljur og lýsi hneykslan sinni á samfélagsmiðlum. Þjóðkirkjan og biskupinn fara greinilega mjög í taugarnar á ýmsum. Agnes Sigurðardóttir er biskup landsins og það er hlutverk hennar að standa vörð um kristna trú. Það hefur hún gert af mikilli staðfestu og heldur því ótrauð áfram. Vitaskuld er biskup fylgjandi því að biblíu- sögur séu kenndar í skólum og vill sömuleiðis að þeim sé haldið að börnum á heimilum landsins. Biskupi getur ekki staðið á sama um trúaruppeldi æsku lands- ins. Þetta blasir við og ætti ekki að hneyksla nokkurn mann. Agnes hefur á embættistíð sinni reglulega fengið á sig mikla og harða gagnrýni og ekki ber mikið á því að farið sé í vörn fyrir hana. Það vekur til dæmis nokkra furðu hversu lítinn stuðning kynsystur hennar veita henni. Það er lítið gagn að því að blaðra fjálglega um mikilvægi samstöðu kvenna, það þarf að sýna hana í verki þegar þörf er á. Agnes Sigurðardóttir hefur allt of oft verið skilin ein eftir á berangri. Ekki verður annað séð en að hún taki því hlutskipti af kristilegu þolgæði. Er það vitanlega til fyrirmyndar í samfélagi þar sem kveinað er yfir minnsta mótlæti. Kirkjunnar þjónar eiga að standa keikir jafnvel þótt eitthvað fækki í þjóðkirkjunni. Það er ekki eins og kirkjur landsins standi auðar þegar kemur að skírnum, fermingum og giftingum. Fólk er stöðugt að sækja í þjónustu kirkjunnar. Það þarf ekki að vera heittrúað til þess, það getur jafnvel haft litla trúarvitund. Það kemur samt í kirkjuna. Enginn er að draga það þangað. Það er að sækja í þjónustu sem það vill fá. Þjónustu sem hvílir á kristnum gildum. Þessu eiga kirkjunnar þjónar að fagna en ekki ganga hnípnir til starfa sinna. Kirkjan á sterkan á hljómgrunn meðal landsmanna. Þannig mun það vera áfram, þrátt fyrir áköf hróp þeirra sem amast við kristinni trú. Kirkjan á ekki að sýna uppgjöf heldur fagna hverjum þeim sem gengur inn í hús hennar. Á berangri Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra Í liðinni viku bárust þær fréttir að sameiginlega EES-nefndin hefði samþykkt beiðni mína um heimild fyrir Ísland til að beita reglum um svokallaðar við- bótartryggingar varðandi salmonellu vegna innflutn- ings á svína- og nautakjöti. Þessar fréttir koma í kjöl- farið á því að í upphafi þessa árs fékk Ísland heimild til að beita sambærilegum reglum gagnvart innfluttu kjúklingakjöti, kalkúnum og eggjum. Í tryggingunum felst að við innflutning á þessum matvælum skal alltaf fylgja vottorð sem sýnir að salmonella hafi ekki greinst í viðkomandi vörusendingu. Án slíks vottorðs verður innflutningur ekki heimilaður en nágranna- lönd Íslands hafa haft þessar heimildir um árabil. Íslensk stjórnvöld hafa í áraraðir gert kröfu um þessi vottorð á grundvelli hins svokallaða leyfis- veitingakerfis sem gerir skilyrði um opinbert leyfi fyrir innflutning á m.a. kjöti. Með samþykkt Alþingis á frumvarpi mínu í júní sl. var brugðist við skýrum dómum EFTA-dómstólsins og Hæstaréttar Íslands um að leyfisveitingakerfið væri brot á skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum. Mun leyfisveit- ingakerfið því falla úr gildi 1. janúar næstkomandi. Frá samþykkt frumvarpsins hefur aðgerðaáætlun sem ég lagði fram í tengslum við frumvarpið verið fylgt eftir af festu en hún miðar m.a. að því að tryggja mat- vælaöryggi og vernd búfjárstofna samhliða þessum breytingum. Eitt stærsta verkefnið í því samhengi, auk ráðstafana varðandi kampýlóbakter sem þegar hafa verið tryggðar, var að fá heimild fyrir Ísland til að beita reglum um viðbótartryggingar varðandi salmonellu. Þessi heimild Íslands er afskaplega ánægjulegur og mikilvægur áfangi og er afrakstur mikillar vinnu sem ráðuneyti mitt hefur leitt í samstarfi við Matvæla- stofnun. Á þessum skamma tíma hefur okkur tekist að tryggja sömu varnir og við höfum haft um árabil varðandi salmonellu. Þegar við afnemum hið ólög- mæta leyfisveitingarkerfi þann 1. janúar næstkomandi munum við á sama tíma innleiða lögmætar heimildir, hinar sömu og nágrannalönd okkar beita, og byggja þannig upp sterkar varnir fyrir matvælaöryggi og vernd búfjárstofna. Lögmætar varnir Þau Aura svo á mig Borga Rukka Skipta Hörmuleg örlög Sífellt færist í vöxt að ákveðnir fjölmiðlar greini frá andláti Íslendinga í fréttum. Það er gott og blessað en breytingin er kannski sú að fjallað er um einstaklinga sem seint gætu talist þjóðþekktir. Oft er vísað í tilfinningaþrungna minningar- grein í blöðum eða á samfélags- miðlum og þá sérstaklega ef einhver frægur heldur á penna. Nýlega var greint frá því að útförum í kyrrþey væri að fjölga. Sérfræðingur vildi meina að hár kostnaður væri ástæðan en kannski er skýringin sú að fólk vilji ekki enda æviskeið sitt sem eldingaskreytt smellubeita. Drekinn eða ekki drekinn Fjölmiðlar greindu frá því í vikunni að kirkjuráð þjóð- kirkjunnar hefði samþykkt einróma að segja upp ráðningar- samningi Odds Einarssonar, framkvæmdastjóra ráðsins. Kom fram í fyrirsögnum að Oddi hefði verið sagt upp störfum og var ein ástæðan sögð samskipti hans við verkefnastjóra hjá Biskupsstofu. Oddur neitaði því opinberlega að hafa verið rekinn en sagðist kannast við að hafa fengið boð um viðræður um starfslokasamn- ing. Hann hefði þekkst það góða boð og falið stéttarfélagi sínu að semja fyrir hans hönd. Hætti hann störfum umsvifalaust og kvaðst kveðja sáttur. Eftir standa lesendur og skilja ekki alveg hver  munurinn er nákvæmlega. bjornth@frettabladid.is 3 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 3 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 0 -7 D F 4 2 4 2 0 -7 C B 8 2 4 2 0 -7 B 7 C 2 4 2 0 -7 A 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.