Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 8
Ötrúleg frá-
saga um heilag-
an Hindúa, sem
var ofsóttur af
lærisveinum sín-
um, og um prest
Buddha í Ind-
landi „kastala
heiðninnar“ sem
var hótað dauða
vegna pess hann
gjörðist kristinn.
Kastali
heiðninnar.
Morton kristniboði með útivistar-klíník sína úti á
Kaíahari-eyðimörkinni í Bechunalandi.
Eins og önnur trúboðsfjelog noium
við starfað mest í Indlandi fyrir þá sem
litið er niður á af hinum hærri scjettum.
Það eru yfir 2000 stjettir manna í Ind-
landi, þessi stjettaskifting er vissulega
mesti þröskuldurinn fyrir kristindóms-
útbreiðslu þar. Það virðist nú að þetta
muni lagast, en þó ber töluvert á stjetta-
rígnum, eins og eftirfarandi frásögn ber
með sjer:
,,í þorpi nokkru í Suður-Indlandi gekk
jeg inn á pósthús til þess að sækja póst
og kaupa frímerki. Póstmeistarinn var
af hinum allra hæstu stjettum meðal
Hindúanna. Er jeg spurði eftir frímerkj-
um tók jeg eftir að hik kom á manninn,
því að trúboðar og allir hvítir menn eru
skoðaðir sem ,,úrþvætti“. Aðstoðarmað-
ur hans var ekki við. Hann hætti við að
afgreiða og bað mig svo að bíða. Það
gátum við ekki. Hann tók þá frímerkin
upp úr skúffu, kom og lagði þau á gólf-
ið. Því næst gekk hann aftur á sama
stað og hann var og bað mig að leggja
peningana á gólfið í staðinn. Hann vildi
ekki saurga sig á því að rjetta mjer
frímerkin og taka við peningunum í
staðinn. Maður skilur ef til vill af þessu
hvað það kostar slíka menn að brjóta
af sjer slíkar venjur og gerast kristnir,
og vera svo ofsóttir á eftir.
Að snúa sjer er svipað og að rísa frá
dauðum.
Carey, hinn nafnkunni trúboði Guðs,
sem vann mjög lengi í Indlandi, sagði
að það væri eins mikið kraftaverk að
koma einum af þessum Brahma-Hind
úum til þess að snúa sjer til Guðs eins
og að reisa mann frá dauðum. En þrátt
fyrir allar hindranir höfum við náð
nokkrum þeirra.
Það gladdi oss mjög er einn þessara
manna tók á mcti Kristi. Hann átti
musteri í hjeraðinu Assum og hafði um
2000 lærisveina. En hann var ekki á-
nægður með Hindúa-trúna. Hann ferð-
aðist því frá heimili sínu til Ceylon til
þess að sjá hvort Búddha-trúin mundi
færa honum nokkuð betra, svo að hann
með því fyndi Guð. Hann var þar nokk-
urn tíma og athugaði trú Búddha til
þess ef vera kynni að hann fyndi hvíld
fyrir sál sína. Því næst ferðaðist hann
til Tíbet til þess að athuga Búddha-
trúna þar, en hún er þar ofurlítið frá-
brugðin því sem annarstaðar er kent.
Aftur varð hann fyrir vonbrigðum. Hann
ferðaðist svo til Kína og Síam, en hann
Bls. 6