Skessuhorn


Skessuhorn - 07.01.2015, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 07.01.2015, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2015 Nýr forstöðumaður Markaðsstofunnar VESTURLAND: Kristján Guðmundsson er tekinn við sem forstöðumaður Markaðs- stofu Vesturlands. Markaðs- stofan sinnir markaðssetningu ferðaþjónustunnar í landshlut- anum. Kristján er menntaður ferðamálafræðingur og hef- ur unnið hjá Markaðsstofunni í tæp tvö ár. Hann tekur við starfinu af Rósu Björk Hall- dórsdóttur. Hún hefur gegnt stöðu forstöðumanns frá árs- byrjun 2011. -mþh Þrettándabrenn- um frestað AKRANES: Vegna slæms veðurs var þrettándabrenn- um á Vesturlandi frestað í gær. Á Akranesi var hún færð til föstudagsins 9. janúar. Brenn- an fer fram við „þyrlupallinn“ á Jaðarsbökkum og hefst blys- för við Þorpið að Þjóðbraut 13 kl. 18:00. Álfar, tröll og jóla- sveinar munu leiða gönguna að brennunni þar sem jólin verða kvödd. Í Borgarnesi verður þrettándagleði í Englendinga- vík á laugardaginn 10. janúar klukkan 17:00. Sjá má nánari upplýsingar um hana í auglýs- ingu hér í blaðinu. Í Stykkis- hólmi, Hellissandi og Grund- arfirði var brennun frestað, en ekki lá fyrir hvenær þær yrðu þegar Skessuhorn fór í prent- un. –mm Vanheill maður kveikti í húsi STYKKISH: Lögreglumað- ur á vakt í Stykkishólmi að- fararnótt sunnudags varð var við eld í húsi einu í bænum skömmu eftir að hann kvikn- aði. Húsið er gamall braggi þar sem m.a. er starfrækt vinnustofan Gallerí Braggi. Í ljós kom að vanheill mað- ur í bænum hafði kveikt eld í húsinu og farið inn í það eftir að eldur tók að loga. Það var fyrsta verk lögreglumanns- ins að reyna að ná manninum út og tókst það eftir að hafa fengið til aðstoðar aðstand- anda mannsins. Slökkvilið Stykkishólms kom á vettvang skömmu síðar og tók skamma stund að ráða niðurlögum eldsins. Að sögn lögreglunn- ar á Vesturlandi urðu talsverð- ar skemmdir af eldi og reyk í bragganum. Bæði lögreglu- maðurinn og sá sem eldinn kveikti fengu snert af reykeitr- un en voru báðir útskrifaðir af sjúkrastofnunum á sunnudag. Maðurinn sem kveikti í var færður á stofnun í Reykjavík og er vistaður þar. –þá Eins og ávallt á þessum árstíma ber talsvert á menjum frá því þeg- ar gamla árið var kvatt og því nýja fagnað. Það eru afgangar af blys- um, tertum og skoteldum við lóða- mörk og gangstíga víða. Rétt væri að hver og einn gangi í það að fjar- lægja það sem þeim tilheyrir eða hefur fallið á yfirráðasvæðið. Áfram verður umhleypingasamt í veðri á næstunni en sunnanáttir mest ráðandi. Spáð er suðvestan strekkingi á fimmtudag og föstu- dag með hitastigi aðeins undir frostmarki og éljum sunnan- og vestantil, bjartara fyrir norðan og austan og kaldara í innsveitum. Á laugardag er spáð hægri breyti- legri átt og stöku éljum en úr- komulitlu um landið austanvert. Á mánudag er útlit fyrir að það gangi í sunnan- og suðaustan hvassvirði eða storm með rigningu og hlýn- andi veðri í bili. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns. „Ertu ánægð/ur með netsambandið á þínu heimili?“ Meirihluti svarenda virðist nokkuð ánægður með netsambandið. „Já frábært tenging“ sögðu 24,71%, „já viðunandi“ var svar 35,9%, „nei það er slæmt“ sögðu 18,88% og „nei það er óviðunandi“ sögðu 16,08%. 4,4% vissu það ekki. Í þessari viku er spurt: Ætlar þú að fylgjast með HM í handbolta? Þeir sem taka á móti nýju ári með brosi á vör og bjartsýni fremur en bölmóði fá sæmdarheitin Vest- lendingar vikunnar. