Fréttablaðið - 18.10.2019, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 18.10.2019, Qupperneq 10
Það hefur talsverð áhrif ef það er einsleitur hópur á þinginu. Haukur Arnþórsson stjórnsýslu- fræðingur borgarleikhus.is **** S.J. Fréttablaðið Þessi sprenghlægilegi og vinsæli gamanleikur hefur aldrei verið fyndnari. Tryggðu þér miða á borgarleikhus.is TR YG GÐ U ÞÉ R M IÐA ! > STJÓRNMÁL Bókin Um Alþingi: Hver kennir kennaranum? eftir dr. Hauk Arnþórsson kom út í gær. Bókin byggir á gögnum úr gagna- grunnum Alþingis frá árunum 1991- 2018 ásamt könnun sem Haukur lagði fyrir þingkonur og konur sem nýlega höfðu látið af störfum á Alþingi í maí á þessu ári. „Bókin fjallar í aðalatriðum um fjögur efni sem hægt er að lesa úr gagnagrunnum Alþingis frá þessu tímabili. Það er að segja störf Alþingis, uppruna þingmanna, kynjamisrétti og völd, rentusókn og kjördæmi á þinginu. Þar að auki er fjallað um kosningakerfið,“ segir Haukur. Líkt og greint var frá í Frétta- blaðinu í gær kemur fram í bókinni að stór hluti þingkvenna hafi orðið fyrir kynbundnu of beldi. Niður- stöðurnar fékk Haukur úr könnun- inni sem lögð var fyrir þingkonur og konur sem nýlega höfðu hætt störfum á þinginu og bar hann þær niðurstöður saman við niður- stöður viðamikillar könnunar um kynbundið of beldi sem gerð var af Alþjóðaþingmannasambandinu í samvinnu við Evrópuráðið árið 2018. „Þetta var spurningalistakönnun sem lögð var fyrir á netinu fyrir 33 konur, 25 þeirra svöruðu,“ segir Haukur. Aðspurður að því hvers vegna könnunin var einungis lögð fyrir konur segir hann ástæðuna ein- falda. „Ég var að endurtaka evr- ópska rannsókn og bar saman mínar niðurstöður við þær niður- stöður. Sú rannsókn var einungis lögð fyrir konur,“ útskýrir Haukur. „Ég var leiðandi við gerð gagna- grunna Alþingis fyrir árið 1991 Meiri hluti Alþingismanna í yfirstétt Í gær kom út ný bók dr. Hauks Arnþórssonar. Bókin byggir á gögnum úr gagnagrunni Alþingis yfir 27 ára tímabil ásamt könnun sem lögð var fyrir konur á Alþingi. Niðurstöðurnar sýna meðal annars tengsl stéttarstöðu þingmanna og framgöngu þeirra í starfi.  Það tók Hauk um fimmtán mánuði að afla upplýsinga og skrifa bókina, Um Alþingi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI þegar þingið fór í eina deild og mér hefur lengi verið ljóst að þar er að finna töluvert af gögnum sem ekki eru úti á vefnum en segja ákveðna sögu. Þess vegna ákvað ég að ráðast í þetta verkefni,“ segir Haukur. „Með því að gera bókina er ég búinn að setja þessi gögn í fræði- legan búning og þannig geta þau sagt sína sögu eftir ákveðnum túlk- unarramma,“ bætir hann við. Í bókinni er að finna fjöldann allan af upplýsingum og segir Hauk- ur að það sem hafi komið honum mest á óvart séu niðurstöður um stéttarstöðu þingmanna. „Það var afgerandi hversu margir þingmenn eru úr yfirstétt og það kom mér á óvart hvað þeim vegnar misvel í starfi eftir stéttarstöðu,“ segir hann. „Það virðist vera þannig að jafnvel þó að þingmaður hafi verið í þeim stjórnmálaflokki sem oftast hefur verið í ríkisstjórn sé það þannig að ef hann var af lágum stigum, þá átti hann minni möguleika á því að verða ráðherra til dæmis,“ segir hann. „Þessa niðurstöðu má sjá þegar tengd eru saman alþingismála- skrá gagnagrunnsins og alþingis- mannatal. Ég skoða æviágrip allra þingmanna og tengi þau gögn svo við þingmálaskrár. Þar skoða ég tengslin milli menntunar, starfs og stéttarstöðu og í hvaða embætti þeir lenda, hversu margar ræður þeir f lytja og svo framvegis,“ útskýrir Haukur. „Það er ákveðin yfirstétt á þing- inu og það hefur talsverð áhrif því að ef það er einsleitur hópur á þingi er hætt við því að raddir þeirra sem standa neðar í þjóðfélaginu heyrist lítið og langan tíma taki að breyta reglum sem koma við líf þeirra,“ segir hann. Það tók Hauk rúmt ár að af la upplýsinga og skrifa bókina. „Ég var alveg í þessu í fimmtán mánuði en svo er spurning hvað maður á að telja langan meðgöngutíma,“ segir Haukur stoltur. Bókina má nálgast í öllum helstu bókaverslunum. birnadrofn@frettabladid.is FJÁRMÁL Íslensk stjórnvöld mót- mæltu tillögu FATF, alþjóðlegs f jármálaaðgerðahóps ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, um að setja Ísland á gráan lista. En líkt og Fréttablaðið greindi frá í fyrradag hefur hópurinn fundað í París í vik- unni og þar kom fram tillaga um að setja Ísland á listann. Á fundinum mótmæltu stjórn- völd tillögunni og sögðu hana ekki endurspegla stöðu landsins í vörnum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Afstaða íslenskra stjórnvalda mætti skilningi fjölda aðildarríkja. Árið 2018 krafðist FATF þess að Ísland ynni að endurbótum. Í til- kynningu á vef Stjórnarráðsins kemur fram að horft hafi verið til vilja íslenskra stjórnvalda til úrbóta en að ekki hafi tekist að mæta kröfum FATF í tæka tíð þrátt fyrir að það hafi verið reynt. Íslensk stjórnvöld mótmæla veru landsins á gráum lista FATF Einnig kemur fram að stjórn- völd ásamt erlendum ráðgjöfum hafi lagt mat á möguleg áhrif þess að Íslandi lendi á listanum. „Það er samdóma álit þeirra að áhrifin verði óveruleg og er hvorki talið að niðurstaða FATF hafi bein áhrif á almenning né fjármálastöðugleika á Íslandi. Erlendir aðilar í viðskipt- um við íslensk fyrirtæki, þá einkum fjármálafyrirtæki og trygginga- félög, gætu þurft að kanna sjálf- stætt hvort varnir gegn peninga- þvætti og fjármögnun hryðjuverka séu nægilega tryggar.“ – bdjTalið er að áhrif þess að Íslands sé á gráa listanum verði óveruleg. Á fundinum mótmæltu stjórnvöld tillögunni og sögðu hana ekki ekki endurspegla stöðu landsins. 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 9 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 B -6 9 4 4 2 4 0 B -6 8 0 8 2 4 0 B -6 6 C C 2 4 0 B -6 5 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 0 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.