Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 7

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 7
þessa beiðni áfram til ykkar. Hún hljóð- ar svo: „Jeg bið um trúboð ykkar. Jeg þarfn- ast trúboðs ykkar í landi mínu, til þess að börn mín og þegnar geti fengið að þekkja hinn sanna Guð. Mjer þykir vænt um að heyra að þjer eruð ekki hirðu- lausir um land mitt og hafið gert ráð- stafanir til þess að trúboðið komi þangað síðar. Jeg vona að þjer hættið ekki við það, þið, sem prjedikið Guð, hugsið um þjóð mína, sem hrópar á fagnaðarerind- ið. Svíkið okkur ekki, heldur færið oss boðskapinn frá Guði nú þegar í ár. Við stöndum við veginn og horfum eftir yður“. Þessi maður stendur enn og horfir fram á veginn, því við erum ekki komnir til hans ennþá. Við höfðum ekki pen- inga, til þess að byggja þar trúboðsstöð og engan trúboða til þess að senda, og þessi höfðingi ræður yfir 75.000 manns. í Norður-Rodesiu hefir fagnaðarer- indið til skamms tíma verið óvelkomið, en nú er þar einnig farið að biðja um kennara. 1 næstum 25 ár höfum við starfað nálægt þessu hjeraði og gengið erfiðlega, en nú höfum við 11.000 manns, sem hafa tekið á móti fagnaðarboð- skapnum. Nú hafa þeir bygt stóra kirkju og skólahús fyrir eigin peninga, þar sem þeir tilbiðja Guð og taka á móti kenslu. Eina kirkju er nú verið að byggja sem mun rúma 700 manns. Þann- ig starfar Guð með söfnuði sínum. Síarfsbyrjun meðal mannæía......... Langt inn í Mið-Afríku hinni frönsku hefir trúboði R. L. Jones og kona hans stofnsett vora fyrstu stöð meðal þjóðar sem telur 11 miljónir íbúa. Þau búa í útjaðri stórrar borgar og sveitamenn þar eru ennþá mannætur. Innfædd kona var jetin þar nýskeð ekki meira en 10 km. frá stöðinni. Er nokkrir af hinum innfæddu voru að viðarhöggi, til þess að smíða úr þakið á hús trúboðans, urðu þeir að flýja undan mannætum þessum til trúboðsstöðvarinnar. Þessir djörfu trúboðar þakka Guði fyrir varðveitslu hans og þeir eru hamingjusamir í starfinu og segja oss að þeir hafi nú 100 lærisveina á skólanum, er þeir byrjuðu á skömmu eftir að þeir settust þarna að. Þrjú þúsund sálir unnar. Síðastliðið ár hefir meðlimatala við hinar suðurafrí'könsku stöðvar vorar stigið um 3000, svo nú höfum við þar 10000 meðlimi. Og ef við reiknuðum með þá sem eru í undirbúningsdeildum vorum og sem líta sjálfir á sig sem með- limi, mætti talan hækka um 6000 svo að unnir yrðu þetta ár 9000. I einni trú- boðsskýrslu stendur: „Ef við reiknum 8 tíma til vinnu á dag (og fimm virka daga í vikunni) þá höfum við unnið eina sál á hverjum klukkutíma hina síð- ustu 8 mánuði“. Jeg býst við að þetta geti talist eins dæmi. í suðurhluta Nyassalands fóru allir kennarar í fríi sínu út í trúboðsstarfið. Þessir innfæddu kennarar störfuðu á 50 stöðuin, og árangurinn af starfi þeirra var 2400 sálir unnar fyrir Krist. Við getum ekki útskýrt þetta á ann- an hátt en að Guð úthellir anda sínum yfir þetta fólk í ríkum mæli, og að hjörtu þessa fólks taka á móti gjöfinni og hætta við heiðnar venjur, er það finn- ur frelsið í Kristi. Það eru svo margir sem snúa sjer til Guðs á vorum dögum, að vandaspurningin verður: Hvernig eigum við að sjá öllu þessu fólki fyrir nægri uppfræðslu —- hvernig eigum við að fara að því að útvega því kenni- menn? Við lifum á þeim tíma, að kraftur Guðs opinberast. Eigum við, sem kristn- ar manneskjur í heimalöndum að bregð- ast köllun vorri á slíkum tíma? Eigum við að vera hirðulaus um að senda þessu fólki fagnaðarerindið sem gjarna vill taka á móti því og sem mun glatast án þess? Bls. 5

x

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)
https://timarit.is/publication/1405

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.