Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 17

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 17
Undraverð breyting. Það eru yfir 57 ár síðan Stanley leit- aði að Livingstone og loks fann hann við Ujije við Tanganyika-vatnið. Hann var kominn að næstum óyfirstíganlegum hindrunum. Þrælaverslunin var í al- gleymingi. Það voru engir vegir, og ekki nein stjórn, engin sjúkrahús eða skólar, engir kristnir. En í dag er þessu háttað á alt annan veg. Ljós fagnaðar- erindisins hefir fengið aðgang og mörg trúboðsfjelög eru að verki. Margir söfn- uðir hafa verið settir á stofn. Þúsundir skóla verið opnaðir, og tugir þúsunda hinna innfæddu hafa tekið á móti krist- indóminum. Hjeruðunum í kringum Tanganyika- vatnið er skift í marga hluti og við störf- um aðeins í tveim þeirra enn sem komið er. Þar eru 10 ættbálkar, sem tala sitt málið hver. Vjer störfum á fimm vegu, með skólastarfsemi, heimatrúboði, hvíld- ardagsskóla, prjedikunarstarfi og lækna- starfi. Læknastarfið hefir stóran þátt í framgangi vorum. Það gjörir óvini að vinum. I tveim löndum er okkur var bannað að starfa í fengum við loks að- gang vegna læknastarfsins. Eftir að trú- boði Matthews frá Majta-trúboðsstöðinni hafði ferðast í mánuð án árangurs unn- um við loks sigur með 14 daga læknis- starfi. Eftir það bauð fólkið oss hjartan- lega velkomna. I öðru landi vildi hvorki þjóðin nje stjórnin taka á móti oss. Trú- boði Muderspach var sendur þangað, en enginn kom til hans. Þá vildi svo til, að hann frjetti af mjög sjúkum manni er bjó 12 km. frá stöðinni. Trúboðinn gekk þá þrisvar á dag til hans og hjúkraði honum. Og þetta hafði það í för með sjer, að hinir innfæddu menn fóru að bera traust til hans. Þeir tóku eftir hinu kristilega framferði hans og að hann ljet ekki litarmuninn hindra sig frá því að hjálpa þeim. Upp frá því hafðitrúboð- inn nóg að gjöra að hjálpa öllum sem komu til hans. Nú er stöðin sú orðin voldug. Stjórnin hefir gefið leyfi til þess að setja á stofn skóla, og nýlega höfum við fengið loforð fyrir stórri spildu af landi. Á fimm trúboðsstöðvum hjúkrum við árlega 40000 sjúklingum. Og á einni stöð hefir trúboðinn með konu sinni á einu ári hjúkrað 11000 sjúklingum. Er við prjedikum komum við æfinlega með beinar spurningar. Einu sinni er jeg talaði um afdrif hinna óguðlegu og spurði tilheyrendur mína hvorum þeir vildu þjóna, stóðu 200 upp til þess að lýsa því yfir að þeir vildu vera með Jesú. Þessir Indíánar, sem hafa verið villimer.n þurfa ekki lengur á þessum ölfrogum að halda eítir að hafa tekið á móti íagnaðarerindinu. Útlitið bjart eins og fyrir- heiti Guðs. Fyrir mörg hundruð árum síðan sagði vitiingurinn knúður af heilögum anda: „Kastaðu brauði þí'nu út á vatnið og eftir langan tíma muntu finna það aftur“. Viðvíkjandi trúboðsstarfi safnaðar Guðs segir hann: „Sá sæði þínu að morgni og lát hendur þínar eigi hvílast að kveldi“. Hinn frægi söngvari ísraels skrifar eftir- farandi: „Grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar, með gleðisöng koma þe'r aftur og bera kornbundin heim“. Þannig höfum við fullvissu um að eftir margra ára erfiði muni Guð gefa ávöxt. Þetta fyrirheit geta allir tileinkað sjer sem vinna að útbreiðslu Aðventboðskapar- ins. Víða þarf að leysa úr miklum erfið- leikum. Erfiðleikum, sem virðast óyfir- stíganlegir, en við verðum að halda á- fram með trúmensku að sá sæðinu full- Bls. 15

x

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)
https://timarit.is/publication/1405

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.