Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 6

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 6
best að ákveða hvenær þú ætlar að segja oss ögn meira um þessi Orð“. — „Það er velkomið. Við skulum byrja að halda guðsþjónustur“. Og svo varð það úr að hann prjedikaði fyrir þeim. Árangurinn varð sá, að þessi ungi maður vann 200 af mannætum þessum fyrir Krist. Er bel- giskir embættismenn fara nú um hjerað þetta, láta þeir hermennina vera eftir heima, því í landi þessu hefir ljós fagn- aðarboðskaparins skinið, og það er jafn örugt fyrir útlendinga og Evrópumenn að ferðast þar eins og annarsstaðar í heiminum. Holdsveikir læknast. Guð notar læknastarfið á dásamlegan hátt til þess að opna fyrir útbreiðslu fagnaðarerindisins. Það sjest í Angola- landi, þar sem dr. Tong starfar, í Kongo þar sem dr. Sturges starfar og bezt í Nyassalandi, þar sem dr. Birkenstock starfar með ágætum árangri meðal hinna holdsveiku; einnig hafa læknarn- ar Erickson og Kretchmar í Bechuana- landi og dr. Huse í Pondolandi starfað með ágætum árangri. Þar fyrir utan starfar hjúkrunarfólk vort á ýmsum stöðum. Við höfum nú ágæta samastaði fyrir holdsveika bæði í Austur-Afríku og Belgisku-Kongo. Það er álitið að þessar stöðvar sje hinar bestu er til eru í Aust- ur-Aíríku. Á einum stað er verið að lækna 96 sjúklinga, á öðrum 35 og þriðja 10. Margir bíða eftir því að fá að komast að. Nokkrir hafa læknast full- komlega og farið svo heim til sín aftur, þar sem þeir segja frá því hvað Guð hafi gjört fyrir þá, er hann læknaði þá og losaði þá við þenna hræðilega sjúkdóm. Guð starfar með læknatrúboðunum dá- samlega. Óskandi að við hefðum hundr- að sinnum fleiri lækna og hjúkrunar- fólk til þess að hjálpa okkur þarna úti í Afríku meðal heiðingjanna! Menn líta enn eftir fleiri trúboðum. Hjer birtum við brjef frá þektum höfðingja, sem á heima langt inn í meg- inlandinu, þar sem við höfum enn ekki byrjað að starfa. Jeg er þess fullviss að þið munuð ekki hafa tekið á móti mörg- um brjefum frá egta Afríkubúum fyrri. Þetta brjef gefur hugmynd um orðfæri þeirra sem senda trúboðum okkar beiðn- ir um hjálp víðs vegar að. Jeg sendi Árssamkoma fyrir kristniboða vora í Manschuriet. Sá, sem stendur fremstur lengst til vinstri, er leiðtogi starfs vors í Austur-Asíu, séra I. H. Evans; til hægri fyrir framan hann situr kona F. M. Larsens kristniboða, séra Bernhard Petersen og kona hans, og á miðri mind- inni sjest N. Dahlsen kristniboði og kona hans með sitt bamið hvert i fanginu. Bls. 4

x

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)
https://timarit.is/publication/1405

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.