Skessuhorn - 07.01.2015, Page 9
9MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2015
Snæfellsbær
Snæfellsbær óskar eftir að ráða aðalbókara í 75-100% starf á skrifstofur bæjarins.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og eigi síðar en 1. febrúar 2015.
Við leitum að einstaklingi sem hefur haldgóða bókhalds- og tölvuþekkingu.
Reynsla af vinnu með Navision bókhaldskerfið er æskileg.
Gerð er krafa um stúdentspróf og æskilegt er að umsækjandi
hafi viðskipta- eða rekstrarfræðimenntun.
Laun eru skv. kjarasamningi samflots bæjarstarfs-
mannafélaga og Launanefndar sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar gefur bæjarritari í
síma 433-6900, netfang lilja@snb.is
Umsóknarfrestur er til 20. janúar.
Snæfellsbær óskar eftir að ráða aðalbókara
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Jólatré sótt 12.-14. janúar
Körfuboltafélag Akraness mun sjá um hirðingu jólatrjáa
daganna 12.-14. janúar og er það í boði fyrir alla bæjarbúa.
Eina sem þarf að gera er að setja trén út við götu.
Ath. eingöngu jólatré verða tekin, ekki annað sorp.
Akraneskaupstaður hvetur bæjarbúa til að ganga vel um og
hreinsa upp eftir flugelda, sprengjur, kökur og fleira sem fallið
hefur til eftir nýárs- og þrettándagleði. SK
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Bæjarstjórn Stykkishólms sam-
þykkti nýlega að heimila fjölgun
í Slökkviliði Stykkishólms og ná-
grennis. Guðmundur Kristins-
son slökkviliðsstjóri segir að það
sé fyrst og fremst varúðarráðstöfun
að fá heimild til fjölgunar í slökkvi-
liðinu. Ákveðinn aldurshóp vanti
orðið inn í liðið og einnig beri að
horfa til þeirra breytinga sem orð-
ið hafa á vinnumarkaðinum, menn
séu farnir að vinna meira burtu frá
staðnum auk þess sem í slökkvilið-
inu eru sjómenn og atvinnubílstjór-
ar. „Fyrst við erum ekki með mann-
aða stöð þá er óvissa í því hverjir
eru til taks. Ég vissi af einum manni
sem var menntaður og hann hefur
bæst í hópinn,“ segir Guðmundur
en hann á ekki von á því að þessi
heimild til fjölgunar verði nýtt að
fullu á næstunni. „Þetta var var-
nagli að fá þessa heimild og nauð-
synleg að okkar mati, nýliðunar er
þörf og menn eldast þannig að þeir
eru ekki jafntilbúnir og áður í krefj-
andi störf svo sem reykköfun. Þótt
ekki sé borgað fyrir útköll kost-
ar um milljón að bæta við manni
í slökkviliðið, þegar búnaðurinn
og menntunin er talin. Það þurfti
því að fá heimild til aukinna fjár-
útláta,“ segir Guðmundur slökkvi-
liðsstjóri. Aðspurður sagði hann að
á skrá hjá Slökkviliði Stykkishólms
og nágrennis væru 20 slökkviliðs-
menn og heimild fékkst til að bæta
við fimm mönnum í liðið.
þá
Hjón sem eiga sumarhús í landi
Fossatúns í Borgarbyggð hafa
sent fyrirspurn til sveitarfélags-
ins varðandi sorphirðumál.
Eins og kunnugt er hefur Borg-
arbyggð verið að fækka grennd-
arstöðvum fyrir sorp samhliða
því að lögbýli í dreifbýli fengu
sorp- og flokkunarílát við bæj-
ardyrnar. „Við hjónin erum
með sumarhús hér í Borgar-
firði. Borgum fasteignagjöld og
þar er talað um sorphirðu, sem
ekki gengur mjög vel. Við erum
hér mjög mikið, eða 200 - 250 daga
á ári. Fyrst var gámur á Vatnshömr-
um, sem var tekinn, og þá tók Brek-
kuland við. Nú er það dæmi búið.
Hvað er ætlast til að fólk á þessu
svæði geri við sorpið sitt? Viljum fá
svör hið allra fyrsta,“ spyrja hjónin.
Jökull Helgason hjá Borgar-
byggð upplýsir að þær grenndar-
stöðvar sem eru næst Fossatúni séu
í landi Múlakots í Lundarreykjadal
og svo í Bæjarsveit. „Samkvæmt
heilbrigðisreglum ber sveit-
arfélögum að hafa grenndar-
stöðvar í nágrenni þeirra sum-
arhúsahverfa sem hafa 20 sum-
arhús eða fleiri, í Fossatúns-
landi eru skráð 16 sumarhús,“
segir Jökull og bætir því við að
staðsetning grenndarstöðva og
breytingar á þeim nú undanfar-
ið hafi verið kynntar á heima-
síðu sveitarfélagsins og öðrum
miðlum. „Mögulega höfum við
þó ekki náð athygli sumarhúsa-
eigenda með þeim auglýsingum og
gefur það tilefni til að auglýsa stað-
setningu grenndarstöðvanna enn
betur,“ segir Jökull Helgason.
mm
Guðmundur Kristinsson slökkviliðs-
stjóri í Stykkishólmi.
Heimilað að fjölga
slökkviliðsmönnum í Stykkishólmi
Samhliða sorptunnuvæðingu í dreifbýli hefur
grenndarstöðvum verið fækkað.
Þarf minnst tuttugu sumarhús til að
grenndarstöð verði komið fyrir