Fréttablaðið - 06.11.2019, Side 12

Fréttablaðið - 06.11.2019, Side 12
Það er mjög gefandi að sjá leikmenn sem ég hef fylgst með síðan þeir voru ungir pjakkar vera komna í landsliðið. Tryggðu þér áskrift Í KVÖLD KL. 19:05 ATH! Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Golf 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT BANDÝ Íslenska karlalandsliðið í bandý leikur um næstu helgi sína fyrstu heimaleiki í undirbúningi sínum fyrir undankeppni HM sem haldin verður í Danmörku í janúar. Leikið verður við Bandaríkjamenn í íþróttahúsinu í Digranesi laugar- daginn 9. nóvember klukkan 19.00 og sunnudaginn 10. nóvember klukkan 15.00. Frítt er inn á leikina. Bandý er mjög ung íþrótt hér á landi en Atli Þór Hannesson, leik- maður íslenska landsliðsins og meðlimur í bandýnefnd ÍSÍ, segir að í þessum leikjum muni leikmenn spila sem koma upp úr yngriflokk- astarfi sem starfrækt er hér heima. Á Íslandi heldur HK úti bandý- deild fyrir krakka frá 10 ára aldri af báðum kynjum upp í meistaraflokk auk þess sem nokkur lið víðsvegar á landinu spila bandý, þar á meðal Ungmennafélagið Samherjar á Hrafnagili. Fyrir áhugasama býður bandýdeild HK áhugasömum að prófa íþróttina endurgjaldslaust á mánudagskvöldum í Digranesi. „Þetta er í fyrsta skipti sem við höfum á að skipa leikmönnum í landsliði Íslands í bandý sem hafa alist upp í yngrif lokkastarfi á íslenskri grund. Þess utan erum við með leikreynda leikmenn sem leika hér heima og svo hálfatvinnumenn sem spila í Svíþjóð. Það er mjög gefandi að sjá leikmenn sem ég hef fylgst með síðan þeir voru ungir pjakkar vera komna í landsliðið,“ segir Atli í samtali við Fréttablaðið. „Það er mjög sterkt fyrir okkur að vera með tengsl við Svíþjóð sem er ein sterkasta þjóð heims í bandý og er sigursælasta þjóðin á heims- meistaramótinu í greininni. Finn- land er reyndar ríkjandi meistari, en auk þessara þjóða standa Sviss og Tékkland fremst í bandý á heims- vísu. Íþróttin er sífellt að vaxa hér heima og liðum sem æfa skipulega og senda öflug lið til leiks í meist- araflokki fjölgar með hverju árinu,“ segir hann enn fremur. „Þá eigum við leikmenn sem spila á hinum  Norðurlöndunum. Okkar skærasta stjarna er Andreas Stefansson en hann er einn færasti leikmaður sænsku úrvalsdeildar- innar. Við erum mjög spennt fyrir þessum leikjum og teljum okkur vera með nokkuð sterkt lið og það verður gaman að miða okkur við Bandaríkjamennina,“ segir Atli um komandi verkefni íslenska liðsins. „Það er í mörg horn að líta fyrir okkur sem stöndum að þessu en það er bara skemmtilegt. Við erum að klára að binda alla lausa enda og nú getum við farið að einbeita okkur alfarið að bandýinu á síð- ustu dögunum fyrir leikina. Von- andi náum við fram góðri frammi- stöðu og skemmtilegum leikjum. Það væri gaman að sjá fólk mæta í Digranesið um helgina og sjá afrakstur af mikilli vinnu okkar,“ segir þessi öf lugi bandýmaður. hjorvaro@frettabladid.is Eigum kynslóð af uppöldum spilurum Íslenska liðið hefur á að skipa skemmtilegri blöndu af leikmönnum. Íslenska karlalandsliðið í bandý leikur tvo æfingaleiki við Bandaríkin um komandi helgi en báðir leikirnir fara fram í íþróttahúsinu að Digranesi. MYND/IFF Iðkendum í bandý hefur fjölgað hægt og bítandi á Íslandi. Rík tengsl bandýsamfélags­ ins hér heima við Sví­ þjóð hafa styrkt þann grunn sem er til staðar. Næstu helgi leikur ís­ lenska liðið tvo leiki við Bandaríkin. Þar munu leikmenn sem koma upp úr yngriflokka­ starfi hérlendis í leika með liðinu í fyrsta sinn. 0 6 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 8 -B F 3 4 2 4 2 8 -B D F 8 2 4 2 8 -B C B C 2 4 2 8 -B B 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 5 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.