Fréttablaðið - 06.11.2019, Síða 1

Fréttablaðið - 06.11.2019, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 5 9 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 Fræðsla Íslandsbanka islandsbanki.is/vidburdir Norðurturn, 9. hæð12:00-12:457. nóvember Barneignir og fjármál VIÐSKIPTI Verðbréfafyrirtækið Íslensk verðbréf, sem heldur utan um fjármögnun á hinu nýstofnaða flugfélagi Play, fundar þessa dagana með ýmsum innlendum fjárfestum í því skyni að af la félaginu um 12 milljónir evra, jafnvirði um 1.700 milljóna króna, í aukið hlutafé. Jóhann M. Ólafsson, fram­ kvæmdastjóri ÍV, segir að hins vegar sé „búið að tryggja grunn­ fjármögnun að uppfylltum vissum fyrirvörum og skilyrðum, svo sem endanlegri veitingu f lugrekstrar­ leyfis“. Hann vill ekki tjá sig um heildarupphæðina en segir hana blöndu af hlutafé og lánsfé. Samkvæmt heimildum Markað­ arins er stærstur hluti fjármögnun­ arinnar, eða í kringum 40 milljónir evra, í formi lánsfjár, með breytirétt í hlutafé, frá breskum fjárfestingar­ sjóði. – thf, hvj / sjá Markaðinn Freista þess að afla Play 1.700 milljónir króna  VIÐSKIPTI Lífeyrissjóðir hafa á undanförnum árum dregið úr eign sinni í innlendum hlutabréfasjóð­ um og á sama tíma hefur almennum fjárfestum á hlutabréfamarkaði fækkað. Þannig er minna fjármagn á hlutabréfamarkaðinum í virkri stýringu sem gerir það að verkum að markaðurinn virkar ekki sem skyldi, að sögn einkafjárfesta og verðbréfasjóða. „Það eru mjög fáir virkir fjár­ festar að færa sig á milli félaga eftir því sem möguleikar eða forsendur breytast. Ef við hugsum dæmið til enda þá verðum við með kapítalískt kerfi án kapítalista þar sem emb­ ættismenn stýra fyrirtækjunum. Við þurfum f leiri hluthafa sem hætta sínu sjálfsaf lafé en kerfið í dag er þvert á móti að stækka líf­ eyris sjóðina enn frekar,“ segir Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar, í samtali við Markaðinn. Davíð Rúdólfsson, forstöðu­ maður eignastýringar hjá Gildi líf­ eyrissjóði, segist ekki hafa miklar áhyggjur af veltunni. „Heilt yfir hefur veltan verið ágæt á innlenda markaðinum og seljanleiki á bréf­ um flestra skráðu félaganna verið vel ásættanlegur. Það er mikilvægt að hafa góðan seljanleika og skil­ virka verðmyndun en ég held að við stöndum ágætlega að vígi varðandi hvort tveggja,“ segir Davíð. „Fáir aðilar og gríðarstór og dreifð eignasöfn gera það að verkum að líf­ eyrissjóðirnir eru ekki sérstaklega virkir þátttakendur á íslenskum hlutabréfamarkaði,“ segir Svan­ hildur Nanna Vigfúsdóttir, stjórn­ armaður í VÍS. „Allt sparifé landsmanna sogast inn í lífeyrissjóðakerfið,“ útskýrir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og aðaleigandi Brims. „Þar er allur sparnaðurinn og það er áhyggjuefni ef sjóðirnir verða afl í samfélaginu sem þolir enga skoðun.“ Frjálsari ráðstöfun á séreignar­ sparnaði og skattaívilnanir vegna fjárfestingar í hlutabréfum, eins og lagt er til í Hvítbókinni um fjár­ málakerfið, gætu vegið upp á móti lítilli virkni á markaðinum. Þá eru vonir bundnar við það að Ísland verði gjaldgengt í vísitölur stærsta vísitölufyrirtækis heims á næsta ári. Viðmælendur á fjármálamarkaði telja sumir meiri líkur á afskrán­ ingum félaga í Kauphöllinni en nýskráningum á næsta ári. „Það hlýtur að vera að fjárfestar, sem fá ekki þann aðgang að fjármagni sem hlutabréfamarkaður á að veita þeim en eru hins vegar með alla upplýs­ ingaskylduna, velti fyrir sér hvort það sé þess virði að hafa fyrirtækin áfram skráð,“ segir Heiðar. – þfh / sjá Markaðinn Allt sparifé sogast inn í kerfið Fjárfestar hafa áhyggjur af stækkun lífeyrissjóða. Lífeyriskerfið taki til sín megnið af sparnaði hagkerfis- ins sem dragi úr virkni hlutabréfamarkaðar. Afskráningar taldar líklegri en nýskráningar á næsta ári. Við þurfum fleiri hluthafa sem hætta sínu sjálfsaflafé en kerfið er í dag þvert á móti að stækka lífeyrissjóðina enn frekar. Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar Yfir 600 unglingar taka þátt í hæfileikakeppninni Skrekk sem fer fram í Borgarleikhúsinu. Sýna ungmennina frumsamin atriði fyrir hönd skóla sinna. Spreyta þau sig í leik- list, söng, dansi, hljóðfæraleik og annarri sviðsvinnu. Annað undanrásakvöldið af þremur fór fram í gær en úrslit lágu ekki fyrir áður en blaðið fór í prentun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI +PLÚS 0 6 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 2 8 -B 0 6 4 2 4 2 8 -A F 2 8 2 4 2 8 -A D E C 2 4 2 8 -A C B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 5 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.