Fréttablaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 86
Lína Langsokkur, fullu nafni Sig-urlína Rúllugardína Nýlendína Krúsimunda Efraímsdóttir Langsokkur, er ein frægasta per- sóna sænska höfundarins Astrid Lindgren. Astrid Lindgren bjó Línu til árið 1941 þegar dóttir hennar, Karin, var veik. Móðirin var að reyna að stytta henni stundir með því að segja henni sögur af uppátækjasamri stúlku. Karin vildi að stúlkan héti Pippi (Lína er bara íslenska nafnið) og Astrid féllst á það. Astrid Lindgren vildi gefa sög- urnar út á bók og fyrsta sagan kom út árið 1945. Bækurnar um Línu urðu mjög vinsælar og hafa verið þýddar á meira en 70 tungumál. Lína er meira að segja á sænska 20 króna seðlinum ásamt Astrid Lind- gren sjálfri. Á næsta ári kemur út glæný kvik- mynd um Línu í tilefni þess að þá verða 75 ár frá því fyrsta bókin um Línu kom út. Lína Langsokkur er stelpa sem flytur inn í stórt hús ásamt apanum sínum Herra Níels og hestinum sínum sem virðist ekki hafa fengið Sigurlína Rúllugardína Nýlendína Krúsimunda Efraímsdóttir Langsokkur Snædís Eva Hillers spilar fótbolta með KR. Hún vill verða hjúkrunar- fræðingur þegar hún verður stór og henni fannst fyndið þegar pabbi hennar brann í sólinni þegar hún fór í frí til Spánar. Hvað ert þú gömul? Ég varð fimm ára um daginn og Unnur er tveggja ára. Hver er Unnur? Unnur er litla systir mín. Hún er tveggja ára en stundum segir hún að hún sé þriggja ára. Þá segi ég: Nei, Unnur, þú ert tveggja ára. Ert þú í leikskóla? Hvað heitir leikskólinn þinn? Já, hann heitir Mánagarður. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera þar? Að spila. Bara spila spil. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera heima? Mér finnst gaman að lita uppi á háalofti en þegar Unnur vill lita þá má hún tússlita. Hver eru uppáhaldsdýrin þín? Kisa og eitthvað ljón og sebrahestur því þeir eru svo flottir. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Hakk og spaghettí. Hver eru þín áhugamál? Mér finnst gaman að spila fótbolta og lesa og líka dansa við tónlist. Hvar spilar þú fótbolta? Ég spila fótbolta með KR. Hvaða bækur eru í uppáhaldi? Uppáhalds eru prinsessubækur og líka bókin um krókódílinn en hann kemur út úr bókinni. Hvernig tónlist? Ronja og líka Lína Langsokkur. Átt þú þér uppáhaldsleikfang og þá hvert? Hvolpasveitin! Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Hjúkrunarfræðingur alveg eins og mamma. Mig langar að hjálpa fólki. En ég er ekki orðin hjúkrunarfræðingur. Núna er ég bara að bíta smá í appelsínu. Hvenær fórstu síðast í frí? Það er mjög langt síðan, alveg í ágúst. Ég fór til Spánar. Mér fannst skemmti- legast að leika við Teodoro (litli frændi Snædísar sem býr á Spáni) og Unni og mér fannst skemmtilegt að fara á ströndina. Pabbi minn brann í sólinni og það var fyndið. Ætlar að verða hjúkrunarfræðingur Langt er síðan Snædís Eva fór síðast í frí – alveg í ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MIG LANGAR AÐ HJÁLPA FÓLKI. EN ÉG ER EKKI ORÐIN HJÚKRUNAR- FRÆÐINGUR. NÚNA ER ÉG BARA AÐ BÍTA SMÁ Í APPELSÍNU. „Við þurfum auðvitað ekkert að leysa þessa eldspýtnaþraut,“ sagði Kata. „Róbert er örugglega löngu búinn að því.“ Róbert varð hálf kindarlegur á svipinn við þessi orð. „Skrifaðir þú ekki líka bók um eldspýtnaþrautir þarna um árið,“ bætti hún við glottandi. „Svona nú,“ sagði Lísaloppa. „Hættu að stríða Róberti, hann getur reynt að leysa þessa þraut eins og við.“ „Er það ekki Róbert?“ bætti hún við. „Jú, jú,“ sagði Róbert. „Getum við ekki bara öll reynt að leysa hana?“ Það var langt síðan það hafði verið svona mikill sáttatónn í rödd Róberts. Konráð á ferð og flugi og félagar 374 Getur þú leyst þessa eldspýtna- þraut? ? ? ? „Jæja,“ sagði Lísaloppa. „Svona er þrautin“ „Getur þú tekið burtu tvær eldspýtur svo eftir verði bara tveir ferningar?“ Á NÆSTA ÁRI KEMUR ÚT GLÆNÝ KVIKMYND UM LÍNU Í TILEFNI ÞESS AÐ ÞÁ VERÐA 75 ÁR FRÁ ÞVÍ FYRSTA BÓKIN UM LÍNU KOM ÚT. Hér er Margrét Vilhjálmsdóttir í hlutverki Línu árið 1995. neitt nafn heldur er alltaf kallaður hestur. Lína er mjög líkamlega sterk og getur lyft hestinum sínum upp fyrir höfuðið á   sér. Lína er mjög sjálfstæð og býr ein í húsinu sínu en kynnist börnum í nágrenninu sem heita Anna og Tommi og lendir í ýmsum ævintýrum með þeim. Móðir Línu lést stuttu eftir fæð- ingu Línu og pabbi Línu er sjóræn- ingi sem hefur lítil afskipti af henni. 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R42 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR 1 9 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 0 B -4 B A 4 2 4 0 B -4 A 6 8 2 4 0 B -4 9 2 C 2 4 0 B -4 7 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 0 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.