Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 14

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 14
hljótt um sig, meðan hún bæði til Guðs fyrir barninu. Á meðan hún bað til Guðs um að opinbera mátt sinn og gefa barn- inu lí'f, ef það gæti verið nafni hans til dýrðar, opnaði barnið augun og settist upp. Svo sagði hún við fólkið: ,,Þið megið nú fara heim, því þið þurfið ekki að grafa þetta barn“. Nokkr- um dögum síðar var drengurinn full- frískur og ljek sjer sem áður. Fólkið var alveg undrandi og sagði: ,,Slíkt höf- um við aldrei sjeð áður. Guðir vorir hafa eyru en heyra ekki. Þeir hafa augu en sjá ekki. Guð þessarar konu heyrir og svarar bænum“. Nú leyfði þorp þetta hinu frelsandi fagnaðarerindi um Jesúm Krist — þann eina er getur gefið líf — aðgang. Þar sem enginn læknir er. Trúboði G. C. Nickle skrifar á þessa leið: „Ekki alls fyrir löngu ferðaðist jeg um Huila-ríkið, í Mið-Columbia og hafði nokkur tæki með mjer til þess að hjúkra sjúkum á þeim stöðum sem ekki eru spítalar eða læknar. Margir komu til vor og við heimsóttum þá sem ekki voru ferðafærir. Við bjuggum um þá og gerðum minni háttar skurði. Og hversu þakklátt var ekki fólkið fyrir þessa hjálp“. Það yrði altof langt að prenta allar þær skýrslur sem koma af starfsvæðun- um. Allir biðja um hjálp til starfsins á þessum fjarlægu stöðum. Læknastarfið í Abesslníu. Læknastarfinu í Abessiníu hefirfleygt áfram. Dessie er töluvert stór bær, hjer um bil 20 daga ferð frá Addis Abeba, og þar var valinn höfuðaðsetursstaður lækningastarfsins. Með hjálp þeirri er hin konunglega hátign Ras Taffari hinn nýkrýndi konungur í Abessinlu veitti oss, gátum við fengið landspildu í miðju landinu. Þar er ágætis vatn og nóg til þess jafnvel að vökva garðinn í þurkatíð. Hreint vatn er ómetanleg blessun í hita- Bls. 12 beltinu, þar sem erfitt er að ná vatni þótt grafið sje djúpt. Það er nú hjer um bil eitt ár síðan að dr. Bergman flutti til Dessie. Á þeim tíma hefir læknirinn haft nóg að gjöra að byggja hús og spítala og aðrar nauð- synlegar byggingar, Fyrir skömmu flutti fjölskyldan inn í hið nýja hús, meðan á byggingunni stóð bjó fjölskyldan í tjaldi. Spítalinn er nú bráðum fullgjör. Líti maður til hinna mörgu erfiðleika, þá er það undravert hve dr. Bergman hefir verið fljótur að koma öllu þessu í kring. Þar eru engir timburkaupmenn, þar sem hægt sje að fá tilbúið efni af öllum tegundum. Sá sem byggir hús þar verður að taka efnið í skóginum. Hinir innfæddu eru fljótir að læra alla ljettari vinnu, en það þarf góða stjórn og mikla þolinmæði að nota vinnu margra inn- fæddra manna, svo að verulegt gagn verði að. Læknirinn hefir haft mikið og erfitt verk að sjá um alt þetta, en Guð hefir blessað hann og gefið góðan árang- ur af starfi hans. Þegar spítalinn er fullgjör mun hann vera 75,000.00 kr. virði, enda þótt vjer höfum ekki beinlínis þurft að leggja fram nema helming þessarar upphæðar. Mismunurinn er frá góðvilja konungsins og þeim er unnið hafa kauplaust. Ras Taffari hefir gefið oss landsvæðið, sem og alt byggingarefni, sem og peninga til þess að reisa sjálfan spítalann. Vjer höfum 5 aðalstöðvar í Abessiníu. Lækna- stöðin er ein hin besta og sýnir að vel hefir verið hugsað fyrir framkvæmdum. Hún bendir til hverjir hafa verið þarna að verki og sýnir eðli boðskaparins sem við flytjum. Vegna hins mikla og margbreytta starfs á meðan verið er að koma upp húsum hefir dr. Bergman reynt að komast hjá þvi að starfa að lækningum þangað til spítalinn yrði fullgjör. Samt sem áður hafa margir sjúklingar fengið hjálp. Ný- lega var komið með ungan mann er hafði fótbrotnað, til læknisins. Það var komin

x

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)
https://timarit.is/publication/1405

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.