Fréttablaðið - 06.11.2019, Qupperneq 16
Jafnvel þótt flug-
félagið fljúgi sex
flugvélum hefur það ekki
áhrif á stóru myndina fyrir
Icelandair.
Sveinn Þórarinsson, hlutabréfa-
greinandi hjá Landsbankanum
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@frettabladid.is
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Gervigreind mun hafa gríðar-legar breytingar á atvinnu-lífinu í för með sér. Þetta
segir Guðmundur Hafsteinsson,
sem gegndi formennsku í stýrihópi
um mótun nýsköpunarstefnu fyrir
Ísland og var yfirmaður vöruþró-
unar á Google Assistant. „Í gervi-
greind felst tækifæri til að skapa
betri fyrirtæki og bjóða betri þjón-
ustu,“ segir hann.
Fæst f y rirtæk i í heiminum
hafa enn fundið fyrir áhrifum af
gervigreind, að mati Guðmundar.
Aðspurður um stöðu íslenskra
fyrirtækja til að keppa við erlend
fyrirtæki þegar kemur að innleið-
ingu á gervigreind segist hann telja
að nær öll fyrirtæki í heiminum
séu illa í stakk búin til að innleiða
gervigreind.
Hann mun f ly t ja er indi á
Alþjóðadegi viðskiptalífsins á
mánudaginn sem millilandaráðin
standa að. Yfirskrift ráðstefnunnar
er: Hvernig verður fyrirtækið þitt
árið 2030?
Guðmundur bendir á að endrum
og eins og spretti fram ný tækni
sem gerbylti öllu. Þekkt dæmi séu
prent- og gufuvélin. Gervigreind
geri það að verkum að tölvur geti
lært í stað þess að fylgja eingöngu
fyrirmælum.
„Þetta er ofureinföldun,“ segir
Guðmundur. „Gervigreind opnar
möguleika sem stóðu ekki til boða
fyrir fimm árum,“ segir hann og
nefnir að gervigreind geti greint
gögn sem ekki er búið að hólfa
niður með sama hætti og núverandi
tækni vinni með.
Að hans sögn verða þeir stjórn-
endur sem vilja reyna að mynda sér
skoðun á hvað muni gerast á næstu
tíu árum að skilja breytinguna sem
gervigreind muni hafa í för með sér.
Stjórnendur verði að skilja hvaða
áhrif gervigreind muni hafa á rekst-
ur fyrirtækja þeirra, hvar hún muni
hafa áhrif og hvar ekki. Að öðrum
kosti muni þeir „f ljúga blint inn í
framtíðina“. Hættan sé sú að keppi-
nautur muni skilja breytinguna og
það skapi samkeppnisforskot.
Guðmundur segir mikilvægt að
skilja hvaða áhrif tæknibreytingar
muni hafa á framtíðina. Það megi
ekki horfa einvörðungu til þess
sem sé mögulegt núna. Fyrir rúm-
lega áratug hafi verið gefin út bók
um áhrif tæknivæðingar. Í bókinni
hafi verið fullyrt að atvinnubíl-
stjórar þyrftu ekki að óttast tækni-
breytingar enda væri of f lókið fyrir
tölvur að aka bílum. „Fjórum árum
eftir að bókin kom út leit fyrsti
sjálfakandi bíllinn dagsins ljós,“
segir hann.
Guðmundur tekur sem dæmi
hvaða áhrif gervigreind geti haft á
rekstur verslana. Skynjarar muni
geta greint hve mikið sé af til-
tekinni vöru í hillu, gervigreindin
muni geta vitað þegar viðskipta-
vinir ganga um verslunina, hvert
þeir ganga og hvort uppröðun í
versluninni sé skynsamleg eða
hvort hægt sé að gera betur á því
sviði.
Annað sem gervigreindin mun
hjálpa við í verslunarrekstri er að
ganga frá greiðslu án þess að við-
skiptavinir þurfi að standa við
búðarkassa. Guðmundur nefnir að
viðskiptavinir matvöruverslunar
gangi um verslunina og raði vörum
í körfu. Að því loknu bíði þeir í röð
við búðarkassa og þegar komið er
að þeim taki þeir vörur úr körfunni
og leggi á borð. Loks þurfi þeir að
raða vörunum í poka. „Eftir ekki
svo langan tíma munum við hlæja
að þessu,“ segir hann.
