Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Síða 18
vissir um að árangurinn verður mikill.
Hugsum um starfið á hinum stóru trú-
boðssvæðum. Hugsum um Kína. Robert
Morrison starfaði í mörg ár án þess að
sjá nokkurn árangur. Svo hefir það og
gengið í öðrum löndum. Það hafa komið
tímabiL að sæðinu hefir verið sáð án
sýnilegs árangurs. Þannig hefir það
verið hjá trúboðinu í Austur-Afríku og
í Austurlöndum og annarsstaðar. Trú-
boðar vorir hafa unnið ár eftir ár í hin-
um steikjandi hita Afríku án þess að
sjá mikinn árangur. Engu að síður hafa
þeir starfað með dugnaði í trú á að Guð
mundi gefa vöxtinn.
Það er eins og nýtt tímabil sje runnið
upp fyrir okkur. Það getur ekki verið
annað en að haustregnið er farið að
falla. Er ti'úboðar vorir koma nú út á
starfssvæðin þurfa þeir ekki að bíða í
mörg ár án árangurs, því aftur og aftur
kemur það í ljós að Guð á undraverðan
hátt hefir gengið á undan og undirbúið
hjörtu fólksins til þess að taka á móti
þeim boðskap er við boðum. Á stuttum
tíma flykkist fólkið til þeirra, og það
langar ekki aðeins að vita um þennan
merkilega boðskap heldur hefir það
djúpa löngun eftir Guði og sannleika
hans. Svo var það í Austur-Afríku þar
sem starfið byrjaði fyrir löngu. Hugsum
um hið erfiða verk sem fyrri trúboðar
vorir hafa framkvæmt, við hugsum um
marga brautryðjendur vora, sem hafa
fórnað lífinu fyrir málefnið í þessum hita-
beltislöndum. Vjer sjáum grafir þeirra
er við ferðumst gegnum landið og heim-
sækjum hinar ýmsu stöðvar. Þeir ofruðu
miklu. Það var sorglegt fyrir ástvini
þeirra að þeir skyldu deyja. Og sorg-
legt fyrir foreldra og systkini heima á
ættjörðinni. En hefir fórn þeirra verið
árangurslaus? Ár eru liðin síðan. Margt
hefir breyst, og í dag hafa starfsmenn
vorir feikna framgang. Nú höfum við
spítala og skóla í hundraðatali, hærri
skóla og bókaútgáfur, er senda bækur
hinum mörgu miljónum Afríku. Og það
Bls. 16
sem mest er af þessum framförum er að
þúsundir innfæddra hafa gefið hjarta
sitt Kristi. Fórnir þær og erfiði er hinir
duglegu brautryðjendur hafa lagt á
sig eru ekki til einskis, þær bera ríku-
legan ávöxt. Þúsundir í Afríku þakka
nú hinum fyrstu trúboðum ljós það er
þeir gáfu þeim.
Hugsum um þá staði þar sem erfið-
leikarnir eru mestir, t. d. Abessiníu, Erí-
trea og hin þrjú lönd Somali á norðaust-
urströnd Afríku. Það er erfitt að vinna í
þessum löndum, en þrátt fyrir það hefir
aldrei gengið eins vel og nú. Aldrei hefir
útlitið verið jafn bjart Aðventboðskapn-
um og einmitt nú. Vjer sjáum spá-
dóma Guðs orðs uppfyllast. Fyrir löngu
sagði Jesaja spámaður er hann sá að
Guðs ríki mundi sigra að lokum: ,,Eyði-
mörkin og hið þurra land skal gleðjast;
öræfin skulu fagna og blómgast sem
lilja“. Allstaðar í þessum löndum er mik-
il uppskera trúaðra. Það ætti að uppörfa
oss að hugsa um sigur Guðs málefnis.
Sæðið, sem hefir verið sáð ber í dag
ávexti, og þótt erfiðleikar sjeu margir
og margt sem þarf að lagast, þá upp-
skera trúboðar vorir ríkulega.
En enn er mikið verk að vinna. Það
þarf fleiri trúboða. Vjer þurfum meiri
efni. Nú er tíminn til þess að setja pen-
inga sína í málefni Guðs. Utanlandstrú-
boð er sá banki er guðsbörn ávaxta pen-
inga sína í. Hann gefur háa vexti, sem
að nokkru leyti verða greiddir í þessu
lífi með gleði og ánægju og blessun og
í enn ríkari mæli er verkinu er lokið og
Guð launar sjerhverjum eftir því sem
verk hans eru. Verum hughraust og gef-
um ekki aðeins af peningum vorum held-
ur og okkur sjálf, því þegar alt er at-
hugað þá er það hið mesta sem við get-
um gefið. Ef við gjörum þetta mun Guð
blessa okkur og alt það sem við eigum
og höfum, svo að margir heiðingjar í
myrkri villunnar munu leiðast til hins
dýrmæta ljóss Aðventboðskaparins og
gleðjast sem börn hans í hinu eilífa ríki.
Prentsmiðja Geislans