Skessuhorn


Skessuhorn - 07.01.2015, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 07.01.2015, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2015 Fiskvinnsla hófst að nýju í fiskiðju- verum HB Granda í Reykjavík og á Akranesi 2. janúar en hlé var gert á vinnslunni fyrir jól. Á Vopnafirði hefur vinnsla legið niðri frá því að veiðum á íslensku sumargotssíld- inni lauk í lok október en vonast er til þess að þar hefjist vinnsla á loðnu fljótlega á nýju ári, segir í frétt frá fyrirtækinu. Að sögn Torfa Þor- steinssonar, deildarstjóra botnfisks- sviðs HB Granda, fóru ísfisktogar- arnir Ásbjörn RE, Sturlaugur H. Böðvarsson AK og Helga María AK á sjó eftir jólin og sáu þeir vinnslun- um á Norðurgarði í Reykjavík og á Akranesi fyrir hráefni þegar starf- semi hófst þar að nýju eftir hátíð- irnar. Fyrirtækið hefur frestað því að hefja kolmunnaveiðar og því er næst á dagskrá hjá uppsjávarveiði- skipunum á nýju ári að hefja loðnu- veiðar. mm Þann 18. desember síðastlið- inn samþykkti danska Þjóðþingið breytingu á lögum um ríkisborgara- rétt. Þær breytingar gefa kost á tvö- földu ríkisfangi. Lögin taka gildi 1. september næstkomandi en þangað til gilda núverandi lög. Samkvæmt gildandi lögum tapar danskur ríkis- borgari, sem öðlast ríkisborgararétt í öðru landi, ríkisfangi sínu í Dan- mörku. Þetta er aðalástæðan fyrir því að Ulla R Pedersen landslags- arkitekt búsett á Hvanneyri í Borgarfirði hef- ur enn ekki sótt um íslenskan ríkisborgara- rétt þrátt fyrir að hafa búið í 23 ár á Íslandi. Fyrir Dani á Ís- landi snýst mál- ið þó um rétt til að kjósa til Al- þingis og að kjósa forseta. „Það var til- finningamál fyr- ir mig að halda í danska ríkisborg- araréttinn frekar en það væri að efnahagslegum eða öðrum ástæð- um. Á móti hef ég til dæmis fórnað kosningaréttinum á Íslandi,“ segir Ulla, sem þó fær samkvæmt lögum að kjósa til sveitarstjórnar eins og aðrir Danir á Íslandi. „Eftir hrunið fannst mér svekkjandi að geta ekki tekið þátt í atkvæðagreiðslunni um breytingar á stjórnarskránni, kosið nýtt fólk á Alþingi og forseta,“ seg- ir Ulla. Það er skemmtileg tilviljun að núna á þessu ári þegar hundrað ár eru liðin frá því íslenskar konur fengu kosningarétt, að þá mun Ulla sækja um íslenskt ríkisfang og þar með öðlast fullan kosningarétt. Ulla hefur verið í allstórum hópi brottfluttra Dana sem beitt hefur sér fyrir því að danska þingið breyti lögunum þannig að fólk sem flytji burtu frá Danmörku hafi mögu- leika á tvöföldu ríkisfangi. „Það tók mikinn tíma og orku að sann- færa þingið um að þetta hefði ekki skuldbindingar og kostnað í för með sér fyrir danska ríkið,“ segir Ulla. Hún telur mikilvægt að þeir fjölmörgu Danir sem búa á Íslandi viti af þessari lagabreytingu, eink- um þeir sem sótt hafa um íslensk- an ríkisborgararétt og hafa þar með glatað þeim danska. Þeir geta frá og með 15. september nk. til 31. ágúst 2020 sótt um að fá danskan ríkis- borgararétt að nýju og öðlast þar með tvöfalt ríkisfang. Samkvæmt Hagstofu Íslands búa 915 danskir ríkisborgarar á Íslandi, þar af 38 á Vesturlandi. Á árunum 1991-2013 hafa 295 danskir ríkisborgarar öðl- ast íslenskan ríkisborgararétt og þar með glatað þeim danska. Þeir eru vitaskuld töluvert fleiri sem hafa orðið íslenskir ríkisborgarar allt frá því að Ísland öðlaðist sjálfstæði. Að lokum má geta þess að í Dan- mörku verður tvöfaldur ríkisborg- araréttur leyfður í 24 af 28 EU- löndum, eða í 40 af 46 evrópsku löndum. Meiri en 90% íbúa Evr- ópu hafa rétt á tvöföldum ríkis- borgarétti. Í Svíþjóð varð hann leyfður 2002, á Íslandi og Finnlandi 2003, í Belgíu og Þýskalandi 2007, í Luxemburg 2008, Lettlandi 2013 og Tékklandi 2014. þá Vegfarendur eru tvöfalt öruggari að aka um Hvalfjarðargöng nú en áður en ráðist var í umfangsmiklar framkvæmdir árið 2007 til að upp- fylla nýjar reglur um öryggismál í veggöngum. Þetta er niðurstaða úttektar verkfræði- og ráðgjafafyr- irtækisins Mannvits fyrir Spöl, sem á og rekur Hvalfjarðargöng. Jafn- framt kemur þar fram í úttektinni að tölfræðilega sé nú fimmtán sinn- um öruggara að aka um göngin í samanburði við að aka veginn fyr- ir Hvalfjörð. Í tilkynningu frá Speli segir að Guðni I Pálsson verkfræðingur hjá Mannviti hafi metið slysatíðnina í