Skessuhorn


Skessuhorn - 07.01.2015, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 07.01.2015, Blaðsíða 7
7MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2015 BJÖRGUNARSVEITIN Þrettándagleði 2015 Þrettándagleði verður haldin í Englendingavík í Borgarnesi laugardaginn 10. janúar kl. 17:00 (ath breyttan tíma). Flugeldasýning í boði Borgarbyggðar, björgunarsveitarinnar Brákar Borgarnesi og björgunarsveitarinnar Heiðars á Varmalandi. Flugeldasýning, álfasöngur, heitt súkkulaði, smákökur og gleði. Hver veit nema jólasveinarnir láti sjá sig? Þakkir fyrir aðstoð: Björgunarsveitin Brák, björgunarsveitin Heiðar, Skátafélag Borgarness, Edduveröld, JGR, Geirabakarí, Nettó og Leikdeild Skallagríms. Við viljum biðja fólk að koma EKKI með eigin flugelda á svæðið. S K E S S U H O R N 2 01 5 Þorrablót Skagamanna verð- ur haldið laugardaginn 24. janú- ar næstkomandi og er undirbún- ingur fyrir blótið í fullum gangi. „Þetta gengur glimrandi vel. Við erum búin að vera að funda og það er mikil stemning, eins og myndast alltaf þegar árgangurinn hittist til að undirbúa. Þegar er mjög margt í býgerð og fastir liðir verða á dag- skrá eins og annállinn, sem 1974 árgangurinn mun flytja í ár,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, talsmaður árgangs 1971 sem stendur nú fyr- ir þorrablóti Skagamanna í fimmta sinn. Auk annálsins verður Skaga- maður ársins valinn ásamt fleiri skemmtiatriðum og dansleik. „Við erum að undirbúa skemmti- atriði og ball sem á eftir að verða það flottasta sem nokkru sinni verð- ur haldið. Við munum hafa þann háttinn á í ár að við ætlum að koma Skagamönnum á óvart. Þetta verð- ur viðburður sem enginn vill missa af og við lofum skemmtun sem mun toppa allt sem við höfum gert fram til þessa,“ bætir Sævar við. Þorra- blótið verður haldið í Íþróttahús- inu við Vesturgötu líkt og undan- farin ár og rennur allur sá hagnað- ur sem verður af þorrablótinu til Björgunarfélags Akraness og þeirra íþróttafélaga sem koma til með að starfa á blótinu. Forsala aðgöngu- miða verður í Íslandsbanka og hefst föstudaginn 9. janúar þegar bank- inn opnar. „Í fyrra seldist upp á þorrablótið á 70 mínútum þann- ig að við hvetjum fólk til að mæta snemma á föstudaginn og ná sér í miða.“ grþ Árgangur 1971, eða Club 71, skipuleggur nú þorrablót Skagamanna í fimmta sinn. Óvæntar uppákomur á þorrablóti Skagamanna Íþróttahúsinu Vesturgötu Laugardaginn 24. janúar 2015 MÖGNUÐ STUÐHLJÓMSVEIT SÉR UM BALLIÐ ÞRUSU SÖNGVARAR STÓRKOSTLEG SKEMMTIATRIÐI ÍÞRÓTTAHÚSINU JAÐARSBÖKKUM LAUGARDAGINN 21. JANÚAR Matur & ball AÐGÖNGUMIÐI Matur & ball Húsið opnar kl. 19.30 Borðhald hefst kl. 20.00 Miðaverð: 7.500 kr. ÞORRABLÓT SKAGAMANNA FORSALA MIÐA HEFST Í ÍSLANDS- BANKA FÖSTUDAGINN 9. JANÚAR KL.9 Borðapantanir á staðnum þann dag. Síðar geta þeir sem eiga miða pantað borð á netfanginu klubbur71@gmail.com. AÐEINS ÞEIR SEM HAFA GREITT MIÐA GETA PANTAÐ BORÐ! Matur og ball: 8.500 kr. / Ball: 3.000 kr. Húsið opnar kl. 18.30 og salurinn kl. 19 Borðhald hefst kl. 20 Galito sér um matinn Húsið opnar fyrir ballgesti kl. 24 GLEÐIN NI STJÓRN AR ÓBORGA NLEGUR VEISLUS TJÓRI ANNÁLL AKURNESIN GA – allt sem þú veist ek ki að þú vissi r ekki verður afh júpað af árgangi ‘74 ! 20 ára ALDURSTAKMARK ÓGLEYMAN LEG SKEMMTU N SEM ENG INN MÁ MISSA AF!

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.