Fréttablaðið - 31.10.2019, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 31.10.2019, Qupperneq 30
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, sími 694 4103 Hvað finnst þér það skemmtileg- asta við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves? „Það besta við Airwaves er að finna borgina fyllast af lífi og fá tækifæri til þess að heyra frábæra og fjölbreytta tónlist. Heyra eitthvað glænýtt, heyra eitthvað kunnuglegt í nýju samhengi og auðvitað hitta skemmtilegt fólk.“ Hvernig finnst þér skemmti- legast að upplifa hátíðina? „Mér finnst gott að skipuleggja ekki of mikið og hafa rými fyrir eitthvað óvænt í dagskránni. Og hlusta eftir ábendingum frá öðrum hátíðargestum, það er aldrei að vita nema maður eignist nýja uppáhaldshljómsveit eða -f lytjanda.“ Hvað hlakkar þú til að sjá í ár? „Ég hlakka til að sjá marga af íslensku f lytjendunum, það eru fjölmargir ungir og upprenn- andi í tónlistarsenunni í dag sem vonandi munu vekja lukku á Airwaves og hrífa með sér nýja aðdáendur,“ segir Lilja Alfreðs- dóttir, mennta- og menningar- málaráðherra. Hlakkar til að sjá unga og upprennandi tónlistarmenn Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Hljómsveitin Of Monsters and Men er án nokkurs vafa einhver vinsælasta og frægasta hljómsveit Íslands. Sveitin hefur náð frábærum árangri á erlendum vettvangi, en fyrir vikið hafa landar hennar sjaldan fengið að njóta þess að sjá sveitina á sviði að undan- förnu. Síðustu tónleikar OMAM á Íslandi voru á Airwaves árið 2016 og nú snýr sveitin aftur, með nýút- gefna plötu í farteskinu, og spilar í Valshöllinni laugardagskvöldið 6. nóvember, klukkan 23.45. Góðu ári að ljúka Fréttablaðið náði tali af þeim Brynjari Leifssyni, gítarleikara sveitarinnar, og trommaranum Arnari Rósenkranz Hilmarssyni þar sem þeir voru að undirbúa sig fyrir tónleika í London. Þeir segja að platan Fever Dream, sem kom út í lok júlí, hafi verið vinsæl. „Já, þetta hefur gengið helvíti vel, við fórum beint í níunda sæti á Billboard-vinsældalistanum og lagið Alligator sló vinsældamet í Kanada, þannig að þetta hefur farið vel af stað,“ segja strákarnir. Fever Dream náði líka efsta sæti á Billboard-listanum fyrir rokkplötur, sem kom sveitinni skemmtilega á óvart. „Það er bara töff og dálítið skemmtilegt,“ segir þeir. „Við höfum aldrei litið á okkur sem rokkband beint, en við höfum reyndar aldrei velt því mikið fyrir okkur hvers konar hljómsveit við erum. Þetta kom okkur bara skemmtilega á óvart og var mjög gaman.“ Þeir segja að árið hafi verið þétt. „Við vorum að vinna í plötunni fram í mars og vorum svo í mánuð í Bandaríkjunum að hljóðblanda hana,“ segir þeir. „Svo komum við aðeins heim til að eyða tíma með vinum og fjölskyldu og æfðum stíft, áður en við fórum aftur af stað út. Þá fórum við að f lakka til að kynna plötuna og spila á einstaka tónleikum, eins og hjá Jimmy Fallon og Jimmy Kimmel og svo var æft aðeins meira.“ Tónleikaferðalagið byrjaði svo í ágúst. „Allt í einu vorum við farin að túra á fullu,“ segja Brynjar og Arnar. „Við komum varla heim fyrr en í febrúar á næsta ári.“ Radio City Music Hall stendur upp úr Of Monsters and Men hefur spilað um allan heim á mörgum stórum hátíðum og í heimsþekktum tón- leikahöllum. Brynjar og Arnar segja að ólíkir tónleikar standi upp úr af ólíkum ástæðum. „Glastonbury voru sennilega stærstu tónleikarnir. Við höfum aldrei séð svona mikið af fólki fyrir framan sviðið. Tónleikarnir í Red Rocks í Colorado standa líka upp úr,“ segja þeir, en tónleika- staðurinn er afar sérstakur, því hann er hogginn í rauða kletta. Strákarnir eiga svo auðvitað líka góðar minningar af Faktorý í Reykjavík. En það eru einir tónleikar sem þeir eru sammála um að hafi verið alveg sérstakir, það var þegar þeir spiluðu í Radio City Music Hall í New York-borg. „Þetta er mjög f lottur og svo- lítið sérstakur tónleikastaður, það er gaman að vera þarna inni og okkur hafði dreymt um að fá að spila þar, þannig að það var mjög gaman að fá að gera það. Það skemmdi heldur ekki fyrir að það var uppselt á tónleikana,“ segja þeir. „Það komu líka f lestir for- eldrar og makar að horfa á okkur spila og það var mikil fjölskyldu- stemning, sem gerist ekki oft. Það var alveg geðveikt.