Blaðamaður nef nir að net-
verslunin Amazon haf i opnað
matvöruverslanir þar sem meðal
annars er sjálfvirkt afgreiðslu-
kerfi. „Þeir og f leiri eru að vinna
að þessu,“ seg ir Guðmundur.
helgivifill@frettabladid.is
Gervigreind mun gerbreyta atvinnulífinu
Guðmundur segir að gervigreind geri fyrirtæki betri. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Verðbréfafyrirtækið Íslensk verðbréf (ÍV), sem heldur utan um fjármögnun á hinu nýstofnaða flugfélagi Play, fundar þessa
dagana með ýmsum innlendum
fjárfestum í því skyni að afla félag-
inu um 12 milljónir evra, jafnvirði
um 1.700 milljónir króna, í aukið
hlutafé, samkvæmt heimildum.
Jóhann M. Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri ÍV, segir í samtali við
Markaðinn að hins vegar sé „búið að
tryggja grunnfjármögnun að upp-
fylltum vissum fyrirvörum og skil-
yrðum, svo sem endanlegri veitingu
f lugrekstrarleyfis.“ Hann vill ekki
tjá sig um hver heildarupphæð fjár-
mögnunarinnar er en segir að hún
sé blanda af hlutafé og lánsfé.
„Play hefur gert samning við
Íslensk verðbréf um að halda utan
um f jármögnun á félaginu frá
innlendum og erlendum aðilum.
Íslensk verðbréf tóku þetta verk-
efni að sér því við teljum þetta mjög
vel útfærðan og áhugaverðan fjár-
festingarkost og fundum strax fyrir
miklum áhuga,“ segir Jóhann.
„Eins og kom fram í kynningunni
telja stjórnendur Play mjög mikil-
vægt að félagið hefji rekstur með
sterka lausafjárstöðu. Íslensk verð-
bréf munu áfram vinna með aðilum
að bæta við fjármögnunina svo að
félagið hafi enn sterkari lausafjár-
stöðu frá upphafi.“
Samkvæmt heimildum Markað-
arins er stærstur hluti fjármögnun-
arinnar, eða í kringum 40 milljónir
evra, í formi lánsfjár, með breytirétt
í hlutafé, frá hinum breska fjárfest-
ingarsjóði sem Arnar Már Magnús-
son, nýr framkvæmdastjóri Play,
upplýsti að kæmi að fjármögnun
félagsins á blaðamannafundi sem
Play stóð fyrir í gærmorgun.
Þá gat Jóhann ekki tjáð sig um
breska fjárfestingarsjóðinn sem eigi
að koma að fjármögnun félagsins en
upphafleg áform gerðu ráð fyrir að
Avianta Capital Capital, sem er að
fullu í eigu Aislinn Whittley-Ryan
en er stýrt af eiginmanni hennar,
Simon, myndi leggja félaginu til um
40 milljónir evra í formi hlutafjár og
eignast við það 75 prósenta hlut.
Ekki eru bundnar vonir við að
íslenskir lífeyrissjóðir muni leggja
félaginu til fjármagn heldur er fyrst
og fremst verið að horfa til fjárfest-
ingarsjóða og einkafjárfesta um að
þeir komi að viðbótar fjármögnun-
inni með því að leggja félaginu til
hlutafé. Aðspurður vildi Jóhann
ekki tjá sig um hversu stóran eign-
arhlut 12 milljónir evra myndu
tryggja þeim í f lugfélaginu en sam-
kvæmt heimildum Markaðarins
er lagt upp með að það geti skilað
innlendum f járfestum samtals
helmingshlut á móti stofnendum
og öðrum starfsmönnum Play.
„Við viljum vera fjármagnaðir
þannig að við séum með nægt fé til
að takast á við allar þær áskoranir
sem á vegi okkar verða,“ segir Arnar
Már Magnússon, forstjóri Play, í
samtali við Markaðinn. Hann gat
ekki farið nánar út í fjármögnun
eða eignarhald félagsins. Greint
verði frá því síðar.
Arnar segir að búið sé að ganga
frá samningum við leigusala fyrir
fyrsta áfangann en félagið mun
hefja rekstur með tvær Airbus A320
vélar. Spurður hvort kyrrsetning
Isavia á f lugvél WOW air hafi verið
hindrun í ferlinu við að útvega
leiguvélar svarar Arnar neitandi.
Ekki áhyggjuefni fyrir Icelandair
Eins og fram hefur komið er gert ráð
fyrir að sex flugvélar verði í rekstri
Play næsta sumar og tíu f lugvélar
innan þriggja ára. Sveinn Þórarins-
son, hlutabréfagreinandi hjá Lands-
bankanum, segir að þrátt fyrir kyrr-
setningu Boeing 737 MAX flugvéla
sé töluvert framboð af f lugvélum til
leigu ef viðskiptaáætlunin er raun-
hæf í augum leigufélagsins.
