Fréttablaðið - 06.11.2019, Page 6

Fréttablaðið - 06.11.2019, Page 6
SÆMUNDUR Megas tekur lagið | Magga Stína les upp Tilboð á barnum og stemning í anda skáldsins Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir Meistaraverk Megasar, BJÖRN OG SVEINN, er loksins fáanlegt aftur. Bókin sem bókmenntaelítan hafnaði árið 1994 á meira erindi en nokkru sinni, á MeToo-tímum. Marglaga Íslandssaga sögð af hugrekki og með mergjuðu tungutaki sem á sér engan sinn líka. Fögnum með Megas i Skáldsagan BJÖRN OG SVEINN rekur ferðalag feðga tveggja um nætur líf og undirheima Reykjavíkur og fýsnir þeirra grimmar. Þótt þeir séu á ferð í nálægum samtíma, liggja rætur þeirra þó djúpt í íslenskri fortíð og sagnasjóði, þar sem eru feðgarnir Axlar-Björn og Sveinn skotti á 16. og 17. öld. Aukheldur telja þeir til frændsemi við öllu frægari kumpána losta og glæpa, ekki síst þann Don Juan sem helst á óperu Mozarts, Don Giovanni, líf sitt að þakka. Útgáfuhóf í Ægisgarði, Eyjarslóð 5 í Reykjavík fimmtudaginn 7. nóvember kl. 17.00 ORKUMÁL Risavaxið ylræktarver Paradise Farm sem nú er verið að kanna hvort risið geti í Ölfusi myndi fullbyggt þurfa 150 mega- vött af raforku. Það samsvarar hámarksaf köstum Blönduvirkj- unar. Gunnar Þorgeirsson, formaður Sambands garðyrkjubænda og einn aðstandenda Paradise Farms, segir ýmsa raforkusala koma til greina. „Menn eru talsvert áhuga- samir,“ svarar Gunnar um viðbrögð raforkusala til þessa. „Það er til talsverð orka inni á kerfinu en það er bara spurning hvar er hægt að nota hana,“ bætir Gunnar við og útskýrir að ýmis tæknileg atriði þurfi að leysa varð- andi f lutning á raforku fyrir starf- semi Paradise Farms og að það muni kosti miklar fjárfestingar. Eins og fram kom í Fréttablað- inu í gær standa erlendir fjárfestar að Paradise Farm. Ætlunin er að byrja starfsemina á tíu hekturum undir glerþaki og stækka síðan á endanum upp í fimmtíu hektara – eða 500 þúsund fermetra. Rækta á ýmiss konar grænmeti og ávexti með áherslu á útf lutning. Gefur augaleið að umsvifin yrðu gríðarleg. Aðspurður um ljósmeng- un segir Gunnar að reynt yrði að draga úr henni eins og mögulegt sé með tjöldum fyrir ofan ljósin. Ekki myndi stafa önnur mengun frá starfseminni. „Í nýjum stöðvum er hringrásar- kerfi þannig að það er alltaf verið að nýta sama áburðarvatnið og ekki verið að setja það út í nátt- úruna,“ segir Gunnar. Talsvert afrennsli af volgu vatni mætti nýta í landeldi á fiski sem áhugi sé fyrir að koma á laggirnar í Ölfusi. „Svo þurfum við að vinna í að breyta kolsýrunni sem kemur úr Hellis- heiðarvirkjun í kolefni sem við gætum notað við ræktunina og gert virkjunina umhverfisvænni í leiðinni.“ Að sögn Gunnars var hann ekki mjög trúaður á verkefnið í byrjun. „En eftir því sem maður skoðar þetta meira er þetta alltaf að verða fýsilegra. Fyrst þetta er hægt í landlausu landi eins og Hollandi þar sem menn reisa svona garðyrkjustöðvar án þess að blikna, hvers vegna ætti það þá ekki að vera mögulegt hér?“ gar@frettabladid.is Risagróðurhús þyrfti orku Blönduvirkjunar Paradise Farm þarf raforku sem samsvarar hámarksafli Blönduvirkjunar ef áform um 500 þúsund fermetra gróðurhús verða að veruleika. Talsmaður segir að leggja þyrfti í miklar fjárfestingar til að flytja raforkuna að stöðinni. Ylrækt hefur lengi verið stunduð á Íslandi. Myndin er úr gróðurhúsi Lambhaga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Menn eru talsvert áhugasamir. Gunnar Þorgeirsson, formaður Sambands garðyrkjubænda BANDARÍKIN Rúmlega tveir þriðju Bandaríkjamanna telja sig ekki betur stadda fjárhagslega í dag en áður en Donald Trump varð forseti Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar dag- blaðsins Financial Times og Peter G. Peterson-stofnunarinnar. Alls segja 31 prósent Bandaríkja- manna sig vera verr stadda fjár- hagslega í dag en þegar Trump varð forseti í byrjun árs 2017. Þá segja 33 prósent stöðuna vera eins. Svo segja 35 prósent að staðan sé betri. Niðurstaðan vekur efasemdir um að efnahagsstaða Bandaríkjanna verði vatn á myllu Trumps í forseta- kosningunum á næsta ári. Í hugum hins almenna borgara vega persónu- leg fjármál þyngra en framkoma for- setans. Margir kjósendur Vestanhafs fá fréttir helst í gegnum staðarmiðla, þar sem misdjúpt er fjallað um emb- ættisfærslur forsetans. Samkvæmt nýrri könnun PEW treysta Banda- ríkjamenn frekar staðarmiðlum en stærri fjölmiðlum. Fram til þessa hefur verið talið að Trump ætti góðan möguleika á endurkjöri. Staða hans er sterk á samfélagsmiðlum og efnahagurinn er á góðri siglingu, verg landsfram- leiðsla jókst um 1,9 prósent á þriðja fjórðungi þessa árs. „Besti efnahagur í sögu Bandaríkj- anna!“ sagði Trump í tísti. Þetta tíst, og fleiri ummæli í þá veru, benda til að sterkur efnahagur verði grund- vallarstefið í komandi kosninga- baráttu. Djúp gjá er á milli Demókrata og Repúblikana í könnuninni. Segja talsvert fleiri Demókratar en Repúblikanar að efnahagur þeirra sé eins í dag og áður en Trump tók við. Eru Demókratar talsvert líklegri til að lýsa stöðunni sem versnandi og öfugt. Financial Times hefur eftir Larry Sabato, forstöðumanni stjórnmála- fræðistofnunar Virginíuháskóla, að það sé helst stríð eða stór uppákoma sem trompi efnahaginn í kosning- um. „Í þessu tilfelli er það persóna Donalds Trump sem trompar efna- haginn,“ segir Sabato. Niðurstöður könnunarinnar benda til að það séu helst lág laun sem trufli kjósendur. Sögðu 36 pró- sent að tekjur þeirra væru helsta vandamálið, 19 prósent sögðu það skuldir. 39 prósent sögðu að tekjur þeirra hefðu batnað. Eru það helst háskólamenntaðir karlmenn sem eru jákvæðir um efnahag sinn undir stjórn Trumps. arib@frettabladid.is Setur strik í reikninginn hjá Trump Efasemdir eru um að góð efnahagsstaða verði vatn á myllu Trumps í forsetakosningunum á næsta ári. NORDICPHOTOS/GETTY +PLÚS 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 8 -D C D 4 2 4 2 8 -D B 9 8 2 4 2 8 -D A 5 C 2 4 2 8 -D 9 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 5 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.