Skessuhorn - 18.11.2015, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2015 15
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
VR óskar eftir
orlofshúsum
VR óskar eftir að leigja vönduð sumarhús eða orlofsíbúðir
til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði
á landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi inn
upplýsingar á vr@vr.is fyrir 1. desember 2015.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
- Lýsing á eign og því sem henni fylgir
- Ástand íbúðar og staðsetning
- Stærð, öldi svefnplássa og byggingarár
- Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni
Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir
og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Næstkomandi laugardag stendur
Átthagastofa Snæfellsbæjar, ásamt
Svæðisgarðinum Snæfellsnesi og
Frystiklefanum, fyrir fjölmenning-
ar- og matarhátíð í Frystiklefanum
í Rifi. Að sögn Dagbjartar Agnars-
dóttur verkefnastjóra hjá Átthag-
astofunni er hugmyndin sú að fólk
geti kynnt mat og menningu sína
á viðburðinum. „Fólk kemur með
mat á hlaðborð og réttirnir merkt-
ir upprunalandi og sagt frá megin
innihaldsefnum. Eins ef það er ein-
hver saga á bakvið réttinn, þá fer
það með. Svo verðum við með stórt
svið þar sem hægt verður að stíga á
stokk og segja sögu, dansa, syngja
lag eða hvað eina sem fólki dettur í
hug,“ segir Dagbjört.
Verkefnið er styrkt af Uppbygg-
ingarsjóði Vesturlands og fá þeir
sem koma með mat á hlaðborðið
endurgreitt allt að sexþúsund krón-
um fyrir þátttökuna. „Þetta á að
vera auðvelt og þægilegt fyrir alla,
enda viljum við fá sem flesta þátt-
takendur. Það er að koma mynd á
dagskrána, við fáum sögu frá Pól-
landi, atriði frá Bosníu og Þýska-
landi og svo ætlar hljómsveitin As-
tron að spila fyrir gesti svo fátt eitt
sé nefnt.“
Kynning verður á nýju appi sem
þýðir íslensku yfir á mörg tungu-
mál. Hægt er að tala við það á ís-
lensku og það talar til baka á er-
lendu tungumáli,“ segir Dagbjört.
Stefnt er á að viðburðurinn verði
árlegur og vindi upp á sig með
litlum uppákomum og verkefnum
um allt Snæfellsnes. Hátíðin verður
frá klukkan 16 til 19 og frítt er inn.
„Það eru allir velkomnir, alls stað-
ar að af landinu og úr heiminum,
við setjum engin mörk,“ segir Dag-
björt að endingu. grþ
Fjölmenningarhátíð verður haldin í Frystiklefanum laugardaginn 21. nóvember.
Fjölmenningar- og matar-
hátíð í Frystiklefanum
Mishermt var í síðasta tölublaði
Skessuhorns að spunaleikurinn
Þjónn í súpunni sem fer fram næstu
vikur á jólahlaðborði í Hernáms-
setrinu á Hlöðum á Hvalfjarðar-
strönd væri eftir Akurnesinginn
Árna Ibsen. Svo mun ekki vera.
Misskilningurinn stafaði af því að
gömul frétt Morgunblaðsins frá
1997, þegar spuninn var fyrst sett-
ur upp í Iðnó í Reykjavík, hermdi
að Árni væri höfundur verksins.
Þessi misskilningur virðist aldrei
hafa verið leiðréttur og þegar leit-
að er að „Þjónn í súpunni“ á go-
ogle-leitarvélinni birtist þessi frétt
úr Morgunblaðinu fyrir tæpum 18
árum með þessum röngu upplýs-
ingum.
„Þetta er spuni, en byggist á
ákveðinni „beinagrind.“ Upphaf-
lega útgáfan af Þjóninum varð til
í hópvinnu okkar í Iðnó. Það voru
ég, Edda Björgvinsdóttir, Kjartan
Guðjónsson, Margrét Vilhjálms-
dóttir, Bessi Bjarnason og Stefán
Karl Stefánsson. Gísli Rúnar Jóns-
son var okkur líka innan handar.
Ég var svo leikstjóri. Að Þjónin-
um í Iðnó komu margir leikarar því
þetta gekk svo lengi að við urðum
að fá leikara til að leysa af í styttri
eða lengri tíma. Enginn hafði reikn-
að með svona góðu gengi. Þegar ég
var leikhússtjóri á Akureyri, 2008 -
2012 setti ég Þjóninn svo aftur upp í
samvinnu við þau heiðurshjón Arn-
rúnu og Friðrik á veitingastaðnum
Friðriki V. Þar komu einnig margir
góðir leikarar við sögu og sýningin
vakti feikilega lukku og gekk lengi,“
segir María Sigurðardóttir leikstjóri
Þjóns í súpunni á Hlöðum.
mþh
Þjónn í súpunni ekki
eftir Árna Ibsen