Fréttablaðið - 31.10.2019, Side 48

Fréttablaðið - 31.10.2019, Side 48
BÍLAR VW frumsýndi nýja kynslóð VW Golf í síðustu viku í höfuð­stöðvum sínum í Wolfsburg og þó að útlit bílsins sé engin bylting segja hönnuðir VW að upp­ lýsingakerfi bílsins sé það og meira til. Mælaborðið er nú að mestu leyti stafrænt sem er óvanalegt í þessum stærðarf lokki. Volkswagen hefur sterkar stoðir í þessum bíl því að Golf er söluhæsti bíll Evrópu og hefur verið í fararbroddi í fjóra ára­ tugi og selst í meira en 35 milljónum eintaka. Bíllinn kemur á markað í Evrópu í desem ber en á Íslandi á nýju ári. „Við fáum fyrst beinskiptu bílana upp úr áramótum en aðalsölubíllinn okkar verður auðvitað sjálfskipti 150 hestafla bíllinn í mildri tvinnútgáfu, en hann er væntanlegur með vor­ inu,“ segir Jóhann Ingi Magnússon, vörumerkjastjóri Volkswagen, í við­ tali við Fréttablaðið. „Sambærilegir bílar verða á svipuðum verðum milli kynslóða en þessar mildari tvinnút­ gáfur hækka bílinn örlítið í verði. Tengiltvinnútgáfurnar tvær verða svo kynntar næsta haust,“ segir Jóhann enn fremur. Nýja mælaborðið í Golf er nánast alveg stafrænt og gildir einu hvort um skjái eða takka er að ræða. Skjáir eru snertiskjáir og takkar með snertivirkni. Í mælaborðinu er innbyggt mótald sem tengir hann við höfuðstöðvar Volkswagen svo hægt verður að senda hugbúnaðar­ uppfærslur gegnum netið. Einnig gefur þetta möguleika fyrir eigendur bílanna að tengjast þeim í gegnum síma sína svo hægt er að sjá til dæmis hvort kveikt sé á ljósum. Sjálfvirkni í akstri nær nýjum hæðum hjá VW í nýjum Golf, en hann er fyrsti bíllinn frá fram­ leiðandanum með Car2X sam­ skiptabúnaðinum sem varað getur ökumann við hugsanlegri hættu sé hinn bíllinn búinn slíkum búnaði. Þar sem að VW Golf er vinsælasti bill Evrópu er ekkert skrýtið að VW velji Golf til að kynna þennan nýja búnað. VW Golf er einnig hálfsjálf­ keyrandi eins og það er kallað, en hann getur stýrt, aukið og minnkað hraða á þjóðvegi á allt að 210 km hraða, en ökumaður verður þó að hafa aðra hönd á stýri á meðan. Þeir sem eru svo heppnir að eiga Samsung síma munu geta opnað bílinn með símanum og loks er Alexa, hjálparhellan frá Amazon, innbyggð í nýja Golfinn. Í nýjum Golf verður hægt að velja um fimm tvinnútgáfur. Þrjár þeirra eru svokallaðar mildari tvinnútgáfur með 48V raf kerfi, beltaknúnum startara og 48V litíumrafgeymi. Þær gerðir kallast eTSI og verða með 110, 130 og 150 hestaf la bensínvélum. Einnig verða nú tvær tengiltvinn­ útgáfur í boði, önnur samtals 204 hestöf l en GTE útgáfan er nú 245 hestöf l. Ný 13 kílóvattstunda raf­ hlaða er með meira drægi eða 60 km. Vélarútgáfur verða fimm samtals, tvær þriggja strokka bensínvélar, 90 og 110 hestöfl, tvær fjögurra strokka dísilvélar sem skila 115 og 150 hest­ öflum og loks ein metanútgáfa sem er 130 hestöfl. Að sögn tæknimanna Volkswagen hefur tekist að minnka mengun vélanna talsvert og þá sér­ staklega dísilvélanna sem blása út 80% minna nituroxíði en áður. Einn­ ig hefur eyðsla dísilvélanna minnkað um 17% miðað við fyrri kynslóð. Áttunda kynslóð VW Golf frumsýnd í Wolfsburg Mesta útlitsbreytingin er á framendanum þar sem lægra húdd gerir nýju díóðuljósin þynnri. Byltingin er innandyra í nýjum Golf með nýjum 10 tommu upplýsingaskjá og nú þarf ekki lengur að tengja til að Apple Carplay virki. MYND/ VW NEWSROOM Stjórn Volkswagen Group mun hittast í vikunni með það eitt að markmiði að ákveða hvort að áætlunum um framleiðslu á Pass at í Tyrklandi verði hætt eða ekki. Ástæðan er hernaðaríhlutun Tyrkja í Sýrlandi og einnig pólitísk afskipti heima fyrir, en stjórnar­ maður hjá VW, Stephan Weil, hefur sagt að hann sé á móti byggingu verksmiðjunnar í Tyrklandi. Steph­ an Weil er einnig forsætisráðherra í Neðra­Saxlandi en þar eru einmitt höfuðstöðvar Volkswagen Group og fylkið hefur mikil ítök hjá bílafram­ leiðandanum gegnum 20% hlut sinn í fyrirtækinu. Verksmiðjan, sem kosta á 1,3 millj­ arða evra, á að verða tilbúin árið 2022 en þá mun núverandi Passat­verk­ smiðja í Emden í Þýskalandi fara að framleiða rafbíla. Ein af lausnunum sem til