Skessuhorn - 18.11.2015, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2015 31
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Króatíski framherjinn Hrvoje To-
kic hefur gert eins árs samning við
Víking Ólafsvík og mun leika með
liðinu í Pepsideild karla næsta sum-
ar. Tokic gekk til liðs við Víking á
miðju síðasta tímabili, skoraði tólf
mörk í aðeins átta leikjum og átti
stóran þátt í því að Ólafsvíkurliðið
tryggði sér sæti í efstu deild. Fram-
herjinn kemur til landsins 1. febrú-
ar næstkomandi og hefur undir-
búning fyrir komandi keppnistíma-
bil með liðsfélögum sínum í Vík-
ingi.
Allir erlendu leikmannanna sem
léku með Víkingi á liðnu sumri hafa
nú endurnýjað samninga sína við
liðið. Að sögn Jónasar Gests Jónas-
sonar, formanns knattspyrnudeildar
Víkings, eru forsvarsmenn félagsins
að skoða fleiri leikmenn þessa dag-
ana til að styrkja sig fyrir átökin í
efstu deild á komandi sumri.
kgk/af
Tokic framlengir við Víking
Hrvoje Tokic fagnar marki í leik með
Víking síðasta sumar. Ljósm. af.
ÍA sótti Breiðablik heim í 1. deild
karla í körfuknattleik föstudaginn 13.
nóvember. Skagamenn byrjuðu betur
og voru betra liðið á vellinum strax
frá fyrstu mínútu leiksins en leik-
menn Breiðabliks voru aldrei langt
undan. Heimamenn tóku góðan
sprett undir lok annars leikhluta og
þegar hálfleiksflautan gall höfðu þeir
minnkað muninn niður í fjögur stig,
31-35. Síðari hálfleikur var keimlík-
ur þeim fyrri, Skagamenn höfðu yf-
irhöndina en Blikar eltu. Leikmenn
ÍA áttu þó svör við öllum aðgerðum
Blikanna og sigruðu að lokum með
tólf stiga mun, 65-77.
Sean Tate var atkvæðamestur í liði
ÍA. Hann skoraði 26 stig, gaf átta
stoðsendingar og tók sex fráköst. Ás-
kell Jónsson kom honum næstur með
17 stig og fjögur fráköst.
Skagamenn eru eftir sigurinn gegn
Blikum í 4. sæti deildarinnar með sex
stig eftir fjóra leiki. Í dag, miðviku-
daginn 18. nóvember, mætast svo ÍA
og Skallagrímur í Vesturlandsslag 1.
deildar karla. Leikið verður í íþrótta-
húsinu við Vesturgötu á Akranesi.
kgk
Skagamenn sigruðu Breiðablik
Áskell Jónsson skoraði 17 stig þegar
Skagamenn lögðu Blika. Ljósm. jho.
Snæfell mætti Íslandsmeisturum
KR í Domino‘s deild karla í körfu-
knattleik í Vesturbænum síðastliðinn
fimmtudag. Heimamenn tóku frum-
kvæðið strax í upphafi en það gekk á
með skini og skúrum í leik Snæfells.
Þeir rauðklæddu héldu í við KR-inga
í fyrsta leikhluta en eftir það fór Vest-
urbæjarliðið að slíta sig frá gestunum
og staðan í hálfleik var 55-32, KR í
vil.
Leikmenn Snæfells byrjuðu þriðja
leikhlutann ágætlega en leikur liðsins
í síðari hálfleik var engu að síður ka-
flaskiptur, rétt eins og sá fyrri. KR-
ingar juku hægt og rólega forskot
sitt og unnu að lokum 39 stiga sig-
ur, 103-64.
Atkvæðamestur hjá Snæfelli var
bakvörðurinn Sherrod Wright. Hann
skoraði 18 stig og tók átta fráköst.
Sigurður Þorvaldsson skoraði 15 stig
og tók sex fráköst og Austin Bracey
skoraði 11 stig.
Eftir leikinn í gær er Snæfell i 10.
sæti deildarinnar með fjögur stig eft-
ir sex leiki. Í næsta leik tekur liðið á
móti Tindastóli, fimmtudaginn 19.
nóvember.
kgk
Snæfell tapaði stórt fyrir KR
Stefán Karl Torfason í baráttu við Michael Craion miðherja KR.
Ljósm. Þorsteinn Eyþórsson.
Skallagrímur tók á móti Reyni frá
Sandgerði í 1. deild karla í körfu-
knattleik föstudaginn 13. nóvem-
ber síðastliðinn. Heimamenn náðu
undirtökunum í leiknum um miðj-
an fyrsta fjórðunginn og áttu aðeins
eftir að herða tök sín á leiknum eftir
það. Þeir leiddu með 25 stigum þeg-
ar flautað var til hálfleiks, 57-32 og
komnir í sérdeilis þægilega stöðu.
