Skessuhorn


Skessuhorn - 07.01.2015, Side 15

Skessuhorn - 07.01.2015, Side 15
15MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2015 Í lauginni leggst hann í sundið að losna við grömmin og pundið. Á bringu og bak, í busl og í skak. Ja þetta var sér vel til fundið! Á bakkanum börnin öll sjá´ann: Svo bjartan - svo stæltan - svo knáan! Müllersæfingin er á við óvígan her. Ó við öll megum elsk‘ann og dá‘ann. Að Grund síðan höldur sá heldur, í heilsunnar brunn – ofurseldur. Krúska – músli – og mjöl, mjúkar ferskjur og söl. Við fjölina ei verður feldur. Þvottaburstinn Júlli hefði getað orðið góður leyni- lögreglumaður. Hann hafði svo- kallaðan sjötta sans, þ.e. hafði skilningarvit öðruvísi en við hin og sá hann oft langt fram í tím- ann. Uppfinningar hans eru marg- ar þó ekki hafi þær allar komist enn í notkun. Mér dettur t.d. í hug lík- ams-þvottaburstana sem hönnuð- ir í Reykjavík teiknuðu fyrir hann en burstarnir voru ætlaðir til notk- unar á sundstöðum, á svipaðan hátt og bílar eru þvegnir á bílaþvotta- stöðum. Góð hugmynd sem kvikn- aði einmitt í Bjarnalaug. Júlli var í sturtunni að þvo sér; einnig Steini á Kjaransstöðum, frægur maður á sinni tíð (Steini Ohoj!). Júlli þvoði sér vel og vandlega, eins og reglur sögðu til um, á meðan Steini þvoði sér aðeins á hvirflinum í stutta stund. Júlli vandaði um við Steina og sýndi honum hvernig hann ætti að þvo sér, en seinna um daginn hafði hann samband við vini sína á teiknideild Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna og bað þá að teikna líkamsbursta sem hann var búinn að gera uppkast að. Þeir höfðu gaman af þessu og urðu við bóninni. Ein- hvers staðar er þessi teikning til, vel útfærð, vonandi að hún finnist fyrr en síðar. Síðustu sundtökin Nokkrum dögum fyrir andlát sitt þann 28. október árið 1998, hringdi Júlli í mig, þá orðinn næstum því blindur, á nítugasta aldursári. Ég keyrði hann í Ríkið, hann vildi færa nokkrum félögum sínum og vinum sérrý til að ylja sér við. Eft- ir það bað hann mig að labba með sér einn lokahring um laugina, þ.e. Jaðarsbakkalaug og sýna sér og segja sér frá því helsta. Mér þótti þetta skrýtin hegðun hjá frænda en hugleiddi ekki þá að hann sá fyr- ir að endalokin voru komin, hérna megin, því hann dó tveimur dög- um síðar. Þessi síðasta ferð okk- ar frændanna sýnir hve sundlaugin stóð honum ofarlega í huga og hve mikils hann mat sundíþróttina. Um leið og ég óska Bjarnalaug hjartanlega til hamingju með 70 ára afmælið, þá vil ég þakka henni og öllum þeim fjölda starfsmanna, sem þar hafa unnið alla tíð, og blessuð sé minning Bjarna Ólafs- sonar skipstjóra sem gaf henni nafn sitt. Ásmundur Ólafsson. Júlli á Grund. Ljósmynd: Ragnheiður Þórðardóttir. Helgi Hannesson sundþjálfari með Akrafjall í baksýn. Ljósmynd: Árni S. Árnason. Skólinn býður upp á marga nýja möguleika Rætt við Ágústu Elínu Ingþórsdóttur, nýjan skólameistara FVA Ágústa Elín Ingþórsdóttir tók við starfi skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi 1. janúar síð- astliðinn. Ágústa Elín hefur víðtæka reynslu af kennslu og stjórnunar- störfum. Hún lauk diplómagráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Ís- lands 2008, meistaragráðu í uppeld- is- og menntunarfræðum frá sömu stofnun 2005 og hefur auk þess lokið diplómagráðu í náms- og starfsráð- gjöf, kennslufræðum til kennslurétt- inda og BA gráðu í þýsku og heim- speki. Síðustu fimmtán ár hefur hún starfað í Borgarholtsskóla í Reykjavík sem gæða- og sviðsstjóri, náms- og starfsráðgjafi og kennari. Hún