Fréttablaðið - 06.11.2019, Blaðsíða 34
ÞEGAR SAMTÖLIN ERU
UPP Á SITT BESTA
HLJÓMA ÞAU EINS OG SUNGINN
PRÓSI, SETNINGAR HAFA ENGAN
ENDAPUNKT FREMUR FLJÓTA
INN Í HVERJA AÐRA.
LEIKHÚS
Eitur
eftir Lot Vekemans
Borgarleikhúsið
Leikstjóri: Kristín Jóhannesdóttir
Leikarar: Nína Dögg Filippusdóttir
og Hilmir Snær Guðnason
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar: Þórunn María Jóns-
dóttir
Lýsing: Björn Bergsteinn Guð-
mundsson
Tónlist og hljóðmynd: Garðar
Borgþórsson
Þýðing: Ragna Sigurðardóttir
Hún og hann bera engin nöfn,
einungis óbærilegan harm. Tíu
árum eftir að hann fór frá henni á
gamlárskvöldi hittast þau aftur í
skrifstofubyggingu kirkjugarðs.
Barnsmissinn hafa þau aldrei rætt
sín á milli og uppgjör við fortíðina
er óhjákvæmilegt. Hollenska leik-
ritið Eitur eftir Lot Vekemans var
frumsýnt síðastliðinn laugardag
og markar endurkomu Kristínar
Jóhannesdóttur í Borgarleikhúsið,
en sýningar undir hennar stjórn
vekja ávallt eftirvæntingu.
Leikrit Vekemans kryfur sorgina
á margslunginn máta, skoðar hana
frá mörgum sjónarhornum og
stillir aðalpersónunum upp í ein-
vígi. Þegar samtölin eru upp á sitt
besta hljóma þau eins og sunginn
prósi, setningar hafa engan enda-
punkt, fremur fljóta hver inn í aðra.
Heimur verksins er dularfullur og
biðstofan er lituð með natúralísk-
um tónum. En um leið og höfundur
fer að vísa út fyrir persónulega sorg
karakteranna veikist textinn. Þar
af leiðandi er þriðji hlutinn kraft-
minnstur og leikverkið fjarar út
í stað þess að ná einhvers konar
hápunkti, kannski eins og lífið
sjálft.
Nákvæmur leikur
Nína Dögg Filippusdóttir hefur úr
erfiðara hlutverki að spila. Ekki ein-
ungis vegna þess að sorg hennar er
svo óheft heldur líka vegna þess að
hlutverkið er óræðara. Hér er kona
sem er búin að drekkja sér í sorginni
síðastliðinn áratug og er fyrir löngu
búin að tapa tilganginum í lífinu.
Að halda slíku tilfinningalegu upp-
námi í nær níutíu mínútur er ansi
f lókið en að mestu nær Nína Dögg
að leysa það verkefni án þess að
missa karakterinn frá sér.
Á móti henni stendur síðan
Hilmir Snær Guðnason í hlutverki
hans, öruggari í fasi en harmurinn
er alltaf innan seilingar. Hann
f laggar ekki sinni sorg en hún er
sjáanleg úr augum hans, eitthvað
sem einungis er á færi þeirra allra
bestu. Samleikur þeirra einkennist
af nánd og góðri hlustun. En þriðja
hlutann eiga þau erfiðast með þegar
handritið nánast bregst þeim en
með nákvæmum leik, einlægni og
hjálp Leonards Bernstein komast
þau saman yfir þröskuldinn.
Eftirminnilegar myndir
Fagurfræði og nálgun Kristínar er
skýr í Eitri, eins og í f lestum hennar
sýningum. Eitur er leikin án hlés,
þannig er hinn viðkvæmi heimur
verksins aldrei brotinn upp. Að
sama skapi hikar hún ekki við að
beita ýmsum listrænum brögðum
til að brjóta upp framvinduna, þar
leika þöglu milliatriðin stórt hlut-
verk. Myndirnar sem hún teiknar
upp í sínum sýningum eru eftir-
minnilegar og Eitur skilur eftir sig
margar slíkar.
Búningar Þórunnar Maríu Jóns-
dóttur endurspegla ágætlega stað-
inn sem persónurnar eru á í lífinu;
hann í fallega samansettum jakka-
fötum en hún tættari. Vandamálið
er að peysusamansetning hennar
virkar illa, bæði passar peysan illa
á hana og rauði bolurinn undir
er truf landi. Smáatriði sem þessi
verða hrópandi áberandi í sýningu
þar sem naumhyggjan er við völd.
Leikmynd Barkar Jónssonar
og hljóðmynd Garðars Borgþórs-
sonar vinna fallega hvor á móti
annarri. Hönnun Barkar er köld
eins og steinsteypa í rigningunni en
glugginn út í japanska sandgarðinn
skapar von um betri tíð. Bæði tón-
listin og hljóðmyndin virðast sem
úr öðrum heimi, jafnvel að handan,
sem setur dulmagnaðan tón inn í
þetta iðnaðarumhverfi.
Sorgin heldur syrgjendum í
heljargreipum, hún hverfur aldrei
en hægt er að lifa með henni. Eitur
er laglega skrifað á köflum og sum
samtölin skera djúpt. Hvort hann
eða hún komist einhvern tímann
úr biðstofu sorgarinnar er óljóst en
Kristín og hennar hópur sér til þess
að enginn áhorfandi fer úr salnum
ósnortinn.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Átakanleg sýning um
uppgjör við lífið og dauðann.
Óbærilegur harmur í biðstofu sorgarinnar
Enginn áhorfandi fer úr salnum ósnortinn, segir gagnrýnandi Fréttablaðsins. MYND GRÍMUR BJARNASON
6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
6
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
2
8
-D
C
D
4
2
4
2
8
-D
B
9
8
2
4
2
8
-D
A
5
C
2
4
2
8
-D
9
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K