Fréttablaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 72
Gamaldags rækjukokteill er alltaf
góður en hann var vinsæll hér áður.
Hvernig væri að rifja upp gamaldags rækjukokteil eins og var vinsæll hér á
sjöunda og áttunda áratugunum?
Væri ekki gaman að prófa hann í
forrétt í kvöld?
Þessi uppskrift er fyrir fjóra.
200 g skelflettar rækjur
2 dl mangó, skorið í bita
1 lárpera
1 msk. smátt skorinn vorlaukur
Dill til skreytingar
1 msk. sítrónusafi
2 msk. ólífuolía
Salt og pipar
Skerið lárperuna í bita. Blandið
saman lárperu, mangó, rækjum og
vorlauk. Setjið í fjögur glös.
Blandið saman olíu og sítrónusafa,
bragðbætið með salti og pipar.
Hellið blöndunni yfir.
Flestum finnst gott að hafa dress-
ingu með þessum rétti.
1 bolli majónes
½ bolli sýrður rjómi
½ límóna, bara safinn
1 msk. hunang
Salt og pipar
Hrærið allt saman og setjið ofan
á réttinn. Einnig er gott að hafa
ristað brauð með.
Perur með After eight
Ef ykkur vantar uppskrift að
gamaldags eftirrétti þá er hér einn
klassískur og afar einfaldur.
Skerið fjórar perur til helminga,
afhýðið og leggið í eldfast mót.
Setjið eina til tvær sneiðar af After
eight súkkulaði á hvern helming.
Setjið í heitan ofn í 10-15 mínútur
og látið súkkulaðið bráðna. Berið
fram með vanilluís.
Hawaii-rétturinn
Frábær gamaldags réttur frá átt-
unda áratugnum og uppáhald
margra. Sneiðar af bayonne-
skinku er raðað í eldfast form,
ananashringjum raðað yfir, síðan
rifinn ostur og sýrður rjómi. Bakað
í ofni og borið fram með hrís-
grjónum.
Súkkulaðibananar
Grillaðir bananar með súkkulaði
er eftirréttur frá áttunda áratugn-
um. Rétturinn hentar fyrir alla
fjölskuylduna. Skorið er í miðjuna
á banana með hýði og súkkulaði-
bitum troðið þar á
milli. Sett í 200°C
heitan ofn í tíu
mínútur eða á úti-
grill. Berið fram með
vanilluís.
Gamaldags en
ofsalega gott
SamSuða er yfirskrift sýningar-raðar í Borgarbókasafninu í Kringlunni. SamSuða er
stefnumót skapandi einstaklinga
þar sem skáld er fengið til að velja
listaverk út Artóteki Borgarbóka-
safns og skrifa um þau stuttan
texta. Verkin geta verið eftir einn
og sama listamanninn eða blanda/
samsuða af verkum eftir ýmsa.
Verkin og textinn eru síðan sett
upp á sýningu í Borgarbókasafninu
í Kringlunni.
Að þessu sinni mun ljóðskáldið
Elías Knörr velja verkin og flytja
textann sinn við opnunina og
skrifar um þau texta. Sýningin
sem hann kýs að nefna Leyf mér að
vaxa verður opnuð í dag, laugar-
daginn 19. október, klukkan 15.30.
Mun Elías flytja textann sinn við
opnunina.
Eftirtaldar listakonur eiga verk á
sýningunni:
Gunnhildur Þórðardóttir
Hildur Björnsdóttir
Laura Valentino
Louise St. Djermoun
Í Artótekinu er til leigu og sölu
myndlist eftir íslenska listamenn
í Sambandi íslenskra mynd-
listarmanna.
Markmiðið er að kynna
notendum Borgarbókasafns og
öðrum íslenska samtímalist og
gefa þeim kost á að leigja eða
eignast listaverk á einfaldan
hátt.
Léttar veitingar og allir velkomnir.
Sýningin stendur til 30. nóvember.
SamSuða í Borgarbókasafninu í Kringlunni
18. til 24. október
Öll helstu merkin á einum stað
Íþróttavöruverslun
SPORT24 Miðhrauni 2 Garðabæ
Fylgdu okkur á
20%-30% afsláttur af nýjum vörum
Ný 750 fm
SPORT24
íþróttavöruverslun
að Miðhrauni 2
Garðabæ
Opið virka daga 11-18
Laugardaga 11-18
Sunnudaga 13-18
SPORT24 Sundaborg 1 Reykjavík
Opið virka daga 11-18
Laugardaga 11-16
Sunnudaga Lokað
Sími 553 0700
NÆG BÍLASTÆÐI
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
9
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:5
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
B
-7
D
0
4
2
4
0
B
-7
B
C
8
2
4
0
B
-7
A
8
C
2
4
0
B
-7
9
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
0
4
s
_
1
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K