“ Þeir segja að það sé ekki mjög mikill munur á að spila á litlum tónleikastað eða stórum, en að þeir verði meira stressaðir eftir því sem það er færra fólk. „Þegar það eru komnir ákveðið margir verður maður minna stressaður,“ segja þeir. „En við höfum verið að spila á tiltölulega litlum tónleika- stöðum undanfarið og það er svolítið næs. Það er að vísu mun heitara og meiri sviti, en það eru allir í salnum í stemningunni, ekki bara þeir sem eru upp við sviðið, þannig að stemningin er öðruvísi.“ Spenntir að fara á nýja staði Tónleikaferðalagið sem er fram undan leggst mjög vel í Arnar og Brynjar. „Það er gaman að túra aftur eftir langa pásu og við erum að fara aftur til Ástralíu og Asíu núna yfir jólin, sem er spenn- andi. Við höfum aldrei gert það,“ segja þeir. „Við spilum í Ástralíu á gamlársdag og nýársdag og það verður mjög gaman að vera þar yfir áramótin. Við erum líka að fara að heim- sækja nýja staði í Asíu, eins og Hong Kong, Taívan og Bangkok,“ segja þeir. „Þannig að það er margt nýtt og mjög spennandi fram undan. Það er gaman að vera ekki alltaf að gera það sama.“ Stuð á Airwaves Brynjar og Arnar búa á Íslandi en samt hafa þeir ekki spilað þar síðan 2016. Þeir eru spenntir fyrir því að koma aftur á Airwaves. „Það er bara geggjað að vera að spila aftur á Íslandi, við erum öll spennt og ég held að það verði rosalega gaman að spila á f lottum tónleikum þar,“ segja þeir og bæta við að þeir séu yfirleitt með aðeins meiri stressfiðring í maganum fyrir tónleika í heimalandinu. „Mamma og pabbi verða úti í sal og maður vill standa sig fyrir þau, svo er alltaf smá stress yfir því að það komi enginn!“ segja þeir léttir. Þeir segja að tónleikagestir geti búist við miklu stuði. „Það er nú alltaf markmiðið, að það sé stuð,“ segja þeir. „Við getum lofað kon- fettíi og miklu stuði. Við spilum örugglega meirihlutann af nýju plötunni í blandi við vinsælustu lögin á hinum tveimur. Þetta verður mjög gaman!“ Lofa miklu stuði Hljómsveitin Of Monsters and Men spilar á Iceland Airwaves á laugardagskvöldinu. Þessi fræga sveit hefur ekki spilað á Íslandi síðan á Airwaves 2016 og er spennt að koma og spila lög af nýju plötunni fyrir landa sína. Sveitin gaf út plötuna Fever Dream í júlí. Þau hlakka til að spila nýju lögin á Íslandi. MYND/ALEXANDER MATUKHNO SÆ BRAUT BÚÐAG E. FAXAFEN LJÓSHEIMAR SÓ LH EIM AR G O Ð H EIM AR GLAÐHE IMAR SKIPASUNDEFSTASUND ÁSVEGU R HÓLSV EGUR DYNGJ UVEGU R LAUGARÁSVEGUR SUNNUVEGUR LANGHOLTSVEGUR DALBRAUT LAUGAT EIGUR HALLARMÚLI HÁALE ITISBR AUT EN GJA TEI GU R HÁALEITISBRAUT SAFAMÝRI STIG AH LÍÐ LISTAB RAUT SUÐURHLÍÐ BE YK. REYNIHL. BÚSTA ÐAVEG UR KRÍNGLUM ÝRARBRAUT SLÉ TTU VE GU R KJARRV.M ARK.V. FO SSV OG SVE GU R ÁLAND ESPIG ERÐI FURUG ERÐI HLYNG ERÐI SELJUG ERÐ I VIÐ JUG . ÁLMG ERÐI HV AM M SG . BR EK KU G ER Ð ISTÓ RAG ERÐ I H ÁALEITISBRAUT HVAS SALEI TI EFSTALEITIM IÐ LEITI OFANLEI TI NEÐ STAL. SÍÐUMÚLI ÁRMÚLI SUÐURLANDSBRAUT VE G M ÚL I GNOÐAVOGUR SKEIFAN G RENSÁSVEG UR AKURG ERÐ I DR EK AV OG UR SE LM ÚL I FELLS MÚLI LERKIHL. KLIFVEG. KLEIFARV. SMÁA G. VEÐU RST OFUV EGUR KRING LAN VÍ ÐI HLÍ Ð HO LT AV EG UR SKÁ L AGERÐI B STU R B R Ú N SÆ VIÐ ARSUND ENGJAVEGUR H ÁALEITISBRAUT SLÉ TTU V. B IR K IHL ÍÐ SÆVIÐARSUND HEIÐARGERÐI M .V . EFSTASUND SKIPASUND ENGJ AVEG UR 39 29 23 16 22 REYKJAVIK NOV 6 —— 9 2019 ott að vita! ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG MIÐASALA Á ICELANDAIRWAVES.IS OG Í APPINU. Þú getur nálgast armbandið í ráðhúsinu frá og með 4. nóvember. Mundu kvittun og skilríki. Einn miði veitir þér aðgang að öllum tónleikum - Meira en 150 hljómsveitir Airwaves Pro ráðstefnan fer fram á fimmtudaginn 8. og föstudaginn 9. nóvember Þú getur hlustað á hljómsveitirnar á Spotifylista Iceland Airwaves 2019 10% afsláttur af mat, drykk, vörum og afþreyingu fyrir miðahafa – 20% fyrir Airwaves Plus miðahafa Takmarkað magn af dagpössum í boði. 2 ICELAND AIRWAVES 3 1 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 3 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 0 -8 C C 4 2 4 2 0 -8 B 8 8 2 4 2 0 -8 A 4 C 2 4 2 0 -8 9 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.