Gestirnir áttu aldrei möguleika í síð-
ari hálfleik og Skallagrímsmenn juku
forskot sitt hægt og sígandi. Þegar
flautað var til leiksloka var munurinn
orðinn 47 stig. Lokatölur í Borgar-
nesi urðu 106-57, Skallagrími í vil.
Bæði Sigtryggur Arnar Björns-
son og J.R. Cadot áttu stórleiki fyr-
ir Skallagrím á föstudag. Sigtrygg-
ur náði fyrstu þrennu 1. deildar karla
með 17 stig, tólf fráköst og tíu stoð-
sendingar. Cadot skoraði 29 stig og
reif niður 19 fráköst.
Næst mæta Skallagrímsmenn ná-
grönnum sínum í ÍA í Vesturlands-
slag 1. deildarinnar. Fer leikurinn
fram í kvöld, miðvikudaginn 18.
nóvember, í íþróttahúsinu við Vest-
urgötu á Akranesi. kgk
Skallagrímur
reif Reyni upp
með rótum
J.R. Cadot treður með tilþrifum gegn Reyni síðastliðinn föstudag.
Ljósm. facebook-síða Skallagríms.
Skallagrímur heimsótti KR í Vest-
urbæinn í 1. deild kvenna í körfu-
knattleik síðastliðinn laugardag.
Liðin fylgdust að framan af leik en
leikmenn Skallagríms voru þó ör-
lítið sterkari. Erikka Banks, sem ný-
verið gekk til liðs við Skallagrím, fór
meidd af velli eftir að eins sjö mín-
útna leik. Það virtist hins vegar ekki
slá Skallagrím út af laginu, því um
miðjan annan leikhluta gáfu liðs-
félagar hennar aðeins í og náðu að
slíta sig frá heimamönnum og leiddu
í hálfleik með 44 stigum gegn 30.
Þrátt fyrir mikla baráttu KR-
inga og nokkrar heiðarlegar tilraun-
ir þeirra til að minnka muninn lét
Skallagrímur forskot sitt aldrei af
hendi. Borgarnesliðið hélt KR-ing-
um í skefjum og vann að lokum 14
stiga sigur, 64-78.
Kristrún Sigur-
jónsdóttir var at-
kvæðamest í liði
Skallagríms, skor-
aði 26 stig, tók
tíu fráköst og gaf
fjórar stoðsend-
ingar.
Skallagrímur
situr örugglega í
efsta sæti 1. deild-
ar með 10 stig
eftir fimm leiki.
Næst etur liðið
kappi við Breiða-
blik í Borgarnesi
miðvikudaginn
18. nóvember.
kgk
Skallagrímur sótti sigur í Vesturbæinn
Kristrún Sigurjónsdóttir átti stórleik þegar Skallagrímur
lagði KR í Vesturbænum. Ljósm. Ómar Örn Ragnarsson.
Íslandsmeistarar Snæfells unnu hvorki
meira né minna en 57 stiga sigur á
Hamri í Domino‘s deild kvenna í
körfuknattleik síðastliðinn miðviku-
dag.
Laugardaginn 14. nóvember síðast-
liðinn sótti liðið svo Stjörnuna heim í
Garðabæinn. Stjarnan byrjaði betur
en Snæfell kom sér inn í leikinn fljótt
og örugglega strax í fyrsta leikhluta.
Liðin skiptust einu sinni á forystunni
áður en Snæfell náði yfirhöndinni í
upphafi annars fjórðungs. Snæfell-
ingar höfðu mest tólf stiga forskot en
misstu það niður í fjögur stig í hálf-
leik, 34-39. Gestirnir úr Stykkishólmi
léku vel bæði í vörn og sókn í síðari
hálfleik og juku muninn á ný í þriðja
fjórðungi og héldu forskoti sínu til
allt til enda. Lokatölur í leiknum urðu
64-83, Snæfelli í vil.
Haiden Palmer fór mikinn í lið-
ið Snæfells, skoraði 29 stig, gaf átta
stoðsendingar og tók fimm fráköst.
Næst henni kom Gunnhildur Gunn-
arsdóttir með 13 stig, sex fráköst og
fimm stoðsendingar.
Með sigrinum jafnaði Snæfell
topplið Hauka með 14 stig en hefur
þó leikið einum leik betur. Í næsta leik
mætast einmitt þessi tvö lið í sannköll-
uðum toppslag í Stykkishólmi sunnu-
daginn 29. nóvember. kgk
Snæfell gefur ekkert eftir í toppbaráttunni
Gunnhildur Gunnarsdóttir og liðsfélagar hennar í Snæfelli unnu tvo góða sigra í vikunni. Ljósm. eb.