greina koma er að færa fram­ leiðslu á Passat til risaverksmiðju VW í Bratislava í Slóvakíu, en þar eru VW Touareg og Audi Q7 fram­ leiddir ásamt smábílunum VW Up, Seat Mii og Skoda Citigo. Áætlanir gera ráð fyrir að framleiðsla þessara smábíla muni minnka svo að hætta þurfi framleiðslu á næstu árum. Sam­ kvæmt heimildum innan VW mun þegar hafa verið ákveðið að f lytja hluta af framleiðslu Skoda Karoq til Brati slava, en til stóð einnig að fram­ leiðsla á Karoq yrði í Tyrklandi. VW hugleiðir að færa framleiðslu frá Tyrklandi Verksmiðjur VW eru mikilvægar fyrir atvinnulífið. NORDICPHOTOS/GETTY Kemur fyrst bein- skiptur en aðalsölu- bíllinn sem er 150 hestafla sjálfskiptur verður kynntur með vorinu hérlendis. Samkvæmt vefmiðlinum Auto­blog hefur Mercedes­Benz hafið innköllun á EQC raf­ bílnum vegna gallaðs bolta í mis­ munadrifi í framöxli. „Daimler AG hefur komist að þeirri niðurstöðu að á sumum EQC bílum geti bolti í mismunadrifi framöxuls hugsanlega ekki staðist kröfur um endingu. Þess vegna er ekki hægt að koma alveg í veg fyrir að boltinn geti brotnað á líftíma bílsins,“ segir í tilkynningu frá framleiðandanum. „Gallinn gæti haft áhrif á snúningsvægi til framöxuls sem leitt gæti til þess að bíllinn stöðvist skyndilega, og gæti haft áhrif á stjórnum ökutækisins, sem leitt gæti til slyss,“ segir enn fremur í tilkynningunni. Þýska við­ skiptablaðið Kfz Betrieb sem sagði fyrst frá innkölluninni segir að 1.700 EQC bílar hafi verið innkallaðir, þótt Daimler vilji ekki gefa upp hversu margir þeir eru. Alls munu 20 bílar á Íslandi verða innkallaðir vegna gallans. Að sögn Jónasar Kára Eiríkssonar, vöru­ merkjastjóra Mercedes á Íslandi, er verið að bíða eftir varahlutum svo hægt sé að hefja innköllunina. „Til­ kynning verður send eigendum og auðvitað Neytendastofu tilkynnt um málið. Engin atvik hafa komið upp varðandi þennan galla, en þetta kom upp í gæðaeftirliti fram­ leiðanda,“ sagði Jónas enn fremur. 20 Benz EQC bílar innkallaðir á Íslandi XCeed verður fyrst fáanlegur með 1,4 l bensín- vél, framdrifi og sjö þrepa DCT sjálfskiptingu. Sjálfvirkni í akstri nær nýjum hæðum hjá VW í nýjum Golf, en hann er fyrsti bíllinn frá framleið- andanum með Car2X samskiptabúnaðinum sem varað getur ökumann við hugsanlegri hættu. Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is Bílaumboðið Askja frumsýnir Kia XCeed í Kia húsinu að Krókhálsi 13 á laugardaginn klukkan 12­16. XCeed er glænýr bíll úr smiðju suður­kóreska bíla­ framleiðandans og er borgarjepp­ lingur. Forsala á XCeed í rafmagn­ aðri tengil tvinnútfærslu með 58 km drægi er þegar hafin. Hönnunin á XCeed er falleg og sportleg og mikið er lagt í innan­ rýmið. Bíllinn er með með 184 mm veghæð og ökumaður og farþegar sitja hátt í bílnum. Bíllinn er með 426 lítra farangursrými með aftur­ sætin uppi. XCeed er einn tækni­ væddasti bíllinn í sínum flokki og má þar nefna 10,25 tommu upplýs­ ingaskjá og 12,3 tommu skjá í mæla­ borði. Þá er XCeed í boði með tækni­ væddu UVO kerfi sem bætir enn frekar tengimöguleika varðandi afþreyingu og akstursupplýsingar og gefur ökumanni betra aðgengi að umheiminum og því sem er að gerast í kringum hann í akstrinum. Bíllinn er hannaður í hönnunar­ miðstöð Kia í Frankfurt í Þýska­ landi undir handleiðslu Gregory Guillaume, aðstoðarforstjóra hönn­ unardeildar Kia Motors í Evrópu. XCeed verður fyrst fáanlegur með 1,4 lítra bensínvél, framdrifi og sjö þrepa DCT sjálfskiptingu, en á næsta ári kemur XCeed í rafmagn­ aðri tengil tvinnútfærslu sem verður án efa vinsæl útfærsla. Á næsta ári mun Askja einnig fá Ceed Sports­ wagon Plug­in Hybrid. Samhliða frumsýningunni á XCeed á laugardag mun Askja opna á forpantanir á þessum tveimur tengil tvinnbílum. Áætlað drægi þeirra er 58 km á rafmagni. Kia XCeed frumsýndur í Öskju um helgina Á næsta ári kemur Kia XCeed í rafmagnaðri tengiltvinnútfærslu. 3 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R32 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 2 0 -7 9 0 4 2 4 2 0 -7 7 C 8 2 4 2 0 -7 6 8 C 2 4 2 0 -7 5 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.