„Stór flugfélög eru ekki í miklum
vaxtarhraða um þessar mundir á
sama tíma og nokkur flugfélög hafa
lagt upp laupana. Það er einungis
lítils háttar vöxtur í umsvifum flug-
félaga á heimsvísu.
Það liggur í augum uppi að leigu-
salar horfa til þess að stjórnendur
Play eru reyndir enda er um nýtt
f lugfélag að ræða. Þeir horfa vænt-
anlega einnig til bankaábyrgða,
lausafjár og viðskiptaáætlunarinn-
ar. Það má leiða líkur, eðlilega, að
því að kjörin sem nýstofnuðu flug-
félagi bjóðist séu hærri en hjá f lug-
félögum með lengri rekstrarsögu.
Flugrekstur er enda áhættu-
samur. Það er ekki á vísan að róa,
jafnvel þótt stjórnendateymið státi
af góðri reynslu og reksturinn sé
ágætlega fjármagnaður. Við vonum
þó svo sannarlega að þetta gangi
vel hjá þeim,“ segir Sveinn.
Að hans sögn þarf Icelandair
Group ekki að hafa miklar áhyggj-
ur af nýja keppinautnum að svo
stöddu. „Play er hvorki komið með
f lugrekstrarleyfi né hefur hafið
sölu á f lugmiðum. Jafnvel þótt f lug-
félagið f ljúgi sex f lugvélum hefur
það ekki áhrif á stóru myndina
fyrir Icelandair. Það á í alþjóðlegri
samkeppni og því skiptir ekki
sköpum hvort eitt eða tvö f lug-
félag til eða frá f ljúgi til Íslands.
Þetta kannski breytist þó ef félagið
nær að stækka enn þá meira.“ Fram
hefur komið í fjölmiðlum að 23
f lugfélög f lugu til landsins í sumar.
Rétt eins og Icelandair og WOW
air áður, þá f lýgur Play á milli Evr-
ópu og Bandaríkjanna. „Það er
nauðsynlegt viðskiptamódel til að
leggja grunn að alvöru f lugfélagi á
Íslandi. Það eru ekki aðrir mögu-
leikar í stöðunni,“ segir Sveinn.
Snorri Jakobsson, forstöðu-
maður greiningardeildar Capacent,
segir að Icelandair hafi verið meðal
vanmetnustu félaga á markaði fyrir
mikla og verðskuldaða hækkun á
gengi félagsins. „Margir óvissu-
þættir og ytri breytur hafa áhrif á
rekstur Icelandair og er samkeppni
ein þeirra. Aukin samkeppni hefur
áhrif á rekstur og verðmat til lækk-
unar. Væntanlega eru þó áhrifin
lítils háttar en Icelandair býr nú
þegar við umtalsverða samkeppni,“
segir hann.
Freista þess að afla 1.700 milljóna
Íslensk verðbréf vinna að því að tryggja flugfélaginu Play hlutafé upp á 1.700 milljónir króna frá innlendum fjárfestum. Vilja hefja
rekstur með sterka lausafjárstöðu en búið er að tryggja félaginu grunnfjármögnun sem er að stærstum hluta í formi lánsfjár.
Áform Play í hnotskurn
Áform flugfélagsins Play voru
kynnt á blaðamannafundi sem
félagið stóð fyrir í gær.
Play, sem mun skarta rauðum
einkennislit, áformar að hefja
flug á tveimur Airbus A320 flug-
vélum til sex áfangastaða í Evr-
ópu í vetur. Fjórum flugvélum af
sömu tegund verður síðan bætt
við í vor og verður þá hafið flug
til fjögurra stórborga í Norður-
Ameríku.
Bókunarsíða Play er komin
í loftið en félagið á enn eftir
að útvega flugrekstrarleyfi og
handbækur samþykktar hjá Sam-
göngustofu. Það er hins vegar á
lokametrunum að sögn stofn-
enda Play.
Arnar Már Magnússon, for-
stjóri Play, tók fram á fundinum
að íslenskir samningar yrðu
gerðir við flug áhafnir en hann
sagði jafnframt að félagið væri
opið fyrir því að fá starfsfólk að
utan.
Arnar M. Magnússon, Þóroddur A. Þóroddsson, Bogi Guðmundsson og Sveinn Ingi Steinþórsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
0
6
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
8
-E
6
B
4
2
4
2
8
-E
5
7
8
2
4
2
8
-E
4
3
C
2
4
2
8
-E
3
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K