Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Side 15
blóðeitrun í fótinn. Það varð að taka
fótinn af og manninum batnaði.
Vegna hinna fáu starfsmanna á þessu
svæði höfum við ekki getað veitt lækn-
inum þá aðstoð, sem hann í raun rjettri
þarf. Tvær fjölskyldur hafa nú farið
frá og nýlega varð hin þriðja að fara
vegna sjúkdóms. Þannig hafa þrjár fjöl-
skyldur tapast frá verkinu, og aðeins ein
eftir á stöðinni. Vjer vonum. að þetta
breytist bráðum til batnaðar. Fyrir
skömmu kom hjúkrunarkona frá Evrópu,
og undir eins og vegirnir verða færir
eftir regnið fer hún alla leið til Dessie.
Nýlega fengum við brjef frá ritara trú-
boðsins, þar sem hann vonast eftir að
geta brátt sent oss fjölskyldu í viðbót,
er geti tekið að sjer trúboðsstarfið í
Dessie, og læknirinn þá snúið sjer algjör-
lega að því að lina þjáningar hinna
veiku. Vjer þörfnumst bráðnauðsynlega
slíkrar fjölskyldu.
M. Sorensen.
Fagnaðarerindið vinnur sigra
í Suður-Ameríku.
Carlyíe B.
Óskir þú að sjá nokkurnveginn hvern-
ig starfinu í þágu fagnaðarboðskapar-
ins miðar áfram, verður þú að taka þjer
ferð á hendur með mjer upp til Titica-
cavatnsins hjer um bil 4000 m. yfir
sjávarmál, á landamærum Bolivia og
Peru. í kring um þetta vatn, sem er 160
km. breitt og 80 km. langt, hefir fagnað-
arerindið haft furðanlegan framgang og
nú höfum við 8000 skírða Indíána í
söfnuðinum kring um vatnið. Þessir Indí-
ánar eru duglegir og starfsamir. Ef við
biðjum einn í hvíldardagsskólanum að
standa upp og hafa yfir minnisversið, þá
standa margir upp til þess að hafa það
yfir. I kring um þetta vatnjhöfum við nú
119 trúboðsskóla með hjer um bil 5000
lærisveinum.
En starfið meðal Indíána er ekki leng-
ur aðeins við Titicaca-vatnið. Það hefir
nú náð mörg þúsund km. frá vatninu, og
nú hljómar boðskapurinn í skógunum
þar sem enginn hvítur maður hefir stigið
fæti sínum fyr. Frjettir af því hvað Guð
gjörir hefir fært oss fyrstu hugmynd um
þjóðflokka, er hvítir menn hafa aldrei
sjeð áður. Þessir Indíánar hafa þannig
fengið hinar fyrstu frjettir af menningu
heimsins í gegn um trúboða vora, sem
hafa sagt þeim frá því að Guð á himn-
Haynes.
um elskar þá og hefiri gefið son sinn til
lausnargjalds fyrir þá.
F. A Stahl, trúboði ferðaðist um 1500
km. með Indíánum sem vegvísurum og
þeir urðu beinlínis að höggva sig gegn
um skóginn til þess að ná fram til ánna
er fjellu í þá átt er hann ætlaði sjer
að fara. Því næst fór hann eftir þessum
fljótum í smábátum eða á timburflekum
yfir hina hættulegri staði alla leið til
Iquitos í austur hluta Peru. Frjettin um
að Stahl trúboði væri á ferðinni komst
eins og eftir síma langt inn í skógana
stundum hundruðum km. á undan honum.
Hver höfðinginn eftir annan, sem aldrei
hafði sjeð hann áður, komu til hans og
báðu hann: „Sendið okkur kennara
Byrjið trúboð meðal þjóðflokka vorra!“
Indíánahöfðingi vekur allan þjóðflokk
sinn.
Höfðingi nokkur kom til Stahl við
Tambofljótið. Hann kom í veg fyrir trú-
boðann og sagði: „Jeg hefi frjett um
starfsemi þína. Við megum til að fá
kennara“.
„Hvar er þjóðflokkur þinn?“, spurði
trúboðinn
„Nokkrar mílur hjer inni í skóginum“.
,,Jæja, en við höfum engann kennara,
Bts. 13