Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 4

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 4
lagsmálum, mentamálum og heimilislífi manna á meðal. Nokkrir halda að fram- tíðinni verði best fyrir komið með breyt- ingum á sviði fjármálanna eða með nýja þjóðfjelagsskipulagi. Slíkar breytingar geta haft gott í för með sjer, en þær eru ekki einhlýtar. Sjerhver framför eða frelsi fyrir mann- kynið verður að vera róttæk. Maðurinn er meira en aðeins líkaminn. I sjerhverri umbótahreyfingu verður að gera ráð fyrir þroskun gáfnanna á allan hátt. Varanleg breyting fæst aðeins fyrir guð- dómlega hjálp. Jafnvel hinir lægst settu heiðingjar hafa sfna guði og eru undir áhrifum trúar sinnar. Vjer höfum oft veitt þessu eftirtekt í innstu landshlut- um Vestur- og Austur-Afríku. Vjer höf- um líka sjeð þetta allstaðar í Evrópu. Það er ekkert sem mannkynið þarf frem- ur nú en trúarlega vakningu, sem veki traust á Guði og orði hans. Engin þjóð getur staðist til lengdar, og verið sjer og öðrum til gagns, án Guðs. Af þeirri ástæðu eru þeir sem flytja boðskap fagnaðarerindisins til heiðngj- anna og allra bæði ríkra og fátækra hjer heima til hins mesta gagns. Þetta eru hinir sönnu velgjörðamenn mannkynsins. Það eru trúboðarnir í Kína og Afríku og í öðrum stöðum í heiminum, sem hafa unnið með hinni miklu hreyfingu gegn vjelamenningu nútímans, og fengið mönnum betri undirstöðu til þess að byggja á eins og augijóst er nú í dag í þessum löndum. Trúboðar vorir yfirgefa með gleði hús og heimili, vini og alt, sem þeir eiga, til þess að vinna að göfgun og frelsi annara manna. Þeir eru hópur göfugra, fórnfúsra manna og kvenna. Vinna þeirra gefur mestan arð. Þeir kenna innbyggjum landanna að fara skynsamlega með líkamann, þeir kenna þeim að vinna, þeir leiða fólkið til Jesú og uppfylla orð Meistarans: ,,Og þessi íagnaðarboðskapur um ríkið mun prje- dikaður verða um alla heimsbygðina, til vitnisburðar öllum þjóðum; og þá mun endirinn koma“. Matt. 24, 14. Nú biðjum við vini okkar hvarvetna að hjálpa oss að senda Guðs orð til hinna mörgu miljóna í heiðingjalöndunum, og á þann hátt styðja starf vort mannkyn- inu til blessunar, sem inniheldur líka skólastarfsemi vora. Allir sem trúa á Guð og sjerhver mannvinur mun með gleði styðja slíkt starf. Að þessu höfum við mætt velvilja allstaðar er vjer höf- um komið í þessari málaleitun. Og vilj- um vjer þakka það hjartanlega. Ljós yfir hið dimma meginfand. Eftir séra W. Frásaga um mannœtur, sem óskuðu eftir söngkennara. um holdsveika, sem lœknuðust og fl. Síðustu mánuðina höfum við í öllum hjeruðum af trúboðssvæði voru í Afríku sjeð augljósari vitni um kraft fagnaðar- erindisins en nokkru sinni fyr í þau 2 ár sem vjer höfum starfað að trúboðsstarfi á innri svæðum meginlandsins. Það er ekki þægilegt að vita á hverju maður ætti að byrja að segja frá. Það er líklega best að byrja með eftirfarandi reynslu þriggja innfæddra manna, sem Bls.2 H. Branson. eru við nám í trúboðsskóla vorum. At- burðurinn átti sjer stað hjá mannætum í Belgisku-Kongo, hjer um bil 125 km. frá trúboðsstöð vorri í Songa. Þessir ungu menn ferðuðust um landið og gistu í bæ við landamæri þess lands, er þeir vissu að mannætur bjuggu í. Þetta land var svo illa þokkað og hættulegt ferða- mönnum, að embætt'smenn ríkisins urðu æfinlega að hafa með sjer sveit her- manna er þeir ferðuðust þar um. Um kveldið sungu þessir ungu menn sálma, er þeir sátu í kring um bálið er þeir

x

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)
https://timarit.is/publication/1405

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.