Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 10

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 10
Búddha til þess að fara inn á heimili kristins trúboða“. Þeir fundu hann þar hvað eftir annað. Þeir báðu hann að ltoma með sjer og yfirgefa hina kristnu, en það vildi hann ekki. Þá grýttu þeir húsið. En þrátt fyrir alla mótstöðu sem maður þessi mætti gekk hann Kristi á hönd. Trúboði vor útvegaði honum venjuleg föt stað klæða þeirra, sem hann bar, til þess að menn þektu hann ekki og nú er hann skírður til kristinnar trúar. Frá mannlegu sjónarmiði eru erfið- leikarnir í' Indlandi óyfirstíganlegir. Við berjumst gegn óvini, sem hefir ríkt svo öldum skiftir. Þar eru óteljandi Moskur Múhameðstrúarmanna og musteri Hin- dúa. Þær eru sem kastalar, sem óvinur- inn hefir átt í mörg ár. Þar eru ennþá 225 miljónir manna, sem við höfum ekki starfað fyrir. Það er ekki undarlegt þótt Indland sje kallað „Kastali heiðninnar“, því það er það virkilega. Samt vinnum við með árangri þar. Nokkrar fróðlegar tölur. Þessar tölur uppörfa oss mjög, sem störfum í Indlandi, þar sem sálir vinn- ast, þó ekki sje það í hópum, heldur fyrir þolgæði í starfi einstaklinganna fyrir einstaklinga. Eftir 24 ára starf í Suður-Asíu höfðum við 33 söfnuði með 1097 meðlimum. En hin síðustu átta ár síðan 1920 höfum við 38 nýja söfnuði með 1589 meðlimum, svo að nú eru saf i- Sjúkrahús og fjö klíník í byggingu í Naraspar, þar sem dr. A. E. Clark byrjar stafsemi sem læknir og kristniboði. aðarmeðlimir vorir þar 2686. Með öðrum orðum árið 1920 (eftir 24 ára starf- semi) höfðum við skírt einn af 304,000 íbúum. En nú höfum við einn af 124,000 íbúum, Við erum Guði þakklátir hvað hann hefir gjört hjer í Indlandi, í sjálf- um kastala heiðninnar“; hann vinnur með oss til þess að safna mönnum í ríki sitt. Þúsundir Múhameðs kalla á Krist. Trúboði W. E. Read, London skrifar: Fyrir nokkrum árum var enginn trúboði í innri hluta Abessiníu. Zakarías höfð- ingi snjerist frá Múhamedstrú til hins sanna Guðs. Hann hafði lítið ljós, en hann tók með gleði á móti því sem Guð vildi gefa honum. Hann var fjölkvænis- maður. Er hann snerist sendi hann allar konurnar frá sjer, nema eina. Hann sagði þjóð sinni að einhverntíma mundu koma hvítir trúboðar með hið rjetta fagnaðar- erindi. Hann sagði að þeir menn gætu vitað um hvort um hina rjettu væri að ræða á því að þeir mundu tala um að endurkoma Krists væri fyrir dyrum. I dag eru milli 10 og 13 þúsuind, sem ný snúnir eru frá Islam er vænta hjálp- ar frá oss. Þeir biðja innilega um kenn- ara, svo að þeir fái betri hugmynd um Guð. Ættum við að vera þröskuldur í vegi þeirra að ljósi fagnaðarerindisins? Frá Singapur höfum við fengið eftir- farandi skýrslu. frá trúboða L. V. Finster: „Á Sumatra skírði jeg einn Múham- eðstrúarmann með konu hans, er hafði tekið á móti ljósi fagnaðarerindisins. I mörg ár höfðu þau sótt vel veislur og hátíðir Múhameðstrúarmanna, en þau fundu ekki frið í hjörtum sínum. Mað- urinn kyntist einum af trúboðum vorum, og eftir að hafa rannsakað Ritninguna í marga mánuði ákvað hann að hlýða henni. Er hann sagði konu sinni frá þessu varð hún hrædd og sagði fjöl- skyldu sinni frá því. Þeir tóku hana frá manninum og það leit út fyrir að hjóna- skilnaður mundi eiga sjer stað, svo fram- rrlega sem maðurinn hjeldi fast við hina Bls. 8

x

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)
https://timarit.is/publication/1405

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.