Fréttablaðið - 31.10.2019, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 31.10.2019, Qupperneq 52
LEIKHÚS Stórskáldið Björn Leó Brynjarsson Borgarleikhúsið Leikstjórn: Pétur Ármannsson Leikarar: Jóhann Sigurðarson, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Hilmar Guðjónsson Leikmynd og búningar: Ilmur Stefánsdóttir Lýsing: Pálmi Jónsson Myndbandshönnun: Elmar Þórarinsson Leikgervi: Margrét Benedikts- dóttir og Ilmur Stefánsdóttir Hljóðmynd: Þórður Gunnar Þor- valdsson Heimi ld a r my nd agerða r fól k ið Rakel og Andri eru á leið djúpt inn í Amasonfrumskóginn til að leita uppi Nóbelsverðlaunahöfundinn Benedikt, sem er pabbi Rakelar. Hann yfirgaf fjölskylduna fyrir löngu síðan og lét sig hverfa inn í regnskóginn. Stórskáldið er afrakst- ur Björns Leós Brynjarssonar í starfi sínu sem leikskáld Borgarleikhúss- ins og var frumsýnt á Nýja sviði hússins fyrir stuttu. Hugmyndirnar sem Björn Leó setur fram í textanum snúa helst að fjölskyldusamskiptum, sann- leikanum og sköpunargáfu en allar rista þær grunnt. Stærsta vandamál leikritsins er slæmt handverk og veikur rammi. Frásagnir um fortíð- ina eru ósviðsræn leið til að koma upplýsingum til skila. Persónur tala hver til annarrar frekar en að tala saman, bregðast við og vinna úr. Leiktextinn tjóðrar leikarana við orðið og hefur þannig lamandi áhrif á framvinduna. Sögur skapa kannski mannveruna en enda- lausar upprifjanir eru ekki gefandi fyrir lifandi samskipti. Margar hugmyndir Jóhann Sigurðarson hefur þá sjald- gæfu hæfileika að gæða nánast hvaða texta sem er lífi með víð- feðmu raddsviði og persónu- töfrum. En honum tekst ekki að Á villigötum í frumskóginum Stærsta vandamálIð við leikritið er slæmt handverk og veikur rammi, segir leiklistargagnrýnandi Fréttablaðsins, Sigríður Jónsdóttir. gera hinn einræðuglaða Benedikt sannfærandi. Ekki farnast hinum leikurunum betur. Þau Unnur Ösp Stefánsdóttir og Hilmar Guð- jónsson beita ýmsum brögðum til að kveikja neistann á milli skötu- hjúanna en uppskera fátt. Rakel er hvatberi atburðarásarinnar en vex ekki sem persóna fyrr en undir lokin, Unnur Ösp leysir hlutverkið ágætlega en nær aldrei tangarhaldi á ókláruðum karakternum. Áhorf- endur kynnast Andra heldur aldrei og Hilmar leitar af miklum móð í skrípalæti til að kynda undir texta- Anum, slíkt dugar skammt. Ábyrgðin liggur líka hjá Pétri Ármannssyni sem leikstýrir Stór- skáldinu. Líkt og í handritinu eru hugmyndirnar margar en fáar unnar til fullnustu. Í byrjun er upp- tökuvélin lifandi hluti af sýning- unni en verður f ljótt föst við þrí- fótinn. Hreyfing og líkamstjáning leik- ara á sviðinu er of takmörkuð til að mynda togstreitu milli þremenn- inganna. Allt of oft eru allar þrjár persónurnar hreyfingarlausar og stundum tilfinningalausar á meðan farið er með textann, leikurinn fer nánast allur fram fremst á sviðinu sem fletur út alla spennu. Stílbrotin eru ekki nægilega vel útfærð og riðla framvindunni án þess að bæta ein- hverju við nema spaugpásu. Á byrjunarreit Notkun á exótík í bæði fagur- fræði og innihaldi leiksýningar krefst nákvæmni af hálfu listræna teymisins og heppnast miður vel í Stórskáldinu. Ilmur Stefánsdóttir tínir til Hawaii-skyrtur, safaríhatta og nýtískulegan samfesting til að klæða karakterana. Leikmyndina fyllir hún af gerviplöntum, líkneskj- um og basthúsgögnum. Sýnishorn úr mörgum mismunandi menn- ingarheimum sem ekki er hægt að útskýra eða afsaka með gerviver- öldinni sem reynt er að búa til. Baráttan fyrir nýrri íslenskri leikritun snýst ekki einungis um að setja á svið f leiri leikrit heldur einnig gæðI. Stórskáldið er leik- verk á byrjunarreit, efniviðurinn er til staðar en handritið þarfnast töluvert meiri vinnu. Vonandi fær Björn Leó f leiri tækifæri til að þróa sinn stíl betur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leikrit frá leikskáldi Borgarleik- hússins standast ekki listrænar kröfur. Ekki er nóg að gefa leik- skáldum ráðrúm til að skrifa innan veggja atvinnuleikhúsanna heldur verður að veita þeim aðhald, stuðn- ing og setja skýr markmið. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Ófullgerð samsuða af hugmyndum og fagurfræði. BÆKUR Kindasögur Aðalsteinn Eyþórsson og Guðjón Ragnar Jónasson Útgefandi: Sæmundur Fjöldi síðna: 118 Sögur af íslensku sauðkindinni geta varla klikkað fyrir þá sem hafa gaman af þjóðlegum fróðleik í lauf léttum dúr. Í Kindasögum rekja sagnasafnararnir Aðalsteinn Eyþórsson og Guðjón Ragnar Jónas- son einstaklega skemmtilegar frá- sagnir af sauðfé á Íslandi, sem hefur unnið sér eitthvað til frægðar. Efnið er fjölbreytt og nokkuð yfir- gripsmikið því í bókinni má finna bæði sögur af kindum í fornsögum, útigangsfénu í Tálkna, sem enn er nokkuð hitamál á Vesturlandi, og margt þar á milli. Texti bókarinnar er afar fallega skrifaður og tekst höfundum ein- staklega vel til með að endursegja frásagnirnar, sem þeir hafa ýmist tínt til úr gömlum blaðagreinum eða úr samtölum sínum við bændur landsins. Höfði frásagnir af kindum ekki til fólks getur það engu að síður skemmt sér við að lesa þjóðsagna- kenndan og hnyttinn stíl þeirra höfunda. Þá má sjá á textanum að þeir hafa haft gaman af umfjöllunar- efninu því þeir leika sér á lauf léttum nótum með frásagnirnar og þær verða ljóslifandi fyrir lesandanum. Íslenska sauðkindin hefur gegnt gríðarlega stóru hlutverki í sögu okkar Íslendinga. Hún hefur fætt okkur og klætt í gegnum aldirnar, en einnig dregið kappsfulla smala í ótrúlegar afreksferðir um óbyggðir landsins. En eins og höfundar benda á hefur þorri landsmanna misst tengingu við þennan gamla sam- ferðamann sinn. Kindin er raunar orðin flestum að hálfgerðri huldu- veru, sem bregður fyrir út um bíl- glugga í ferðum út á land. Og það er kannski það sem gerir sögurnar svo skemmtilegar, þær líkjast margar hverjar frekar gömlum þjóðsögum af huldufólki og tröllum en frásögn- um af raunverulegum atburðum. Í bókinni eru kindurnar dregn- ar fram í sínu rétta ljósi; þær eru þrautseigar skepnur, sem gefa ekk- ert eftir og láta hafa fyrir sér. Sam- hliða sögunum er svo stiklað á stóru í sögu íslensks sauðfjárbúskapar, en hann var allt annar fyrir rúmum hundrað árum en hann er í dag. Ótrúleg saga hinnar frægu rollu Herdísarvíkur-Surtlu er svo rakin og stendur hún upp úr, enda um að ræða æsispennandi frásögn af kind í útlegð, sem fangaði hjörtu lands- manna á sjötta áratug síðustu aldar. Höfundarnir fara afar vel með efnið og passa sig vel á að hafa umfjöllunina, til dæmis um sauðfé í Íslendingasögunum, ekki of fræði- lega. Hér er um að ræða laufléttar frásagnir sem eru ætlaðar fólki til a l me n n r a r d æ g r a - styttingar. Aðalsteinn og Guðjón hafa með bókinni lagt sitt af mörkum til að við- halda gamalli íslenskri sagnahefð. Þeim tekst frábærlega upp og hafa vandað val sitt á efni í bókinni, því líklega hefur verið úr nógu að velja. Þeir hafa síðan boðað útgáfu f leiri sagna af íslensku kindinni og bíðum við hin spennt á meðan þeir sanka að sér efni með ferðum sínum á sveitabæi landsins. Óttar Kolbeinsson Proppé NIÐURSTAÐA: Langþráður þjóðlegur fróðleikur í laufléttum dúr. Afar vel heppnuð bók með skemmtilegum kindasögum. Þjóðlegur fróðleikur í sauðalitunum Í bókinni eru kindurnar dregnar fram í sínu rétta ljósi; þær eru þrautseigar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 3 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R36 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 2 0 -8 7 D 4 2 4 2 0 -8 6 9 8 2 4 2 0 -8 5 5 C 2 4 2 0 -8 4 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.