Fréttablaðið - 09.11.2019, Side 4

Fréttablaðið - 09.11.2019, Side 4
Fáðu fréttablað dagsins í tölvupósti kl. 3.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista blaðsins á www.frettabladid.is#nyskraning Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið TÖLUR VIKUNNAR 03.11.2019 TIL 09.11.2019 Vena Naskrecka listakona hefur safnað saman persónu- legum sögum íbúa af pólsk- um uppruna í Reykjanesbæ. Á sögunum byggir Vena verk sín sem sýnd verða á Pólskri menningar- hátíð í Reykjanesbæ í dag. Davíð Þorláksson forstöðumaður hjá SA kynnti í vikunni nýja skýrslu um áherslur SA í menntamálum. Í skýrslunni eru settar fram tillögur sem ætlað er að bæta öll skólastigin. Meðal tillagna er stytting grunnskólanáms og sam- eining háskóla landsins. Gunnar Hrafnsson formaður FÍH sagði kjarasamn- inga hafa verið brotna í samn- ingum Íslensku óperunnar við söngvara. Þrjú í fréttum Menning, menntun og samningar 5,8 milljónir er kostn aðurinn við Friðarsúlu Yoko Ono það sem af er ári. Kostn- aður frá vígslu árið 2007 til ársins 2018 nam rúmum 40 millj- ónum króna. 1.243 einstaklingum færri voru í þjóð- kirkjunni 1. nóvember 2019 en 1. desember 2018. Rúmlega 230 þúsund eru skráð í þjóðkirkjuna sem er langstærsta trúfélag landsins. 12,9 milljarða króna afgangur verður af rekstri samstæðu Reykjavíkur- borgar á næsta ári samkvæmt fjár- hagsáætlun. Borgarsjóður verður rekinn með 2,5 milljarða af- gangi. 362.860 er heildarfjöldi Íslendinga miðað við nýjustu tölur Hagstofunnar. Á höfuðborgarsvæðinu búa 232.070 en 130.790 utan þess. 64 prósent fýla við strendur Íslands eru með plast í meltingarvegi miðað við vöktun Umhverfis- stofnunar árið 2019. jeep.is UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 JEEP® RENEGADE LIMITED - Verð á sýningarbíl: 4.990.000 kr. JEEP® RENEGADE TRAILHAWK - Verð á sýningarbíl: 5.490.000 kr. JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY - Verð á sýningarbíl: 7.490.000 kr. JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY - Verð á sýningarbíl: 7.990.000 kr. JEEP® CHEROKEE LIMITED - Verð á sýningarbíl: 8.790.000 kr. ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF ÖRFÁIR SÝNINGARBÍLAR Á FRÁBÆRU VERÐI REYKJAVÍK Foreldrar tæplega fjórð- ungs barna í 1.-4. bekk í Reykjavík notuðu frístundastyrk af kvæma sinna til að greiða fyrir vist á frí- stundaheimili eftir skóla haustið 2018. Þetta kemur fram í svari vel- ferðarráðs Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Kolbrúnar Baldurs- dóttur, oddvita Flokks fólksins. Um var að ræða 1.503 börn af alls 6.298 á þessum aldri í höfuðborginni. „Að mínu mati er ótrúlegt að verið sé að nýta frístundastyrkinn til að greiða fyrir nauðsynlega dvöl á frístundaheimili. Alls eru þetta um 75 milljónir króna sem er fjár- magn sem er ætlað að styðja börn til að iðka tómstundir. Það fer vissu- lega fram metnaðarfullt starf á frí- stundaheimilum borgarinnar en starfið þar er þó ekki það sama og íþrótta- og tómstundanám. Dvöl á frístundaheimili er nauðsyn til þess að foreldrar geti unnið fyrir fjöl- skyldunni,“ segir Kolbrún. Hún bendir á að markmið og tilgangur frístundakortsins hafi frá upphafi verið að auka tæki- færi barna til að stunda íþróttir og tómstundir óháð efnahag foreldra. Miðað við þessar tölur séu vísbend- ingar um að nú sé frístundakortið einnig nýtt sem bjargir frekar en tækifæri til að iðka tómstundir. Kolbrún lagði fram tillögu fyrir borgarstjórn á dögunum um að frí- stundakortið verði einungis notað í samræmi við skilgreint markmið þess og að afnumið verði skilyrði um að nýta verði rétt til frístunda- korts áður en sótt sé um fjárhagsað- stoð. „Það þarf að hjálpa foreldrum sem geta ekki greitt fyrir vist á frí- stundaheimili með öðrum hætti en að svipta börn möguleikanum á að stunda íþróttir og tómstundir.“ Sú breyting að heimila foreldrum að greiða fyrir vist á frístundaheim- ilum með frístundakortinu kom frá Vinstri grænum á sínum tíma. Líf Magneudóttir, oddviti f lokks- ins, segir að Kolbrún sé að oftúlka tölurnar og gefa sér eitthvað sem eigi sér ekki endilega stoð í raun- veruleikanum. Sum börn finni sig einfaldlega ekki í hinu hefðbundna íþrótta- og tómstundastarfi og kjósi því frekar að vera á frístunda- heimilum borgarinnar þar sem, að hennar sögn, er unnið fjölbreytt og faglegt starf. „Síðan þessi breyting gekk í gegn, að hægt var að greiða fyrir frístundaheimilin með frístunda- kortinu, þá hefur starfið þar ef lst mikið. Þar er mjög öflugt fagfólk að vinna frábært starf og mér finnst þessar niðurstöður sem Kolbrún gefur sér gera lítið úr því góða starfi,“ segir Líf. Að hennar sögn er í gangi vinna sem snýr að því að útvíkka mögu- lega notkun frístundakortsins en niðurstöður þeirrar vinnu liggja ekki enn fyrir. „Ein af áskorununum sem við stöndum frammi fyrir er að auka þátttöku barna af erlendum upp- runa í íþrótta- og tómstundastarfi. Þessi hópur notar frístundakortið minna en aðrir og við þurfum að finna lausnir á því,“ segir Líf. bjornth@frettabladid.is Borgarfulltrúi vill breyttar reglur um frístundakortin Á síðasta ári nýttu foreldrar tæplega fjórðungs barna í borginni frístundakort til að greiða fyrir dvöl á frístundaheimili. Borgarfulltrúi Flokks fólksins vill að einungis verði hægt að nýta kortið til að borga fyrir íþrótta- og tómstundanám. Oddviti Vinstri grænna segir þetta gera lítið úr starfi frístundaheimila. Margir foreldrar kjósa að nýta frístundakort til að greiða fyrir dvöl á frístundaheimili. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 3 -0 1 F 4 2 4 3 3 -0 0 B 8 2 4 3 2 -F F 7 C 2 4 3 2 -F E 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 0 4 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.