Skessuhorn


Skessuhorn - 28.01.2015, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 28.01.2015, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 Freyr AK 81 sem gerður er út til sjóstangveiðanna. Ætlar að færa út kvíarnar á sjóstönginni í vor Magnús Freyr Ólafsson forvígis­ maður í ferðaþjónustu tengdri sjóst­ angveiði á Akranesi ætlar að færa út kvíarnar í starfseminni í vor. Magnús Freyr hefur starfrækt farfuglaheimili við Suðurgötu 32 á Akranesi síðustu árin. Hann hefur nú fengið lóð og byggingarleyfi fyrir húsi á lóðinni þar framan við, á Suðurgötu 33. Það hús verður ætlað áhöfnum sjóst­ angveiðibáta og er um að ræða lít­ ið fjölbýlishús með fjórum íbúðum á tveimur hæðum, hver íbúð um 100 fermetra að stærð og fjögurra her­ bergja. Jarðvegsskipti eru að hefj­ ast þessa dagana en áformað er að tvær íbúðanna verði tilbúnar þegar háannatíminn hefst í ferðamennsk­ unni í vor. Magnús Freyr sagði í samtali við Skessuhorn að hver íbúð yrði ætluð sex manna áhöfn sjóst­ angveiðibáta. Hann segir að núna sé nær fullpantað í sjóstangveiði næsta sumar á bátinn Frey AK 81 sem fé­ lagið á og gerður er út til sjóstang­ veiðanna. Nú er unnið að því að fjárfesta í öðrum báti til að gera út á sjóstöngina í sumar. Magnús Freyr vinnur að sjóstang­ veiðiverkefninu með þýska athafna­ manninum Jens Kalinke sem hef­ ur sín sambönd í Evrópu auk þess sem Magnús Freyr vinnur einn­ ig að markaðsmálunum. Til stóð að þeir félagar myndu reisa sex smáhýsi á Akurshóli á Akranesi og það ferli var komið langt þegar þeir hurfu frá þeim áformum. „Okkur sýndist ekki sátt um þessa staðsetningu húsanna og því var þessi kostur tekinn,“ sagði Magnús. Hann segir að nýja húsið verði byggt úr forsteyptum eining­ um og bygging þess eigi ekki að taka langan tíma. Fjármögnun sé lokið og ekki verði beðið boðanna með að hefja framkvæmdir enda tilskilin leyfi fyrir hendi. þá Gáfu hjólalyftara á Höfða Rebekkustúkan nr. 5 Ásgerður I.O.O.F. á Akranesi afhenti síðstlið­ inn fimmtudag Höfða – hjúkrunar­ og dvalarheimili, að gjöf GL5 hjóla­ lyftara frá Guldmann ásamt sex segl­ um. Að afhendingu lokinni þáðu systur kaffiveitingar og Helga Atla­ dóttir hjúkrunarforstjóri kynnti starf­ semi Höfða. Á meðfylgjandi er Helga Atladóttir hjúkrunarforstjóri að sýna Ásgerðarsystrum hvernig lyftarinn er notaður. -fréttatilkynning Fjallabíll fyrir snæfellska ferðaþjónustu Rútuferðir ehf, eða Snæfellsnes Excursions, voru að bæta við sig bíl á dögunum en þá var fjárfest í Ford Econline 350 sem fyrirtæk­ ið lét breyta fyrir fjallaferðir. Með­ al annars voru sett 44” dekk und­ ir hann. Bíllinn tekur 14 farþega og er hugsaður í vetrarferðamennsku en einnig er ætlunin að nota hann á sumrin við að ferja ferðamenn upp að jökulrönd Snæfellsjökuls. Hjalti Allan Sverrisson bílstjóri var nokk­ uð ánægður með nýja bílinn þeg­ ar ljósmyndari Skessuhorns fékk að skoða vagninn enda er þetta glæsi­ legur fjallabíll. tfj Hvassviðri hamlaði umferð og raflínur slitnuðu Óhætt er að segja að kröftugir um­ hleypingar haldi áfram í veðrinu. Um síðustu helgi gengu tvær djúp­ ar lægðir yfir landið. Óveður var víða um vestanvert landið og sums­ staðar ófærð á laugardagskvöld sök­ um snjóa og hvassviðris. Af þeim sökum var lokað fyrir umferð m.a. um Kjalarnes framan af kvöldi og stóðu björgunarsveitarmenn vakt til að ekki yrði ekið þar um. Ófært var um Vatnaleið á Snæfellsnesi á laug­ ardagskvöldinu og erfið færð á lág­ lendi sökum hvassviðris og krapa­ elgs. Rafmagn fór af Melasveitarlínu um áttaleytið um kvöldið og voru bæirnir frá Brennimel að Melasveit straumlausir. Laust fyrir klukkan 22 um kvöldið tókst að gera við bilun í háspennustreng við Skorholt og skömmu fyrir miðnætti lauk viðgerð vestan við Skorholt og voru þá allir bæir í Melasveit komnir að nýju með rafmagn. Sökum hvassviðris þurftu starfsmenn Rarik að bíða framan af kvöldi uns vindur gekk lítið eitt nið­ ur. Þorrablót og aðrir mannfagnaðir voru víða um vestanvert landið þetta kvöld og munu einhver afföll hafa verið á að fólk kæmist