segir skólana að því leytinu til áþekka, að fjölbreytni í námi og nemendahópi sé mikil. „Í báðum skólum er boðið upp á almenna námsbraut, bóknáms- brautir til stúdentsprófs, starfstengd- ar námsbrautir og nám fyrir fatlaða. Dýrmæt reynsla mín með nemend- um, kennurum og stjórnendum á því að nýtast vel í nýjum skóla,“ seg- ir Ágústa Elín í samtali við Skessu- horn. Mikilvægt að efla tengsl Ágústa Elín er fædd og uppal- in í Reykjavík en hefur þó tengingu við Vesturlandið. „Ég ólst upp hjá ömmu minni sem var kennari og var frá Eyja- og Miklaholtshreppi og bjó á Skógarströnd. Ég var mikið sem barn og unglingur í Borgarfirði og var svo í fjögur ár í Samvinnuskól- anum á Bifröst,“ útskýrir hún. Eig- inmaður Ágústu er Kristján Ásgeirs- son, löggildur endurskoðandi og fjármálastjóri og eiga þau fjórar dæt- ur. Ágústa Elín segir að sér hafi alla tíð verið umhugað um nám, kennslu og skólastarf. „Sýn mín á skólastarf byggir á gömlum sannindum og nýj- um. Ég tel mikilvægt að efla tengslin við samfélagið utan veggja skólans; við atvinnulífið, foreldra og í raun samfélagið allt. Þau viðfangsefni sem snerta áhugamál mín eru lýðræði í skólastarfi, siðgæðisuppeldi, nám gegn fordómum, skapandi hugsun og skólaþróun.“ Mikil vinna í innleiðingarmálum Fyrsta stóra verkefnið sem Ágústa Elín þarf að takast á við sem skóla- meistari FVA er innleiðingarferli að nýjum lögum, sem framhaldsskól- ar landsins standa frammi fyrir. Hún segir mikla vinnu standa fyrir dyrum í innleiðingarmálunum. „Það þarf að fara yfir hugmyndir sem unnið hef- ur verið að, kortleggja og gera áætlun um hvernig við ætlum að ljúka þessu verki. Mér finnst mikilvægt að það verði gert þannig að skólinn verði í góðu samstarfi við nærumhverf- ið, svo sem grunnskólana. Það verð- ur gjörbreyting á námsskipulagi og verklagi í skólum. Ég tel að hin nýja skólastefna beini sérstakri athygli að nýjum kennsluháttum, námsbraut- um og tækni á öld þekkingar og upp- lýsingatækni. Skýr skólasýn getur átt sinn þátt í að færa skólastarf í átt að þessum markmiðum,“ segir Ágústa Elín. Spennandi vinna framundan Ágústa leggur mikla áherslu á að skól- inn eigi að þjóna öllum landshlutan- um. „Ég hef áhuga á því að boðið verði upp á nám sem nærumhverfið kallar eftir og byggir á þörfum nem- enda. Lengi hefur verið talað um að gera þurfi verknám jafngilt bóknámi. Það er því mikil þörf á stefnumótun og þróun þar að lútandi.“ Hún seg- ir að þau mál sem hún telur nú vera brýnast að skólinn einbeiti sér að séu fyrst og fremst innleiðingarmálin en þar að auki mannauðsmál, kynning- armál og efling starfsnáms. „Fjöl- brautaskóli Vesturlands hefur bæði yfir aðstöðu og fagfólki að ráða sem býður upp á marga nýja möguleika. Það er því spennandi vinna framund- an. Ég hef mikinn áhuga og metnað til farsæls skólastarfs og óska þess að eiga gott og ánægjulegt samstarf við alla hagsmunaaðila með það mark- mið að leiðarljósi að gera góðan skóla enn betri,“ segir Ágústa Elín að endingu. grþ Niðursuðuverksmiðjan Akraborg óskar eftir að ráða metnaðarfullan og ábyrgan einstakling til starfa við lýsisvinnslu fyrirtækisins Starfið felst í daglegri umsjón og eftirliti með lýsisframleiðslu, utanumhaldi og útskipunum Reynsla af bræðslu og fiskiðnaði æskileg, en ekki skilyrði Almenn þekking á vélaviðgerðum og viðhaldi kostur Umsóknir sendist á Rolf Arnarson framkvæmdastjóra á netfangið rolf@akraborg.is Atvinna SK ES SU H O R N 2 01 5 Ágústa Elín Ingþórsdóttir skólameistari FVA.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.