Fréttablaðið - 18.10.2019, Side 72

Fréttablaðið - 18.10.2019, Side 72
Gamaldags rækjukokteill er alltaf góður en hann var vinsæll hér áður. Hvernig væri að rifja upp gamaldags rækjukokteil eins og var vinsæll hér á sjöunda og áttunda áratugunum? Væri ekki gaman að prófa hann í forrétt í kvöld? Þessi uppskrift er fyrir fjóra. 200 g skelflettar rækjur 2 dl mangó, skorið í bita 1 lárpera 1 msk. smátt skorinn vorlaukur Dill til skreytingar 1 msk. sítrónusafi 2 msk. ólífuolía Salt og pipar Skerið lárperuna í bita. Blandið saman lárperu, mangó, rækjum og vorlauk. Setjið í fjögur glös. Blandið saman olíu og sítrónusafa, bragðbætið með salti og pipar. Hellið blöndunni yfir. Flestum finnst gott að hafa dress- ingu með þessum rétti. 1 bolli majónes ½ bolli sýrður rjómi ½ límóna, bara safinn 1 msk. hunang Salt og pipar Hrærið allt saman og setjið ofan á réttinn. Einnig er gott að hafa ristað brauð með. Perur með After eight Ef ykkur vantar uppskrift að gamaldags eftirrétti þá er hér einn klassískur og afar einfaldur. Skerið fjórar perur til helminga, afhýðið og leggið í eldfast mót. Setjið eina til tvær sneiðar af After eight súkkulaði á hvern helming. Setjið í heitan ofn í 10-15 mínútur og látið súkkulaðið bráðna. Berið fram með vanilluís. Hawaii-rétturinn Frábær gamaldags réttur frá átt- unda áratugnum og uppáhald margra. Sneiðar af bayonne- skinku er raðað í eldfast form, ananashringjum raðað yfir, síðan rifinn ostur og sýrður rjómi. Bakað í ofni og borið fram með hrís- grjónum. Súkkulaðibananar Grillaðir bananar með súkkulaði er eftirréttur frá áttunda áratugn- um. Rétturinn hentar fyrir alla fjölskuylduna. Skorið er í miðjuna á banana með hýði og súkkulaði- bitum troðið þar á milli. Sett í 200°C heitan ofn í tíu mínútur eða á úti- grill. Berið fram með vanilluís. Gamaldags en ofsalega gott SamSuða er yfirskrift sýningar-raðar í Borgarbókasafninu í Kringlunni. SamSuða er stefnumót skapandi einstaklinga þar sem skáld er fengið til að velja listaverk út Artóteki Borgarbóka- safns og skrifa um þau stuttan texta. Verkin geta verið eftir einn og sama listamanninn eða blanda/ samsuða af verkum eftir ýmsa. Verkin og textinn eru síðan sett upp á sýningu í Borgarbókasafninu í Kringlunni. Að þessu sinni mun ljóðskáldið Elías Knörr velja verkin og flytja textann sinn við opnunina og skrifar um þau texta. Sýningin sem hann kýs að nefna Leyf mér að vaxa verður opnuð í dag, laugar- daginn 19. október, klukkan 15.30. Mun Elías flytja textann sinn við opnunina. Eftirtaldar listakonur eiga verk á sýningunni: Gunnhildur Þórðardóttir Hildur Björnsdóttir Laura Valentino Louise St. Djermoun Í Artótekinu er til leigu og sölu myndlist eftir íslenska listamenn í Sambandi íslenskra mynd- listarmanna. Markmiðið er að kynna notendum Borgarbókasafns og öðrum íslenska samtímalist og gefa þeim kost á að leigja eða eignast listaverk á einfaldan hátt. Léttar veitingar og allir velkomnir. Sýningin stendur til 30. nóvember. SamSuða í Borgarbókasafninu í Kringlunni 18. til 24. október Öll helstu merkin á einum stað Íþróttavöruverslun SPORT24 Miðhrauni 2 Garðabæ Fylgdu okkur á 20%-30% afsláttur af nýjum vörum Ný 750 fm SPORT24 íþróttavöruverslun að Miðhrauni 2 Garðabæ Opið virka daga 11-18 Laugardaga 11-18 Sunnudaga 13-18 SPORT24 Sundaborg 1 Reykjavík Opið virka daga 11-18 Laugardaga 11-16 Sunnudaga Lokað Sími 553 0700 NÆG BÍLASTÆÐI 10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 1 9 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 0 B -7 D 0 4 2 4 0 B -7 B C 8 2 4 0 B -7 A 8 C 2 4 0 B -7 9 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 0 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.