á mannamót­ in sökum lokana á vegum. Óveðrið tók sig upp að nýju á sunnudeginum. Voru fjallvegir lok­ aðir, meðal annars Vatnaleið, Bratta­ brekka og Holtavörðuheiði. Voru björgunarsveitirnar Heiðar í Borg­ arfirði, Brák í Borgarnesi og Ósk í Búðardal m.a. kallaðar til að sinna vegalokunum og aðstoð við vegfar­ endur beggja vegna Holtavörðu­ heiðar. Á Bifröst var sett upp mót­ taka fyrir strandaglópa sem urðu frá bílum sínum að hverfa á Holta­ vörðuheiði. Enn fleiri voru veður­ tepptir norðan Holtavörðuheiðar, en þar voru allt af 400 manns teppt­ ir í Staðarskála þegar mest var á sunnudagskvöldinu og þurftu flest­ ir gistingu á nærliggjandi gististöð­ um. Aðgerðum björgunarsveita lauk á Holtavörðuheiði á mánudeginum. Einnig aðstoðuðu sveitirnar við að koma flutningabíl sem oltið hafði á réttan kjöl sem og tengivagni sem var á hliðinni. Eitthvað var um að ökumenn virtu ekki lokanir Vega­ gerðar og lögreglu, samkvæmt upp­ lýsingum frá Landsbjörgu, þrátt fyr­ ir að vegum hafi verið lokað með slám, skiltum og björgunarsveita­ bílum með blikkandi ljós. Í þeim til­ vikum var lögreglu gert viðvart og eiga ökumennirnir von á viðurlög­ um vegna þessa. Eftirmiðdag á sunnudag fór raf­ magn af aðveitustöðinni við Glerár­ skóga í Dölum og var því rafmagns­ laust í Dalabyggð þegar flutnings­ lína Landsnets frá Hrútatungu leysti út klukkan 17:55. Viðgerð lauk rúm­ um klukkutíma síðar. mm Leiðindaveður var á Snæfellsnesi á laugardagskvöldinu og sunnudaginn þegar þessi mynd var tekin. Björgunarsveitin Lífsbjörg var kölluð út um tvöleytið vegna þess að þakplötur voru að fjúka af sjóbúðum í Ólafsvík. Ljósm. af. Svona var umhorfs á Vatnaleið á Snæfellsnesi að kvöldi laugardags. Kolófært. Ljósm. mþh. Töpuðu með minnsta mun í Útsvari Borgarbyggð tapaði fyrir Seltjarn­ arnesi með minnsta mögulega mun þegar fulltrúar þessara sveitarfélaga áttust við í Útsvarsþætti í Ríkissjón­ varpinu á föstudagskvöldinu. Við­ ureignin, sem endaði 70:71, var afar spennandi allan tímann og merki­ legt hvað bæði lið áttu oft svör við fremur strembnum spurningum spurningahöfundar. Borgfirðing­ ar röðuðu inn svörum við fimmtán stiga spurningum og má segja að ef eitthvað eitt hafi fellt liðið umfram annað þá hafi það verið skortur á æfingu fyrir leikrænu tilburðina. Þar reyndist túlkun á mannanöfn­ um báðum liðum erfið, en færri stig féllu þó Borgfirðingum í skaut í þeim hluta þáttarins. Þau Stef­ án Gíslason, Jóhann Óli Eiðsson og Eva Hlín Alfreðsdóttir fulltrú­ ar Borgarbyggðar geta engu að síð­ ur borið höfuð hátt þrátt fyrir þetta nauma tap. Þau voru bráðskemmti­ legir fulltrúar sinnar heimabyggðar í þáttunum. mm Bökuðu pönnukökur fyrir bóndadaginn Bóndadagurinn, fyrsti dagur í Þorra, var á föstudaginn. Soroptimista­ klúbbur Akraness hafði í mörgu að snúast kvöldið áður og að morgni bóndadags. Þá bökuðu klúbbfélagar pönnukökur sem síðan var ekið til fyrirtækja á Akranesi. „Pönnukök­ urnar voru bakaðar um kvöldið, um 140 pönnukökur á mann. Við hitt­ umst svo klukkan sex um morgun­ inn til að setja á allar pönnukökurn­ ar. Loks voru til 3500 pönnukökur sem voru ýmist með sultu og rjóma eða sykri. Við erum 32 í klúbbn­ um og flestir koma á einhvern hátt að þessu. Það þarf meðal annars að hræra, pakka, telja og útbúa reikn­ inga,“ segir Unnur Guðmunds­ dóttir formaður Soroptimistaklúbbs Akraness í samtali við Skessuhorn. Hún segir að hefðin sé orðin rótgró­ in enda hafa klúbbfélagar bak­ að pönnukökurnar frá því í kring­ um síðustu aldamót. Bóndadagspönnukök­ urnar eru aðalfjáröflun klúbbsins en ágóðinn er nýttur til góðgerð­ armála. „Höfuðmark­ mið Soroptimista er að styrkja og efla kon­ ur til sjálfstæðis. Við höfum til dæmis ver­ ið að styrkja HVER á Akranesi en við erum hluti af alþjóðasam­ tökum og styrkjum því einnig á landsvísu og erlendis,“ segir Unn­ ur. Klúbburinn vill að endingu nota tæki­ færið og koma á fram­ færi innilegum þökk­ um til fyrirtækja fyrir veittan stuðning á liðn­ um árum. grþ

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.