Skessuhorn - 07.01.2015, Blaðsíða 11
11MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2015
Hefur þú áhuga á að vinna við
skrifstofustörf eða viltu efla þig í starfi?
Skrifstofuskólinn – Dreifnám – Vorönn 2015
Símenntunarmiðstöð Vesturlands ætlar að fara af stað með Skrifstofuskólann núna í janúar
2015. Fyrsta lota er áætluð í Borgarnesi 23.- 24. janúar nk.
Skrifstofuskólinn er 160 klukkustunda nám ætlaður fólki 20 ára og eldra sem hefur stutta eða
jafnvel enga formlega skólagöngu að baki, vinnur almenn skrifstofustörf eða hefur hug á því.
Markmið með náminu er m.a. að efla sjálfstraust og hæfni námsmanna til að takast á við almenn
skrifstofustörf, auka þjónustu- og tölvufærni ásamt færni í ensku og almennu jákvæðu viðhorfi til
áframhaldandi náms. Meta má námið til að allt að 18 eininga í framhaldsskóla.
Kennslufyrirkomulag:
Námið fer fram í dreifnámi sem þýðir að námið er blanda af staðlotum og fjarnámi. Nemendur
fá námsefnið í gegnum kennslukerfið Moodle og svo hitta þeir kennara og samnemendur í
staðlotum í Borgarnesi. Námið er verkefnamiðað þannig að nemendur geta að hluta til stýrt sjálfir
hvenær þeir leggja stund á námið og því hentar það vel með vinnu. Með því að bjóða upp á
þessa kennsluaðferð er verið að miða kennslu að þörfum fullorðinna nemenda.
Námsgreinar eru t.d verslunarreikningur, bókhald, tölvu- og upplýsingaleikni,
tölvubókhald og enska.
Verð: 46.000. Hægt er að sækja um styrk til fræðslusjóða stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar og skráning hjá: Helgu Lind Hjartardóttur náms- og starfsráðgjafa og
verkefnastjóra og á facebook síðu Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands. Sími; 895 1662,
netfang; helgalind@simenntun.is
www.simenntun.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Viðurkenningar fyrir dugnað
og óeigingjarnt starf
Stjórn Menningarsjóðsins Feg-
urri byggðir fundaði 19. desember
sl. í Landsbankanum í Snæfellsbæ.
Meðal fundarefna var að samþykkja
að veita viðurkenningar fyrir dugn-
að og óeigingjörn störf í þágu sam-
félagsins. Samþykkt var að veita tvö
viðurkenningarskjöl. Féllu þau í
hlut Kára Viðarssonar fyrir áhuga
hans og dugnað við að koma upp
leikhúsi, semja leikverk og sýna í
Frystiklefanum í Rifi. Einnig fékk
Þór Magnússon viðurkenningu fyr-
ir þátttöku hans við uppbyggingu
og síðar leiðsögn að Vatnshellin-
um sunnan Purkhóla undir Jökli.
Minningarkort sjóðsins Fegurri
byggðir eru til afgreiðslu í Lands-
bankanum í Ólafsvík.
Viðurkenningarskjölin voru af-
hent þeim Þór og Kára í fundastofu
Landsbankans 30. desember. Við-
urkenningarhafar og stjórn sjóðsins
eru á myndinni. Frá vinstri: Skúli,
Lydía, Sirrý, Þórhalla, Þór og Kári.
mm
Líkan af Rán AK til Byggða-
safnsins í Görðum
Síðastliðinn laugardag var fjöl-
skylda Helga heitins Ibsen útgerð-
armanns á Akranesi samankom-
in í Byggðasafninu í Görðum til
að gefa til safnsins til minningar
um hann líkan af Rán AK 304 sem
Helgi gerði út um árabil ásamt Vil-
hjálmi Guðjónssyni. Það var Þor-
björg Laufey Þorbjörnsdóttir, ekkja
Helga Ibsen, sem afhenti líkan-
ið formlega og Jón Allansson for-
stöðumaður Byggðasafnsins veitti
því viðtöku. Þorbjörg Laufey af-
henti einnig við þetta tækifæri safn-
inu saumavél af gerðinni Elna sem
hefur verið í hennar eigu í 60 ár.
Fyrstu áratugina var hún notuð til
að sauma ýmsar flíkur á fjölskyld-
una og til heimilisins.
Helgi Ibsen fæddist á Suðureyri
við Súgandafjörð 8. september 1928
en hann lést á Sjúkrahúsi Akraness
28. ágúst 2004. Árið 1965 stofn-
uðu Helgi og Vilhjálmur Guðjóns-
son útgerðarfyrirtækið Hafbjörgu
hf á Akranesi. Eitt fyrsta verk þeirra
félaga var að fara vestur til Hnífs-
dals og festa kaup á skipi sem hét
Rán ÍS 51. Báturinn var smíðaður
í skipasmíðastöð Marselíusar á Ísa-
firði 1958. Helgi og Vilhjálmur ráku
útgerð og fiskvinnslu með myndar-
brag. Þeir áttu Rán AK 304 í tíu ár
og reyndist hún þeim vel. Árið 1975
seldu þeir Ármanni Stefánssyni bát-
inn, en síðar var hann seldur til Út-
gerðarmiðstöðvarinnar í Keflavík
1986 og til Helga Grétars Helga-
sonar 1988. Það haust var Ránin sett
í úreldingu fyrir Fanney SH. Það
er sérstakt við Rán að báturinn hélt
ætíð því nafni þrátt fyrir eigenda-
skipti og var alla tíð mikið happa-
fley. Skipslíkanið af Rán var smíð-
að af Grími Karlssyni módelsmiði
í Reykjanesbæ en það var smíðað í
tilefni af 70 ára afmælis Helga Ib-
sen 1998. Frá 1979 var Helgi Ib-
sen framkvæmdastjóri Skallagríms
hf., sem rak Akraborg, þar til rekstri
skipsins var hætt árið 1998 með til-
komu Hvalfjarðarganga. Þá stóð
Helgi á sjötugu.
þá
Við skipslíkanið af Rán. Jón Allansson forstöðumaður Byggðasafnsins og fjöl-
skylda Helga Ibsen: Kristján Helgason, Þorbjörg Laufey Þorbjörnsdóttir, Helgi
Helgason, Anna Helgadóttir, Lúðvík Helgason og Þorbjörg Helgadóttir. Einn
sonurinn, Björgvin, er búsettur erlendis og var því ekki viðstaddur athöfnina.
Þorbjörg Laufey Þorbjörnsdóttir við 60 ára gömlu Elna saumavélina sem hún
afhenti Byggðasafninu í Görðum til varðveislu.
?
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
boðar til opins fundar um
frumvarp til laga um náttúrupassa.
Þriðjudaginn 13. janúar kl. 16:30
í Landnámssetrinu, Borgarnesi.
Á fundinum mun ráðherra kynna frumvarpið
og svara fyrirspurnum.
Fundarstjóri verður Vilhjálmur Egilsson,
rektor Háskólans á Bifröst.
Allir áhugasamir hvattir til að mæta.
BORGARNES
þriðjudaginn
13. janúar kl. 16:30