Hvalfjarðargöngum fyrir og eftir endurbætur og þar stuðst við tölur um skráð slys, með og án meiðsla, í gagnasafni Vegagerðarinnar. Guðni hefur áður fjallað um áhættu í göngunum og meistaraprófsverk- efnið hans í verkfræði í háskóla í Svíþjóð fjallaði einmitt um áhættu- greiningu fyrir Hvalfjarðargöng. „Slysum og óhöppum hefur fækk- að verulega í göngunum og því ber auðvitað að halda til haga að mjög fá alvarleg slys og ekkert banaslys hafa orðið frá því þau voru opnuð. Það eru ekki forsendur til að nefna einhverja tiltekna þætti aðgerða á árunum 2008-2013 til skýring- ar á því að dregið hefur úr slysum og óhöppum, heldur eru áhrif að- gerðanna metin í heild. Ég get samt nefnt að aukin lýsing hefur ábyggi- lega sitt að segja og sömuleiðis riffl- urnar í malbikinu,“ segir Guðni. „Ég hef ekki upplýsingar um eðli óhappanna og dreg því ekki víð- tækari ályktanir en af tölfræðinni sem slíkri. Forvitnilegt væri samt að rýna til dæmis betur í óhöpp sem áttu sér stað 2005-2007, í aðdrag- anda efnahagshrunsins. Þau voru mun fleiri en á árunum eftir hrun. Umferðin dróst að vísu saman en vísbendingar eru líka um að menn hafi farið sér hægar. Eðli máls sam- kvæmt fækkar óhöppum þegar öku- menn draga úr hraða,“ segir Guðni I Pálsson. þá Fyrri part dags á mánudaginn í síðustu viku slitnaði ljósleið- ari Mílu á sunnanverðu Snæfells- nesi. Þetta gerðist úti í miðri Kaldá í Kolbeinsstaðahreppi. Talið er að vatnavextir í hlákunni í byrjun vik- unnar hafi valdið því að ljósleiðar- inn fór í sundur. Nokkurn tíma tók að gera við bilunina þar sem erfitt var að komast á staðinn með vélar til að vinna verkið úti í miðri ánni. Því dróst út daginn að ljósleiðar- inn kæmist í lag og reyndar fram á næsta morgun. Með þessari bilun urðu íbú- ar á Snæfellsnesi og reyndar víð- ar á landinu áþreifanlega varir við hvað samfélagið er víða orðið háð ljósleiðurum. Ekkert símasam- band náðist til að mynda við Snæ- fellsnes nema þá í gegnum farsíma. Dagbjört Höskuldsdóttir í Stykk- ishólmi lýsir þessu í samtali við Skessuhorn. „Frá hádegi var ekk- ert netsamband við umheiminn og þar af leiðandi sást ekki sjónvarp þar sem flestir taka það í gegnum netið. Útvarpið datt líka út, það er að segja sendingar á FM. Ég dró þá fram hamfara útvarpið mitt sem ég kalla sem er lítið útvarpstæki sem ég á og er með langbylgju. Ég gat hlustað á Ríkisútvarpið í gegnum hana frá sendinum á Gufuskálum. FM kom svo aftur inn eftir nokkra tíma. Til að byrja með var heldur ekki hægt að borga með kortum í búðunum því posarnir virkuðu ekki. Þeir komu svo inn í Bónus. Ég heyrði aðeins í yngra fólki í gær. Ég veit um einn 13 ára sem fór bara og lagði sig þegar hann sá að netið var úti og ekkert sjónvarp eða neitt. Ég hafði á orði að nú gæti hann lit- ið í bók og fékk „humm“ sem svar. Á einu heimili var bara sest við spil þegar þessi staða var uppi,“ segir Dagbjört. Í heildina segir Dagbjört að þetta hafi verið skrítinn dagur. „En merki- legt var að ekki leiddist manni neitt að ráði. Það var kannski smá pirr- ingur þegar fletta þurfti upp upplýs- ingum. Þá var bara að hugsa út fyrir rammann og finna gamla bók sem leyndist uppi í hillu leyndist og ber nafnið „Símaskrá“. Svo var hægt að finna í matreiðslubók uppskrift sem ég hefði ella leitað eftir á netinu. Jú, jú, þetta blessaðist en maður var minntur á að mikið er maður háð- ur blessuðu netinu sem við fáum til okkar í dag gegnum eina línu sem er þessi ljósleiðari. Þetta leiðir hug- ann að því hversu auðvelt sé fyrir þá sem vilja stöðva samfélög að skera á svona kapla,“ segir Dagbjört Hösk- uldsdóttir í Stykkishólmi. mþh Sturlaugur H. Böðvarsson AK í höfn á Akranesi. Bolfiskvinnsla hófst á annan í nýári Ulla R Pedersen. Danskir ríkisborgarar á Íslandi geta brátt orðið Íslendingar Meðal þeirra endurbóta sem ráðist var í má nefna bætta lýsingu, sívöktun með öryggismyndavélum og fleira. Hvalfjarðargöng tvöfalt öruggari eftir endurbætur Slitinn ljósleiðari í miðri Kaldá minnti á hvað fólk er háð nútíma tækni Dagný Höskuldsdóttir í Stykkishólmi. Stykkishólmur sem og aðrar byggðir Snæfellsnes datt svo gott sem úr sambandi við umheiminn þegar ljósleiðarinn vestur á Nes slitnaði í miðri Kaldá.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.