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Aðstaðan bætt um borði í nýja Baldri Af ýmsum ástæðum tókst ekki að ljúka öllum verkþáttum um borð í nýju Breiðafjarðarferjunni Baldri áður en skipið var tekið í notkun nú á haustmánuðum. Því þurfti að forgangsraða og núna í vetur verð- ur unnið að því að laga og bæta það eftir var. Unnið verður að þeim verkþáttum um borð í skipinu fyrri hluta dagsins þegar skipið verður ekki í ferðum, en það verður engu að síður áfram í sínum áætlunar- ferðum yfir Breiðafjörð í vetur. Pét- ur Ágústsson framkvæmdastjóri Sæ- ferða vonast til að af þessu hljótist sem minnst óhagræði fyrir faraþega og viðskiptavini en fyrirtækið sendi frá sér tilkynningu á mánudaginn. „Við biðjum viðskiptavini okkar að hafa skilning á óþægindum sem þessu fylgir en þeir verða svo von- andi ánægðir með nýju útkomuna í lok apríl þegar lagfæringum lýkur,“ segir í tilkynningunni. Pétur sagði í samtali við Skessu- horn að iðnaðarmenn yrðu að störf- um um borð í skipinu við bryggju næstu mánuði og sumt í skipið yrði forsmíðað á verkstæði, svo sem allir stigar á milliþilfara bakborðsmegin, sem verða endurnýjaðir og gerðir þægilegri fyrir farþega. Endurnýjað verður gólfefni á báðum farþegasöl- um undir bílaþilfari, skipt út sætum í aftari farþegasal, settir upp bekkir á útiþilfari, yfirfarið og lagfært ým- islegt útlitslega eins og afgreiðsla, hurðir og fleira, stýringar verða lag- færðar á hitakerfi innan dyra og lok- ið við merkingar og íslenskuð skilti. Áætlað er að þessar framkvæmdir muni kosta 15-20 milljónir króna. „Eins og vitað er fengum við ferj- una okkar afhenta mun síðar en áætlað hafði verið, af ástæðum sem flestum er kunnugt. Þar sem á þeim tíma var búið að ráðstafa fyrri ferju varð tíminn til að yfirfara og endur- bæta skipið mun styttri en við hefð- um kosið. Við stóðum því frammi fyrir því að forgangsraða fram- kvæmd úrbóta eða að öðrum kosti verða ferjulaus mun lengur en orðið var. Við tókum því þann kostinn að láta ganga fyrir það allra nauðsyn- legasta en nota síðan veturinn til að ljúka verkinu,“ segir Pétur. þá Páll á Húsafelli sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar Nýi Baldur. Ljósm. mþh. Eins og venjan er var efnt til há- tíðlegrar athafnar á Bessastöðum á nýársdag þar sem Ólafur Ragn- ar Grímsson, forseti Íslands, veitti heiðursmerki hinnar íslensku fálka- orðu. Meðal ellefu Íslendinga sem veittu fálkaorðunni viðtöku að þessu sinni var einn Vestlendingur; Páll Guðmundsson myndlistarmaður á Húsafelli. Páll fékk riddarakross fyr- ir framlag til íslenskrar myndlistar. Aðspurður þegar Skessuhorn óskaði Páli til hamingju, kvaðst hann vera stoltur yfir þeim heiðri sem honum hafi með þessu verið sýndur. Pétur Geirsson kaupir stærstan hluta gamla verslunarhúss KB í Borgarnesi Hinir tíu sem fengu riddarakross fálkaorðunnar voru: Dýrfinna H.K. Sigurjónsdóttir ljósmóðir Reykja- vík fyrir störf á vettvangi heilsugæslu og ummönnunar, Herdís Storgaard hjúkrunarfræðingur Reykjavík fyrir brautryðjandastörf að slysaforvörn- um barna, Inga Þórsdóttir prófess- or og forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, Seltjarnarnesi, fyr- ir framlag til vísinda og rannsókna, Magnús Pétursson ríkissáttasemj- ari og fyrrverandi ráðuneytisstjóri, Reykjavík, fyrir störf í opinbera þágu, Páll Einarsson prófessor í jarðeðlis- fræði, Reykjavík, fyrir rannsóknir og fræðslu á sviði íslenskra jarðvísinda, Sigrún Huld Hrafnsdóttir ólympíu- methafi fatlaðra og myndlistarmað- ur, Reykjavík, fyrir afrek og fram- göngu á vettvangi íþrótta fatlaðra, Sigurður Halldórsson héraðslækn- ir, Kópaskeri, fyrir læknisþjónustu á landsbyggðinni, Sigurður Hansen bóndi, Kringlumýri í Skagafirði, fyr- ir framlag til kynningar á sögu og arfleifð Sturlungaaldar, Silja Aðal- steinsdóttir bókmenntafræðingur, Reykjavík, fyrir framlag til íslenskrar menningar og bókmennta og Þor- valdur Jóhannsson fyrrverandi bæj- arstjóri og