Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.11.2019, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 06.11.2019, Qupperneq 34
ÞEGAR SAMTÖLIN ERU UPP Á SITT BESTA HLJÓMA ÞAU EINS OG SUNGINN PRÓSI, SETNINGAR HAFA ENGAN ENDAPUNKT FREMUR FLJÓTA INN Í HVERJA AÐRA. LEIKHÚS Eitur eftir Lot Vekemans Borgarleikhúsið Leikstjóri: Kristín Jóhannesdóttir Leikarar: Nína Dögg Filippusdóttir og Hilmir Snær Guðnason Leikmynd: Börkur Jónsson Búningar: Þórunn María Jóns- dóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guð- mundsson Tónlist og hljóðmynd: Garðar Borgþórsson Þýðing: Ragna Sigurðardóttir Hún og hann bera engin nöfn, einungis óbærilegan harm. Tíu árum eftir að hann fór frá henni á gamlárskvöldi hittast þau aftur í skrifstofubyggingu kirkjugarðs. Barnsmissinn hafa þau aldrei rætt sín á milli og uppgjör við fortíðina er óhjákvæmilegt. Hollenska leik- ritið Eitur eftir Lot Vekemans var frumsýnt síðastliðinn laugardag og markar endurkomu Kristínar Jóhannesdóttur í Borgarleikhúsið, en sýningar undir hennar stjórn vekja ávallt eftirvæntingu. Leikrit Vekemans kryfur sorgina á margslunginn máta, skoðar hana frá mörgum sjónarhornum og stillir aðalpersónunum upp í ein- vígi. Þegar samtölin eru upp á sitt besta hljóma þau eins og sunginn prósi, setningar hafa engan enda- punkt, fremur fljóta hver inn í aðra. Heimur verksins er dularfullur og biðstofan er lituð með natúralísk- um tónum. En um leið og höfundur fer að vísa út fyrir persónulega sorg karakteranna veikist textinn. Þar af leiðandi er þriðji hlutinn kraft- minnstur og leikverkið fjarar út í stað þess að ná einhvers konar hápunkti, kannski eins og lífið sjálft. Nákvæmur leikur Nína Dögg Filippusdóttir hefur úr erfiðara hlutverki að spila. Ekki ein- ungis vegna þess að sorg hennar er svo óheft heldur líka vegna þess að hlutverkið er óræðara. Hér er kona sem er búin að drekkja sér í sorginni síðastliðinn áratug og er fyrir löngu búin að tapa tilganginum í lífinu. Að halda slíku tilfinningalegu upp- námi í nær níutíu mínútur er ansi f lókið en að mestu nær Nína Dögg að leysa það verkefni án þess að missa karakterinn frá sér. Á móti henni stendur síðan Hilmir Snær Guðnason í hlutverki hans, öruggari í fasi en harmurinn er alltaf innan seilingar. Hann f laggar ekki sinni sorg en hún er sjáanleg úr augum hans, eitthvað sem einungis er á færi þeirra allra bestu. Samleikur þeirra einkennist af nánd og góðri hlustun. En þriðja hlutann eiga þau erfiðast með þegar handritið nánast bregst þeim en með nákvæmum leik, einlægni og hjálp Leonards Bernstein komast þau saman yfir þröskuldinn. Eftirminnilegar myndir Fagurfræði og nálgun Kristínar er skýr í Eitri, eins og í f lestum hennar sýningum. Eitur er leikin án hlés, þannig er hinn viðkvæmi heimur verksins aldrei brotinn upp. Að sama skapi hikar hún ekki við að beita ýmsum listrænum brögðum til að brjóta upp framvinduna, þar leika þöglu milliatriðin stórt hlut- verk. Myndirnar sem hún teiknar upp í sínum sýningum eru eftir- minnilegar og Eitur skilur eftir sig margar slíkar. Búningar Þórunnar Maríu Jóns- dóttur endurspegla ágætlega stað- inn sem persónurnar eru á í lífinu; hann í fallega samansettum jakka- fötum en hún tættari. Vandamálið er að peysusamansetning hennar virkar illa, bæði passar peysan illa á hana og rauði bolurinn undir er truf landi. Smáatriði sem þessi verða hrópandi áberandi í sýningu þar sem naumhyggjan er við völd. Leikmynd Barkar Jónssonar og hljóðmynd Garðars Borgþórs- sonar vinna fallega hvor á móti annarri. Hönnun Barkar er köld eins og steinsteypa í rigningunni en glugginn út í japanska sandgarðinn skapar von um betri tíð. Bæði tón- listin og hljóðmyndin virðast sem úr öðrum heimi, jafnvel að handan, sem setur dulmagnaðan tón inn í þetta iðnaðarumhverfi. Sorgin heldur syrgjendum í heljargreipum, hún hverfur aldrei en hægt er að lifa með henni. Eitur er laglega skrifað á köflum og sum samtölin skera djúpt. Hvort hann eða hún komist einhvern tímann úr biðstofu sorgarinnar er óljóst en Kristín og hennar hópur sér til þess að enginn áhorfandi fer úr salnum ósnortinn. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Átakanleg sýning um uppgjör við lífið og dauðann. Óbærilegur harmur í biðstofu sorgarinnar Enginn áhorfandi fer úr salnum ósnortinn, segir gagnrýnandi Fréttablaðsins. MYND GRÍMUR BJARNASON 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 6 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 2 8 -D C D 4 2 4 2 8 -D B 9 8 2 4 2 8 -D A 5 C 2 4 2 8 -D 9 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 5 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.