Fréttablaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 10
Það hefur talsverð
áhrif ef það er
einsleitur hópur á þinginu.
Haukur Arnþórsson stjórnsýslu-
fræðingur
borgarleikhus.is
****
S.J. Fréttablaðið
Þessi sprenghlægilegi og vinsæli
gamanleikur hefur aldrei verið
fyndnari. Tryggðu þér miða á
borgarleikhus.is
TR
YG
GÐ
U
ÞÉ
R M
IÐA
!
>
STJÓRNMÁL Bókin Um Alþingi:
Hver kennir kennaranum? eftir
dr. Hauk Arnþórsson kom út í gær.
Bókin byggir á gögnum úr gagna-
grunnum Alþingis frá árunum 1991-
2018 ásamt könnun sem Haukur
lagði fyrir þingkonur og konur
sem nýlega höfðu látið af störfum á
Alþingi í maí á þessu ári.
„Bókin fjallar í aðalatriðum um
fjögur efni sem hægt er að lesa
úr gagnagrunnum Alþingis frá
þessu tímabili. Það er að segja störf
Alþingis, uppruna þingmanna,
kynjamisrétti og völd, rentusókn
og kjördæmi á þinginu. Þar að auki
er fjallað um kosningakerfið,“ segir
Haukur.
Líkt og greint var frá í Frétta-
blaðinu í gær kemur fram í bókinni
að stór hluti þingkvenna hafi orðið
fyrir kynbundnu of beldi. Niður-
stöðurnar fékk Haukur úr könnun-
inni sem lögð var fyrir þingkonur
og konur sem nýlega höfðu hætt
störfum á þinginu og bar hann
þær niðurstöður saman við niður-
stöður viðamikillar könnunar um
kynbundið of beldi sem gerð var af
Alþjóðaþingmannasambandinu
í samvinnu við Evrópuráðið árið
2018.
„Þetta var spurningalistakönnun
sem lögð var fyrir á netinu fyrir 33
konur, 25 þeirra svöruðu,“ segir
Haukur.
Aðspurður að því hvers vegna
könnunin var einungis lögð fyrir
konur segir hann ástæðuna ein-
falda. „Ég var að endurtaka evr-
ópska rannsókn og bar saman
mínar niðurstöður við þær niður-
stöður. Sú rannsókn var einungis
lögð fyrir konur,“ útskýrir Haukur.
„Ég var leiðandi við gerð gagna-
grunna Alþingis fyrir árið 1991
Meiri hluti Alþingismanna í yfirstétt
Í gær kom út ný bók dr. Hauks Arnþórssonar. Bókin byggir á gögnum úr gagnagrunni Alþingis yfir 27 ára tímabil ásamt könnun
sem lögð var fyrir konur á Alþingi. Niðurstöðurnar sýna meðal annars tengsl stéttarstöðu þingmanna og framgöngu þeirra í starfi.
Það tók Hauk um fimmtán mánuði að afla upplýsinga og skrifa bókina, Um Alþingi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
þegar þingið fór í eina deild og mér
hefur lengi verið ljóst að þar er að
finna töluvert af gögnum sem ekki
eru úti á vefnum en segja ákveðna
sögu. Þess vegna ákvað ég að ráðast
í þetta verkefni,“ segir Haukur.
„Með því að gera bókina er ég
búinn að setja þessi gögn í fræði-
legan búning og þannig geta þau
sagt sína sögu eftir ákveðnum túlk-
unarramma,“ bætir hann við.
Í bókinni er að finna fjöldann
allan af upplýsingum og segir Hauk-
ur að það sem hafi komið honum
mest á óvart séu niðurstöður um
stéttarstöðu þingmanna. „Það var
afgerandi hversu margir þingmenn
eru úr yfirstétt og það kom mér á
óvart hvað þeim vegnar misvel í
starfi eftir stéttarstöðu,“ segir hann.
„Það virðist vera þannig að jafnvel
þó að þingmaður hafi verið í þeim
stjórnmálaflokki sem oftast hefur
verið í ríkisstjórn sé það þannig
að ef hann var af lágum stigum, þá
átti hann minni möguleika á því
að verða ráðherra til dæmis,“ segir
hann.
„Þessa niðurstöðu má sjá þegar
tengd eru saman alþingismála-
skrá gagnagrunnsins og alþingis-
mannatal. Ég skoða æviágrip allra
þingmanna og tengi þau gögn svo
við þingmálaskrár. Þar skoða ég
tengslin milli menntunar, starfs og
stéttarstöðu og í hvaða embætti þeir
lenda, hversu margar ræður þeir
f lytja og svo framvegis,“ útskýrir
Haukur.
„Það er ákveðin yfirstétt á þing-
inu og það hefur talsverð áhrif því
að ef það er einsleitur hópur á þingi
er hætt við því að raddir þeirra sem
standa neðar í þjóðfélaginu heyrist
lítið og langan tíma taki að breyta
reglum sem koma við líf þeirra,“
segir hann.
Það tók Hauk rúmt ár að af la
upplýsinga og skrifa bókina. „Ég
var alveg í þessu í fimmtán mánuði
en svo er spurning hvað maður á að
telja langan meðgöngutíma,“ segir
Haukur stoltur. Bókina má nálgast
í öllum helstu bókaverslunum.
birnadrofn@frettabladid.is
FJÁRMÁL Íslensk stjórnvöld mót-
mæltu tillögu FATF, alþjóðlegs
f jármálaaðgerðahóps ríkja um
aðgerðir gegn peningaþvætti og
fjármögnun hryðjuverka, um að
setja Ísland á gráan lista. En líkt og
Fréttablaðið greindi frá í fyrradag
hefur hópurinn fundað í París í vik-
unni og þar kom fram tillaga um að
setja Ísland á listann.
Á fundinum mótmæltu stjórn-
völd tillögunni og sögðu hana
ekki endurspegla stöðu landsins
í vörnum gegn peningaþvætti og
fjármögnun hryðjuverka.
Afstaða íslenskra stjórnvalda
mætti skilningi fjölda aðildarríkja.
Árið 2018 krafðist FATF þess að
Ísland ynni að endurbótum. Í til-
kynningu á vef Stjórnarráðsins
kemur fram að horft hafi verið
til vilja íslenskra stjórnvalda til
úrbóta en að ekki hafi tekist að
mæta kröfum FATF í tæka tíð þrátt
fyrir að það hafi verið reynt.
Íslensk stjórnvöld mótmæla veru landsins á gráum lista FATF
Einnig kemur fram að stjórn-
völd ásamt erlendum ráðgjöfum
hafi lagt mat á möguleg áhrif þess
að Íslandi lendi á listanum. „Það
er samdóma álit þeirra að áhrifin
verði óveruleg og er hvorki talið að
niðurstaða FATF hafi bein áhrif á
almenning né fjármálastöðugleika
á Íslandi. Erlendir aðilar í viðskipt-
um við íslensk fyrirtæki, þá einkum
fjármálafyrirtæki og trygginga-
félög, gætu þurft að kanna sjálf-
stætt hvort varnir gegn peninga-
þvætti og fjármögnun hryðjuverka
séu nægilega tryggar.“
– bdjTalið er að áhrif þess að Íslands sé á gráa listanum verði óveruleg.
Á fundinum mótmæltu
stjórnvöld tillögunni og
sögðu hana ekki ekki
endurspegla stöðu landsins.
1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
9
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:5
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
B
-6
9
4
4
2
4
0
B
-6
8
0
8
2
4
0
B
-6
6
C
C
2
4
0
B
-6
5
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
1
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K