skólastjóri, Seyðisfirði, fyrir framlag til mennta og framfara í heimabyggð. þá Pétur Geirsson veitingamaður á Hótel Borgarnesi hefur fest kaup á tveimur efri hæðum og helmingi neðstu hæðar í gamla verslunarhús- næði Kaupfélags Borgfirðinga (KB) við Egilsgötu í Borgarnesi. Heima- tökin er Pétri hæg því Hótel Borgar- nes stendur andspænis húsinu hand- an götunnar. Húsnæðinu var breytt í íbúðir eftir að KB flutti starfsemi sína frá Egilsgötu árið 2000. Rekstr- arfélag sem átti húsið varð síðan gjaldþrota og tók Íbúðarlánasjóður eignina yfir og á tímapunkti var bú- setu hætt í húsinu. Það hefur síðan staðið autt og í niðurníðslu nánast allan þennan áratug. Nú verður gerð bragarbót á þessu. „Þetta eru 21 íbúð frá 60 til 115 fermetrar. Nú á að gera þær allar meira og minna upp. Íbúð- irnar verða vonandi tilbúnar nú í vor,“ segir Pétur Geirsson í samtali við Skessuhorn. Hann hefur þegar hafist handa við að standsetja íbúð- irnar og ráðið hóp iðnaðarmanna til þeirra verka. Ljóst er að endurbæt- ur á húsnæðinu verða miklar. „Þessu húsnæði var breytt í leiguíbúðir eftir að Kaupfélag Borgfirðinga fór héð- an. Umgengnin var misjöfn og það er mjög margt sem þarf að laga,“ sagði Pétur. mþh Pétur Geirsson veitingamaður í Hótel Borgarnesi. Í baksýn er gamla verslunarhús Kaupfélags Borgfirðinga sem hann hefur nú keypt að undanskildum helmingi neðstu hæðarinnar. Vestlendingar stórtækir í snjómokstri Starfsmenn Borgarverks hafa haft mikið að gera við snjómokstur síðasta mánuðinn. Vart verður annað sagt en gósent- íð hafi verið hjá verktökum sem sjá um snjómokstur frá því í byrjun des- embermánaðar, í umhleypinga- og snjóatíð. Tvö vestlensk fyrirtæki sjá um megnið af snjómokstrinum á suðvesturhorninu, það er Borgar- verk í Borgarnesi og Kolur í Búðar- dal. Borgarverk hefur verið með sjö bíla í mokstrinum að undanförnu. Fyrirtækið sér um mokstur á flest- um leiðum á Vesturlandi, Bröttu- brekku í Dölum og frá Vegamótum á Snæfellsnesi suður um að hring- torgi við Grafarvog í Reykjavík og einnig á Þingvallaleið. Borgarverk er einnig með vetrarþjónustu á veg- inum um Hvalfjörð og á sveitaveg- um í Borgarfirði. Kolur í Búðardal er nú annan veturinn með mokst- ur og vetrarþjónustu á Reykjanes- braut frá Hafnarfirði til Keflavík- ur. „Við erum með þrjá bíla og sex menn að störfum á þeirri leið og hér í Búðardal eru þrír menn hjá okkur sem vinna að mokstri á plönum við stofnanir og fyrirtæki,“ segir Gunn- björn Óli Jóhannsson framkvæmda- stjóri Kols. Hann segir að erilssamt hafi verið í snjómokstrinum að und- anförnu. Óskar Sigvaldsson framkvæmda- stjóri Borgarverks segir að mikið hafi verið að gera að undanförnu í snjó- mokstrinum og ekki mikið jólafrí að þessu sinni. Tíu starfsmenn séu jafnan við sjómoksturinn á sjö bíl- um, fjórir bílar staðsettir í Borgar- nesi, tveir í Mosfellsbæ og einn á Akranesi. „Þetta er í raun draumatíð hjá okkur á þessum tíma þegar lítið er um önnur verkefni,“ sagði Óskar í samtali við Skessuhorn. Varðandi tíðarfarið í desember kemur fram á vef Vegagerðarinnar að mánuðurinn hafi verið kaldur suðvestanlands og hiti undir meðallagi síðustu tíu ára um allt land. Snjór hafi verið meiri en að jafnaði í desember suðvestan- lands, nokkuð umhleypinga- og ill- viðrasamt í veðri í mánuðinum og úrkoma víðast yfir meðallagi. þá Á Bessastöðum á nýársdag. F.v. Ólafur Ragnar Grímsson, Dorrit Moussaieff for- setafrú, Dýrfinna H.K. Sigurjónsdóttir, Inga Þórsdóttir, Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Páll Guðmundsson, Silja Aðalsteinsdóttir, Herdís Storgaard, Sigurður Halldórsson, Sigurður Hansen, Þorvaldur Jóhannsson, Páll Einarsson og Magnús Pétursson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.