Skessuhorn


Skessuhorn - 07.01.2015, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 07.01.2015, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 1. tbl. 18. árg. 7. janúar 2015 - kr. 750 í lausasölu HEFUR SAFNAÐ FYRIR ÖKUTÆKI FYRIR HVERJU LANGAR ÞIG AÐ SAFNA? Allt um sparnað á arionbanki.is/reglulegur_sparnadur Lúsina burt! Nefúði! Naso-ratiopharm Grænn er fyrir börnin Rafræn áskrift Ný áskriftarleið Pantaðu núna Gamlárshlaup Skagamanna var hlaupið eftir hádegi á gamlársdag. Gátu þátttakendur valið að hlaupa tvo eða fimm kílómetra. Óhætt er að segja að bæjarbúar og gestir þeirra hafi tekið vel í hvatningu um þátttöku því fjölmennt var og gleðin allsráðandi. Meðfylgjandi mynd, og fleiri á bls. 23, tók Guðmundur Bjarki Halldórsson. Fyrsta barnið sem fæddist á fæð- ingadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi á árinu kom í heiminn klukkan 18:59 á nýársdag. Var það stúlka sem vó 3.725 grömm og var 51 sentímetra löng. Foreldr- ar hennar eru Hróðný Kristjáns- dóttir og Aron Páll Hauksson sem bæði eru frá Vestfjörðum. Aron Páll er frá Bíldudal en Hróðný er frá Patreksfirði, þar sem fjölskyldan býr. Stúlkan er fjórða barn þeirra en eldri systkini hennar verða sex ára, fjögurra ára og tveggja ára á árinu. Þegar blaðamann bar að garði skömmu eftir hádegi 2. janúar voru hjónin í góðu yfirlæti á fæð- ingadeildinni og stúlkan litla að fá sér mjólkursopa hjá móður sinni. Bæði barni og móður heilsaðist vel. Hróðný sagði að sú stutta hefði ekki látið bíða eftir sér, en settur dag- ur var 2. janúar. „Við komum suð- ur á annan í jólum. Við erum svo heppin að eiga yndislegt vinafólk í Mosfellsbæ sem við fengum að vera hjá og eldri börnin eru fyrir vest- an í pössun hjá systur minni,“ sagði Hróðný. Hún segir fæðinguna hafa gengið vel. „Við héldum upp á áramótin og komum svo hingað í skoðun á nýársdag. Ljósmóðirin hreyfði aðeins við hjá mér og upp úr klukkan hálf þrjú fór ég að finna eitthvað,“ útskýrði Hróðný. Stúlk- an fæddist svo rétt rúmum fjórum tímum síðar. Það var Helga Hösk- uldsdóttir ljósmóðir á HVE á Akra- nesi sem tók á móti barninu. Fyrsti Íslendingurinn 2015 frá Akranesi Það var nóg að gera fyrstu tvo daga ársins á fæðingadeildinni á Akranesi. Auk litlu stúlkunn- ar sem fæddist á nýársdag, fæddust þrjú önnur börn daginn eftir, tveir drengir og ein stúlka. Þá bættist einn drengur við 4. janúar. Mæð- urnar eru allar af vesturhluta lands- ins, ein frá Hvammstanga, önnur frá Akranesi, ein úr Grundafirði og ein úr Borgarnesi. Þá má geta þess að fyrsta barnið sem fæddist á land- inu þetta árið var einnig ættað af Vesturlandi. Sú stúlka fæddist á ný- ársnótt kl. 03.54 á Landspítalanum og vó rúm þrjú kíló og var 49 sentí- metrar. Faðir hennar er Sigurmon Hartmann Sigurðsson tónlistar- maður frá Akranesi og móðir henn- ar heitir Gróa Sif Jóelsdóttir. grþ Á fæðingadeild Heilbrigðis- stofnunar Vesturlands á Akra- nesi fæddust 269 börn á ný- liðnu ári. Börnin eru heldur fleiri en árið áður, en þá fædd- ust 224 börn og fjölgaði fæð- ingum því um 45 á milli ára. Síðasti Vestlendingur ársins 2014 kom í heiminn 28. des- ember og voru foreldrarnir frá Akranesi. Þrátt fyrir mikla fjölgun fæðinga á milli áranna var ekki um metár í fæðingum á Akranesi að ræða í fyrra. Það var árið 2010 þegar 358 börn fæddust á fæðingadeild HVE. Nú þegar eru fædd nokk- ur börn á árinu, fyrsta barnið fæddist á nýársdag og önnur þrjú 2. janúar og fimmta barn- ið kom í heiminn 4. janúar síð- astliðinn. grþ Fyrsta barn ársins kom í heiminn á nýársdag Litla stúlkan sem fæddist fyrst á Vesturlandi 2015. Fjölgun fæðinga frá fyrra ári Landnámssetur Íslands, Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi NÝTT Í LANDNÁMSSETRINU Örlagasaga Hallgríms Péturssonar og Guðríðar Símonardóttur Steinunn Jóhannesdóttir flytur Frumsýning 16. janúar kl. 20 Veitingahúsið er opið alla daga frá kl. 10 – 21 Munið ljúffenga hádegishlaðborðið okkar SK ES SU H O R N 2 01 5

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.